Tölvumál - 01.02.1989, Blaðsíða 13
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANOS
Postholf 681
121 REYKJAVIK
Í&L
FÉLAGSFUNDUR
Skýrslutæknifélag íslands boðar til félagsfundar í Norræna húsinu
fimmtudaginn 2. mars 1989, kl. 16.00
Efni:
ÓLÖGLEG AFRITUN HUGBÚNAÐAR
- alvarlegt vandamál?
Það er hagur allra, bæði notenda og seljenda hugbúnaðar, að ekki séu
notuð ólöglega afrituð eintök forrita. Þannig er stuðlað að betri
þjónustu, örari nýjungum og lækkandi verði á hugbúnaði.
Á síðasta ári var fjallað um einn anga þessa máls á athyglisverðum
félagsfundi um höfundarétt. Með þessum fundi hyggjumst við færa
umræðuna nær daglegum veruleika og ræða þessa spurningu opinskátt.
LEITAST VERÐUR VIÐ AÐ SVARA ÞEIRRI SPURNINGU HVORT
ÓLÖGLEG AFRITUN OG DREIFING Á HUGBÚNAÐI SÉ ALVARLEGT
VANDAMÁL HÉR Á LANDI.
Framsögumenn:
Hjörtur Hjartar, varaformaður SÍ
Lúðvík Friðriksson, verkfræðingur
Haukur Nikulásson, sölustjóri
Kaffiveitingar verða kl. 16.00 á undan erindunum, sem hefjast kl.
16.15. Að því loknu gefst fundarmönnum tækifæri til fyrirspurna og
umræðna um efnið.
Fundarstjóri: Halldór Kristjánsson, formaður SÍ.
Stjórnin.