Tölvumál - 01.03.1989, Qupperneq 6
Tölvumál Mars1989
Þeir sem tapa mestu á
ólöglegri afritun
hugbúnaðar eru þeir
sem stunda slíka
afritun sjálfir.
Höfundar hugbúnaðar
þurfa að fá aukna
lagavernd gagnvart
ólöglegri fjölföldun.
sérfræðinga. Einnig er nokkuð
algengt meðal fólks í þessum hópi
að fjárráðin leyfi einfaldlega ekki
mikil útgjöld.
Þriðji hópurinn sem ég vil nefna eru
þeir sem hafa ekki einu sinni fyrir
því að kaupa hugbúnað til að nota í
atvinnuskyni. Þessi hópur fer sem
betur fer minnkandi, en í þeim fyrri
fer fjölgandi.
■ Löggjöf
Löggjöfin er mjög fátækleg um
vemd gegn fjölföldun hugbúnaðar.
Það er skýrt tekið fram í höfundar-
réttarlögum að hugverk hverskonar
em vemduð. Löggjöfin er fyrst og
fremst miðuð við prentað mál og
þegar núverandi lög vom samþykkt
var fjölföldun hugbúnaðar ekki
vandamál.
Ekki er alveg ljóst hvemig eigi að
framfylgja höfundarréttarlögum og
leikur vafi á því að yfirvöld fáist til
að taka á málum varðandi ólöglega
afritaðan hugbúnað. Gætu eigendur
höfundarréttar beðið Lögreglunaað
fara inn í fyrirtæki og rannsaka
hvort ólöglega fjölfaldaður hugbún-
aður sé til staðar, á svipaðan hátt og
var gert í sambandi við myndböndin
hér um árið, eða þarf að höfða eink-
amál gegn þeim sem verða uppvísir
að ólöglegri afritun hugbúnaðar?
Núverandi löggjöf er frumstæð,
óhagstæð framleiðendum hugbún-
aðar og það er ekki fýsilegur kostur
að leysa fjölföldunarmál fyrir dóm-
stólum. Svo virðist sem þróunin til
að breyta löggjöf til að auka vemd
höfunda hugbúnaðar sé frekar hæg.
Aðeins eitt land, Kanada, í hinum
vestræna heimi hefur sett lög þar
sem þungar refsingar eru viðurlög
við ólöglegri afritun hugbúnaðar.
Ég legg á það áherslu að ég tel að
Skýrslutæknifélagið ætti að beina
kröftum sínum að því að fá lögum
um höfundarrétt breytt þannig að
höfundar hugbúnaðar fái aukna
vernd gagnvart ólöglegri fjölföldun.
■ Hverjir tapa á
fjölföldun?
Segja má að einn þeirra sem tapar sé
Ríkissjóður. Hugbúnaður ber 12%
söluskatt, fyrirtæki þurfa að greiða
launaskatt fyrir starfsfólk sitt og þær
athuganir sem ég hef gert benda til
þess að undanfarin ár hafi fá hug-
búnaðarfyrirtæki haft nægar tekjur
til að geta skilað tekjuskatti til
ríkisins.
Framleiðandi hugbúnaðar tapar
einnig, því tekjur af hugbúnaði
þurfa að standa undir þróunar-
kostnaði. Minni tekjur verða úl
þess að ekki er hægt að veita eins
góða þjónustu.
Sá sem tapar mestu er sá sem notar
fjölfaldaðan hugbúnað. Hann lendir
oftast í töluverðum aukakostnaði til
að komast hjá því að kaupa hugbún-
aðinn og halda kerfum gangandi,
sem ekki þyrfti ef eðlilega væri
gengið frá málum. Ég get nefnt
fjölda dæma um fyrirtæki sem hafa
greitt í vinnulaun upphæðir sem em
margfaldur kostnaðurinn við að
kaupa hugbúnaðinn, en að sjálf-
sögðu veit ég einnig um mörg dæmi
þar sem menn hafa sparað sér stórfé
með fjölföldun.
■ Hvemig er hægt að fá
fyrirtæki og stofnanir til
að bæta ráð sitt?
Með aukinni þekkingu á tölvum
gerir fólk sér betur grein fyrir gildi
hugbúnaðar og það metur ffekar
hugbúnaðarkaup út frá ávinningnum
af því að eiga góð forrit.
Mín reynsla er sú að mikilvægt er
að byggja upp góðan trúnað milli
framleiðanda hugbúnaðar og kaup-
anda. Þeir sem velja að fá lögleg
eintök af hugbúnaði í stað ólöglega
afritaðra eintaka þurfa að geta gert
það án eftirkasta. í reynd hafa ýmis
fjölföldunarmál verið leyst nú þegar
án þess að frá því verði greint nánar.
6