Tölvumál - 01.03.1990, Blaðsíða 6
Tölvumál Mars 1990
Oddur
Benediktsson,
heiðursfélagi
SÍ
Hinn 26. janúar síðastliðinn var
Oddur Benediktsson sæmdur
titlinum heiðursfélagi SÍ fyrir störf
sín að tölvu- og upplýsingatækni-
málum hér á landi. Ekki síst var litið
til brautryðjenda- og uppbyggingar-
starfs hans að því er varðar nám í
tölvunarfræðum við Háskóla
íslands. Þar á hann, að öðrum
ólöstuðum, stærstan hlut að.
Það var því vel við hæfi að afhenda
honum skjal til staðfestingar kjörinu
á sameiginlegri árshátíð SÍ, Félags
tölvunarfræðinga og KERFÍS.
Oddur er fæddur 5. júní 1937 í
Reykjavík. Hann varð stúdent frá
MR 1956, lauk vélaverkfræðiprófi
1960 og varð doktor í hagnýttri
stærðfræði frá Rensselear
Polytechnic Institute í Troy, New
York, árið 1965.
Hann starfaði hjá Bell Telephone
Laboratories árin 1961-1962 en var
hjá Reiknistofnun HÍ1964-1969.
Oddur var OECD styrkþegi 1968-
69. Árin 1969-72 var hann
starfsmaður IBM á íslandi og sat m.
a. í stjóm þess.
Frá 1972-1973 starfaði hann í
tæknideild SKÝRR en frá 1973
hefur hann verið hjá Háskóla
íslands, fyrst sem dósent en síðan
sem prófessor frá 1982. Hann var
aðalskipuíeggjandi náms í
tölvunarfræði en frá 1989 hefur
tölvunarfræðin verið sérstök skor. Á
þriðja hundrað tölvunarfræðingar
hafa útskrifast frá upphafi.
Oddur hefur ritað fjölda greina og
skýrslna og haldið fjölmörg erindi á
ráðstefnum hér á landi og erlendis.
Þá hefur hann unnið að rannsóknum
á tölvusviði m.a. að upplýsinga-
kerfum fyrir skipstjóra,
gæðastýringu í hugbúnaðargerð og
fjölmargt annað.
Þá hefur hann verið ráðunautur
fjölmargra fyrirtækja um
upplýsingatæknimál þeirra s.s.
Reiknistofu bankanna, Landsbanka
íslands, Fasteignamats ríkisins og
ýmssa ríkisstofnana. Hann stofnaði
fyrirtækið Tölvuþekkingu 1984 til
hugbúnaðargerðar. Það er nú í eigu
Ríkisspítala og Tækniþróunar. Eitt
af verkum þess fyrirtækis er
krabbameinskerfi LSP en það hefur
m.a. verið selt til Danmerkur.
Oddur er nú formaður
Upplýsingatækni-staðlaráðs og
hefur setið í fjölda nefnda og ráða
innlendum jafnt sem erlendum.
Oddur er einn af stofnendum
Skýrslutæknifélags íslands og annar
formaður þess. Hefur hann unnið
gott starf að málefnum félagsins og
verið manna viljugastur að styðja
félagið og styrkja með ýmsum
hætti.
Hér hefur fátt eitt verið talið af
verkum Odds en ekki fer á milli
mála að hann er lykilmaður í þróun
upplýsingatækni hér á landi.
6