Tölvumál - 01.03.1989, Page 16
Tölvumál Mars1989
Geisladiskar
Þýtt og endursagt af
Sigrúnu Gunnarsdóttur og
Þórunni Pálsdóttur
Seguldiskur
Sammiðja rásir
Fastur snúningshraði
Geisladiskar eða CD-ROM (Com-
pact Disk Read Only Memory) er
mikilfengleg nýjung til geymslu
upplýsinga. Framleiðsla þessara
diska er vaxandi iðnaður og hefur
framleiðslukostnaðurinn lækkað
mjög mikið síðan þessi tækninýjung
leit fyrst dagsins ljós sem var árið
1985.
Aðalkosturinn við geisladiska er hið
mikla magn af gögnum sem hægt er
að geyma umfram það sem hægt er
á venjulegum geymslumiðlum.
Stærsti gallinn er hins vegar að
einungis er hægt að skrifa einu sinni
á þá, þeim gögnum sem hafa verið
sett á diskinn verður ekki breytL
■ Uppbygging
Einn geisladiskur getur geymt um
það bil 600 megabæti af stafrænum
gögnum. Á einum geisladiski er því
hægt að geyma upplýsingar sem
samsvara:
• 150.000 blaðsíðum af texta
• Innhaldi 1500 staðlaðra 5.25
tommu skífa
• 3200 hillumetrum af bókum
Helsti munur á lestri gagna af
geisladiskum og seguldiskum er sá
að við lestur á geisladiskum er not-
ast við fastan línulegan hraða
Geisladiskur
Rásir á spríal
Fastur línulegur hraði
(CLV), þ.e. diskurinn snýst hraðar
þegar hausinn er nær miðju disksins
en við jaðra hans. Við lestur á
seguldiskum er hins vegar notast við
fastan snúningshraða (CAV).
Annar grundvallarmunur er sá að
blokkum af gögnum er raðað eftir
samfelldum spíral á geisladiski. Á
seguldiskum eru blokkirnar aftur á
móti geymdar á sammiðja rásum
(track). (Sjá mynd.) Þegar lestrar-
hausinn á seguldisknum er stað-
settur á ákveðinni rás þá er hægt að
lesa öll gögn á rásinni án þess að
breyta um staðsetningu. En við
lestur á geisladiskum þarf lestrar-
hausinn að færa sig út á við eftir
spíralnum.
Þriðji munurinn er flutningshraði á
gögnunum. Hann er um það bil 180
kílóbæti á sekúndu á geisladisk en
250 til 300 kílóbæti á sekúndu á
hörðum disk.
■ Notkun
Til þess að nota geisladiskana þarf
sérstakt spjald í vélina og síðan er
hægt að tengja eitt eða fleiri geisla-
drif við spjaldið. í slíkt drif er hægt
að setja geisladiskana sem eru yfir-
leitt 5.25 tommur að stærð. Disk-
amir eru úr plasti og eru geymdir í
hylki sem ver sjálfan diskinn fyrir
hnjaski.
Geisladiskar eru aðallega notaðir á
tvo máta. Annars vegar er hægt að
kaupa tóma diska sem eru notaðir til
að geyma gögn, til dæmis öryggis-
afrit. Hins vegar eru tilbúnir diskar
sem eru keyptir með gögnum á, til
dæmis alfræðiorðabækur, textar úr
biblíunni o.fl.
Tilbúna geisladiska er hægt að
kaupa frá ýmsum aðilum. Geisla-
diskar henta vel til geymslu eða
dreifingar á stafrænum gögnum -
texta, hljóði, teikningum eða video-
myndum. Sérstaklega ef magnið af
gögnum er á bilinu 100 til 650 MB
og gögnin eru tiltölulega stöðug,
það er þarfnast sjaldan uppfærslu.
16