Tölvumál - 01.10.1987, Page 17
sjónmáls, einfaldar og ódýrar. Og hér er um annað og
fleira að ræða en það að útrýma niðurlægj andi brauðstriti.
Tökum daani.
Ef við tökum undir orð Lincolns um "stjóm fólksins i þágu
fólksins", hvi tökum við þvi þá ekki með fögnuði er hið
beina örskotslýðræði stendur okkur til boða og er raunar
innan sjónmáls? Á næsta áratug verða fjarskiptanet flestra
Vesturlanda fær um að sinna atkvæðagreiðslu um þjóðmál eða
kosningar um svæðisbundin mál. Þá dygði okkur að styðja á
hnapp á tölvu. Og áður en varði, mundi sjónvarpsskjárinn
segja okkur, hvað við hefðum ákveðið með 53.47% meirihluta.
Og væri alræði meirihlutans þá ekki rafeindavætt að fullu?
í þessari hugsun leynist vitaskuld sama fallgryfjan og
Boulton hrasaði i fyrir 200 árum, er hann hugleiddi blessun
gufuorkunnar. Mönnum hættir til að binda bamsvonir við
hverja nýja uppgötvun; leggja við hana vonir sinar,
þröngsýni og hleypidóma um það, hvað æskilegt sé i lifinu
og ekki siður um hitt, hvem þroska við höfum til að breyta
þvi til betri vegar.
Tilraun til framtíðarsoár
Og vilji nú einhver reyna fyrir sér i framtiðarspá um það
sem biður, gerir hann best i að byggja á fenginni þekkingu
og reyna að framreikna það, sem hún felur i sér. Honum
verður siður til gagns að gera sér gátur um það, sem i
vændum er. Og raunar hefur framtiðarspá e.t.v. aldrei
verið auðveldari en nú, ef við höldum okkur innan réttra
marka. Ólga og gárur marka yfirborðið, sem að okkur snýr.
En farvegurinn undir niðri er einn, og um hann fellur jafn
og beinn straumur. Sá straumur á sér beina stefnu;
upptökin á hann i almennri nýtingu rafeindatækni, - i þeim
samruna tölvutækni og tölvuvæddra samskipta, sem er að
leiða okkur frá iðnaðarþjóðfélagi til nýs þjóðfélags, þar
sem upplýsingar eru burðarás.
Ef við beinum sjónum okkar að þeirri tækni, sem þegar er
nýtt og hyggjum jafnframt að samspili eftirspumar og
rannsókna, þá getum við brátt greint i megindráttum útlit
þess samfélags, sem ofan á yrði i samkeppni þjóðanna árið
1999 (eða 2009?). Köllum það landið X.
Landið X mun ekki sóa atgervi nokkurs manns i einhæf
verksmiðju- eða skrifstofustörf. Verksmiðjur verða mann-
- 17 -