Tölvumál - 01.03.1990, Page 14

Tölvumál - 01.03.1990, Page 14
Bókasafn Kópavogs Tölvukerfi Ragnheiður Kjærnested Frá ritstjóra: Hér birtast valdir hlutar úr inngangs- og lokaköflum ritgerðar, semRagnheiður Kjœrnested hefur samið um tölvukerfi bókasafns Kópavogs. Bókasafn Kópavogs hófútlán með Ijóspenna tengdum tölvu 1. október 1987. Tölvumál Mars 1990 Bókasafn Kópavogs varð langfyrst íslenskra bókasafna að taka tölvutæknina í sína þjónustu. Hvatamaður að hönnun tölvukerfisins er Hrafn Harðarson bæjarbókavörður í Kópavogi. Til liðs við sig fékk hann Magnús Bjamason, þáverandi bæjarbókara. Hann hannaði skráningarforrit á IBM S/34 og seinna á S/36 fyrir bókaskrá, plötuskrá og svokallaða Fróðlind sem er efnisorðalykill tímarita, bóka og fleiri gagna og auðveldar hvers kyns heimilda- og upplýsingaleit. Næst keypti safnið WSF orðleitarkerfið frá IBM, en það er afar einfalt og hraðvirkt og auðvelt að komast að skránni á marga vegu. Þetta kerfi hefur litla umfjöllun og kynningu fengið hér á landi enn sem komið er, en gæti hentað mjög víða og kostar sáralítið. Síðan kom Magnús á sambandi milli bókasafnsins og tölvu Kópavogsbæjar. Magnús hefur sett upp ílesta þætti tölvukerfisins, núna síðast Query-svarkerfi (Svari) og Emulation, eða samskiptaforrit fyrir PC og PS-tölvur. Hugmyndin að tölvuvæðingu bókasafnsins er frá 1980-81, en ekki var hægt að hrinda henni í framkvæmd þegar í stað vegna fjárskorts. Nokkurrar tregðu gætti í sambandi við fjárveitingu til kaupa á útstöð (skjá og lyklaborði), en Hrafn Harðarson benti á að gömlu skjalaskápamir væru að springa undan spjaldskránum og fljótlega þyrfti að bæta við skápum. Auk þess þyrfti að kaupa ritvél fyrir bókasafnsfræðing sem var að hefja störf við safnið. Mismunurinn var útstöðinni í hag og hún var keypt. Þá var komið að því að hanna útlánaforrit fyrir safnið sem byggt yrði á skrám safnsins yfir safnkostinn. Það var fyrirtækið Hugver, Ari Richardsson og Björgvin Gylfason sem hönnuðu útlánakerfið í samvinnu við bókasafnsfræðinga á Bókasafni Kópavogs, og hefur kerfið hlotið heitið Bókver. Fljótlega varð spjaldskráin óþörf og tölvuskráningin mun fljótlegri en handvirka spjaldaskráningin með ritvél. Hægt er með orðleitarkerfinu að leita að höfundi, titli og marktölum á mjög hraðvirkan og öraggan hátt, en áður var aðeins um að ræða seinlega leit í spjaldskrá. Þarna var því kominn mjög góður aðgangur að skránni. Það tók ár að skrá allan safnkostinn inn á tölvuna. Hver bók er síðan skráð jafnóðum og hún berst safninu og það þýðir að kominn er aðgangur að henni strax þó spjaldskrárspjöldin frá Þjónustumiðstöð hafi ekki borist. Þar af leiðandi var ljóst að engin nauðsyn var að kaupa spjöld og halda við spjaldskrá. Það var ákveðið að treysta eingöngu á tölvuna þótt sumir hafi álitið það dirfsku. Bókasafn Kópavogs hóf útlán með ljóspenna tengdum lölvu 1. október 1987. Ljóspenninn vinnur þannig að bækur og önnur gögn safnsins eru númeruð með svokölluðu rimlaletri (bar code) og skírteini lánþega einnig (fæðingamúmer/ kennitala, sem þýðir ýmsa möguleika á tölfræðilegri úrvinnslu eftir aldri, kyni o.fl.). Ljóspennanum er síðan rennt yfir rimlaletrið á skírteininu og því gagni sem lána á út og þar með veit tölvan hver fær að láni hvaða bækur, plötur eða myndbönd. Tölvukerfið í Bókasafni Kópavogs hefur þegar sannað ágæti sitt, sérstaklega hvað varðar innheimtu vanskilabóka, útreikning á vanskilasektum og almennt eftirlit með útlánum og skilum safngagna. Kerfið hefur í för með sér mikla hagræðingu og sparnað og gerir starfsfólkinu kleift að veita . tri upplýsingaþjónustu og aðstoo við lánþega. Auðveldlega er hægt að fylgjast með nýtingu einstakra bóka og betur gengur að innhcimta 14

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.