Tölvumál - 01.03.1989, Blaðsíða 5
■ Hversu alvarleg er
fjölföldun?
Fjölföldun hugbúnaðar er í flestum
tilvikum talin léttvæg synd en þar er
full þörf á viðhorfsbreytingu.
Stór hluti afritana er framkvæmdur
af fólki með tölvuþekkingu.
Búið er að leggja mikla vinnu í góð
forrit og þeir sem hafa unnið þá
vinnu eiga einhverja umbun skilið.
Með fjölföldun erum við í samein-
ingu að stefna atvinnu fjölda fólks í
voða með því að neita þeim um
greiðslu fyrir vinnu þeirra.
Hvað kostar að beita bákherbergis-
aðferðum við að aðlaga fjölfaldaðan
hugbúnað að okkar þörfum?
Árið 1984 var byrjað að selja PC
tölvur að ráði hér á landi og segja
má að þá hafi hafist mikil þróun á
hugbúnaði sem virðist hafa náð
hámarki, að minnsta kosti um
stundarsakir. í upphafi virtist ekki
mikið um affitanir. Þó held ég að
allir séu sammála um að það þótti
sjálfsagt að afrita leiki og ýmsan
ódýran, erlendan hugbúnað en inn-
lendur hugbúnaður var lítið
afritaður.
Það er skoðun mín að fjölföldun á
hugbúnaði hafi stórlega aukist á
árinu 1988 miðað við það sem var
árin á undan. Ég tel að ástæðurnar
séu:
• mikið af tölvum hefur verið
tekið í notkun á árunum 1987 og
1988
• stór hluti af tölvum sem voru
teknar í notkun voru viðbótar-
tæki
• margir lærðu á tölvu á þessum
u'ma
• hægt var að kaupa góðar bækur
yfir flest vinsæl forrit
• versnandi efnahagsástand
Tölvumál Mars1989
Fjölföldun á hugbúnaði er farin að
hafa áhrif á afkomu þeirra sem
vinna við hugbúnaðargerð og
aðlögun hugbúnaðar að íslenskum
aðstæðum.
■ WordPerfect
hugbúnaður
Ræðumaður hefur unnið að aðlögun
og þýðingum á WordPerfect hug-
búnaði á fjórða ár og er því við hæfi
að ræða aðeins reynsluna af því.
í dag hafa verið seld leyfi til að nota
WordPerfect á 1350 tölvum og
skjám á íslandi. Athuganir benda til
þess að til viðbótar séu um 4000
eintök af þessu forriti í notkun
(þ.e.a.s. 3 afrit á móti hverju
keyptu). Ef við reiknum aðeins
okkur til skemmtunar þá getum við
margfaldað 4.000 með kr. 30.000 og
hver ætli niðurstaðan sé?
Þetta fjölföldunarvandamál er þekkt
víðar. Á síðasta ári hætti WordPer-
fect algjörlega að þróa forrit fyrir
eina tölvutegund vegna þess að
forritið seldist ekki í Bandaríkjun-
um, flestir urðu sér úti um afrit.
Þetta er tölva sem hefur svo til
eingöngu verið notuð á heimilum og
af námsfólki.
■ Hverjir fjölfalda?
Meðal flestra fyrirtækja og stofnana
hefur tölvuvæðing átt sér stað
þannig að þau bæta við sig í litlum
einingum í einu. Meðal þessa hóps
er nokkuð stórt hlutfall sem hefur
ekki séð ástæðu til að kaupa fleiri en
eitt eintak af hugbúnaði á tölvurnar
um leið og keyptar eru nýjar tölvur.
Annar hópur eru einstaklingar sem
verða sér úti um hugbúnað til
heimilisnota eða til nota í skóla.
Þessi hópur hefur þau sérkenni að
fólkið sem verður sér úti um
hugbúnaðinn hefur frekar tíma til að
leysa vandamál sem koma upp í
sambandi við notkun hugbúnaðarins
og þurfa síður að leita aðstoðar
Frá félagsfundi:
Ólögleg
fjölföldun
hugbúnaðar
Lúðvík Friðriksson,
verkfræðingur
Fimmtudaginn 2. mars var
haldinn félagsfundur um
Ólöglega afritun hugbúnaðar.
Framsöguerindi fluttu
Haukur Nikulásson og
Lúðvík Friðriksson. Erindi
þeirra birtast hér nokkuð stytt
með leyfi höfundanna.
Fjölföldun hugbúnaðar
hefur aukist stórlega
undanfarið.
5