Tölvumál - 01.03.1990, Blaðsíða 8

Tölvumál - 01.03.1990, Blaðsíða 8
Tölvumál Mars 1990 Nefndir SÍ hefur átt fulltrúa í nokkrum nefndum og á vegum þess hafa starfað á árinu staðlanefnd, samstarfshópur um þýðingar á hugbúnaði, ritnefnd og orðanefnd . Orðanefnd skipa: Sigrún Helgadóttir.formaður Örn Kaldalóns Baldur Jónsson Þorsteinn Sæmundsson Formaður staðlanefndar er Auðun Sæmundsson, Lúðvík Friðriksson veitti formennsku samstarfshópi um þýðingar á hugbúnaði og ritstjórar Tölvumála eru þeir Helgi Þórsson og Ágúst Úlfar Sigurðsson. Nokkrar breytingar hafa orðið á ritnefnd á árinu og hafa alls ellefu manns setið í ritnefnd. Ritnefnd skipa nú: Helgi Þórsson, ritstjóri Agúst Ulfar Sigurðsson, ritstjóri Daði Jónsson Hólmfríður Pálsdóttir SnorriAgnarsson. Lengst af árinu var Þórunn Pálsdóttir ritstjóri. Ritstýrði hún blaðinu af mikilli röggsemi og ákveðni og á hún mikinn heiður skilinn fyrir sinn þátt í þeim breytingum sem orðið hafa á blaðinu. Undir lok ársins íluttist hún út á land og varð því að láta af ritstjóm. Ritnefnd og fyrrverandi ritnefndar- mönnum, þeim Sigrúnu Gunnarsdóttur, Guðríði Jóhannesdóttur og Guðbjörgu Sigurðardóttur þakka ég öllum fyrir óeigingjamt starf í ritnefnd. Auk þeirra hafa formaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri SÍ komið aðeins við sögu. Fulltrúi okkar í UT-staðlaráði er Helgi Jónsson, en Guðjón Reynisson og Bjami P. Jónasson eru tilnefndir í tölvunefnd af hálfu SÍ. IFIP tengiliður okkar er Anna Kristjánsdóttir, Lilja Ólafsdóttir, Hjörtur Hjartar og Kjartan Ólafsson hafa verið fulltrúar okkar í stjórn NDU. Lilja lét í júni af formennsku í NDU svo og hætti Hjörtur Hjartar setu í stjóm NDU í september. Kjartan Ólafsson er nú aðalfulltrúi okkar í stjórninni. Félagskjömir endurskoðendur hafa verið Jakob Sigurðsson og Sigurjón Pétursson. Stjóm hefur tekið ákvörðun um skipun siðanefndar og hefur Oddur Benediktsson fallist á að veita nefndinni forsæti. Félagamál Félögum hefur fjölgað á árinu. Þannig vom félagar um miðjan janúar 1990 alls 764 en vom 618 1. febrúar 1989. í síðastnefndu töluna vantar nema úr HI og gjaldfría félaga. Ef þeim er sleppt í viðmiðuninni er fjöldi félaga nú 666. Fjögun er því nær 8% á starfsárinu. Þá hefur fyrirtækjum fjölgað úr 175 í 179. Erþessi þróun mjög ánægjuleg. Félagsfundirog heimsóknir Á árinu voru haldnir fjórir félagsfundir og eitt fyrirtæki heimsótt: Ólögleg afritun hugbúnaðar síðdegisfundur 2. mars, 20 þátttakendur Open Systems Foundation síðdegisfundur 6. apríl, 39 þátttakendur Tölvuveirur og varnir gegn þeim hádegisverðarfundur 11. október, 104 þátttakendur Virðisaukaskattur og tölvumál hádegisverðarfundur 15. nóvember, 157 þátttakendur Mjólkursamsalan tækniheimsókn 29.júní, 22 þátttak- endur. Heildarþátttaka á félagsfundum er því 342 félagar eða 68 að meðaltali. Stjóm varð fljótlega ljóst að gera varð breytingu á því fyrirkomulagi sem ríkt hafði um langt skeið að hafa fundi síðdegis. Aðsókn að þeim fundum var orðin mjög dræm. Því var ákveðið að halda fundina í hádeginu og bjóða léttan hádegis- verð. Þetta fyrirkomulag hefur reynst mjög vinsælt og hefur þátt- taka mestorðið 157. Bryddað var upp á þeirri nýjung að heimsækja fyrirtæki og mæltist hún vel fyrir. Áframhald verður á heimsóknum á nýju starfsári. Fyrirlesumm á fundum skal hér þakkað sérstaklega fyrir þeirra framlag. Ráðstefnur Fjórar ráðstefnur hafa verið á vegum SÍ á starfsárinu: Hagnýt tölvusamskipti haldin 17. maí og sóttu hana 154 þátttakendur. Haldnir voru 6 fyrirlestrar. Hugbúnaðargerð, bætt vinnubrögð, breytt viðhorf haldin 25. október og sóttu ráðstefnuna 123 þátttakendur. Haldnir vom 7 fyrirlestrar. Einmenningstölvur - Afl til átaka ET dagur SÍ var haldinn 8. desember með 152 þátttakendum. Fyrirlesarar voru 7. Framtíð í ljósi fortíðar, ársfundur SÍ var haldinn 26. janúar í tengslum við aðalfund félagsins og sóttu hann 110 þátttakendur. Fyrirlesarar voru 8. Samanlagt hafa því 539 sótt ráðstefnur á vegum félagsins eða 134 að jafnaði. Ráðstefnur SÍ eru vinsælar og er það fyrst og fremst að þakka góðum undirbúningi þeirra sem að þeim hafa staðið og frábærum fyrirlesurum. Alls hafa 38 haldið fyrirlestra og erindi á ráðstefnum og fundum SÍ á starfsárinu. Hafi þau öll þökk fyrir sitt framlag. Námskeið SÍ hefur um sinn hætt námskeiðshaldi fyrir félagsmenn sína. Bæði er að framboð hefur aukist mikið og svo hitt að nokkur áhætta var því samfara að halda námskeið. Ekki er þó útilokað að félagið muni standa fyrir námstefnum og námskeiðum á næstu árum. 8

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.