Tölvumál - 01.10.1987, Síða 15

Tölvumál - 01.10.1987, Síða 15
búa sig undir endurmenntun til ólikustu starfa oft á ævinni. Eins ætti þetta að stytta vinnuvikur, lengja orlof og laekka eftirlaunaaldur. Aðrir eru þessu þó ekki með öllu sammála. Þar eru jafnt á ferð vinstri- og hægrisinnar, en þeim er sammerkt, að hafa nægilega viðtaéka menntun og þá viðsýni sem þarf til að sameina i huga sér "efnahagsjöfnumar" og þau reiknidæmi, sem tækniþróunin skilar nú á borð okkar. Þeir segja, að nú sé þróun manrikyns e.t.v. komin i kross á kyndugan hátt. A11 sherjarvélin er að koma, hún kann að skapa fjöldaat- vinnuleysi af nýjum toga, en e.t.v. verður einnig hægt að beita ráðum hennar á þann vanda, sem hún skapar sjálf, þótt þversagnakennt kunni að virðast, og fanga hana þarínig i eigið net. Röksemdir hafa þeir m.a. getað sótt i þróun, sem nú er tekið að gæta innan þjónustugreina á niunda áratugnum. Alla þessa öld hefur fólk safnast til þjónustugreina úr iðnaðarstörfum öðru fremur, eftir þvi sem vélvæðing hefur aukist og sjálfvirkni. Hér má greina i nokkru mildara formi áþekka hluti og þá, sem gerðust, er menn fluttust úr sveitum til verksmiðjuborga i iðnbyltingunni. Ódýrari tölvur og tölvukerfi efla nú þj ónustugreinamar svonefndu umfram aðrar. Þar eykst hagnaður stórlega án þess að starfsmönnum fjölgi að sama skapi. í sumum tilvikum hefur störfum jafnvel fækkað, ekki sist i greinum, þar sem fjarskipti koma við sögu. Þessir menn segja, að atvinnuleysingjum muni fjölga um milljónir á næsta áratug, sama hvaða pólitiskir vindar blási. Það þurfi þó ekki að merkja atvinnuleysi i venju- legri merkingu orðsins, ef við leggjum það á okkur að endurmeta afstöðu okkar til vinnunnar; leggjum áherslu á það að skapa auð fremur en atvinnutækifæri, og nýtura þann auð siðan til þess að auðga tómstundir fólks, efla menntun og félagslega þjónustu. Slik breyting er brýn, segja þeir okkur, - ef við viljum komast hjá þvi að gjáin milli hinna riku og snauðu verði óbrúanleg. Slik gjá mundi skilja að þá, sem eiga auð sinn i upplýsingum og tækni, og hina upplýsinga- og tæknisnauðu. Minnirilutaskoðanir sem þessar má heyra, hvar i flokki sem menn standa. Ágreiningsefnin eru léttvægari; menn deila um einstök atriði, sem varða dreifingu þess auðs, sem vélamar munu skapa. - 15 -

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.