Tölvumál - 01.03.1990, Qupperneq 5
Tölvumál Mars 1990
Oddur var annar formaður SÍ og
vann gott starf að uppbyggingu þess
og hefur ávallt verið tilbúinn að
vinna að málefnum
Skýrslutæknifélagsins.
Það er ánægjulegt að geta veitt Oddi
þessa viðurkenningu.
Átak ífélagaöflun
Síðasta ár var félaginu að mörgu
leyti gott. Rekstrarafgangur varð og
félögum fjölgaði. Brátt mun hafið
nýtt átak í félagaöflun með það fyrir
augum að efla félagið enn. Félagar
SÍ eru hvattir til að fá
samstarfsmenn sína og vini til liðs
við félagið. Skýrslutæknifélag
íslands býður fjölbrey tta dagskrá
ráðstefna og félagsfunda auk þess
sem það gefur út Tölvumál. Þá
vinnur félagið að mörgum
hagsmunamálum greinarinnar án
þess að hátt fari.
Skýrslutæknifélagið er vettvangur
frjórrar umræðu um tölvu- og
upplýsingatæknimál og hagur okkar
allra að það sé sem öflugast.
Bjartara f ramundan?
Það er mat margra sem starfa að
tölvumálum að nú sé betri tíð en
verið hefur um langt skeið. Er það
vel ef svo er því það er lykilatriði að
í landinu þrífist öflugur markaður
fyrir vél- og hugbúnað og þjónustu
á sviði tölvu- og upplýsingatækni.
Eitt grundvallaratriði velmegunar er
að hér þrífist öflugur hugbúnaðar-
og þjónustugeiri á sviði
upplýsingatækni sem getur stutt við
aðrar atvinnugreinar landsmanna og
aukið framleiðni og afköst sem
víðast.
Hugbúnaöarráðstefna
8. mars vel heppnuð
Fjölbreytt ráðstefna var haldin á
vegum félagsins 8. mars
síðastliðinn. Dagskráráðstefnunnar
var sniðin fyrir stjómendur ekki
síður en þá sem vinna við
hugbúnaðarsmíð. Á ráðstefnunni
voru erindi sem varða þjónustu og
samskipti, fjallað var um ný viðhorf
í hugbúnaðargerð og athyglisverðan
íslenskan hugbúnað. Þá var
sérstakur dagskrárliður helgaður
stöðlun í hugbúnaðargerð.
Félagið hefur nú staðið fyrir tveimur
hugbúnaðarráðstefnum á tæpu ári
og hafa báðar mælst vel fyrir hjá
félagsmönnum.
Vel sóttur Unix fundur
Fundur um Unix sem valkost við
tölvuvæðingu var haldinn 28. mars
síðastliðinn. Fundinn, sem haldinn
var á Hótel Loftleiðum, sóttu
tæplega 100 manns. Fjörugar
umræður spunnust á fundinum um
erindi þeirra Maríusar Ólafssonar,
RHÍ, og Douglas Brotchie, SKÝRR.
Var ljóst af umræðum að menn voru
ekki á eitt sáttir um ágæti Unix,
fremur en annarra stýrikerfa.
Ráðstefna um
stefnumörkun 6.
september
Skýrslutæknifélagið efnir til
dagsráðstefnu 6. september
næstkomandi um stefnumörkun í
tölvu- og upplýsingamálum
fyrirtækja. Mjög er vandað til
dagskrár og er þegar búið að tryggja
komu þriggja erlendra sérfræðinga
til að halda erindi. Þeir eru Tim
Lincoln frá IBM, Bill King frá Emst
& Young, þekktu ráðgjafafyrirtæki,
og Carl-Johan Gerlach frá PK
bankanum í Danmörku.
Allar líkur eru á að fleiri erlendir
fyrirlesarar muni koma hingað til að
fjalla um þetta mikilvæga mál, en
nánar verður fjallað um ráðstefnuna
í næsta tölublaði Tölvumála.
Stjórn Skýrslutœknifélags íslands