Tölvumál - 01.03.1990, Síða 7
Tölvumál Mars 1990
Halldór Kristjánsson
Skýrsla
formanns
árið 1989
Flutt á aðalfundi S(
27.janúar
Inngangur
Hér verður gerð grein fyrir starfsemi
Skýrslutæknifélagsins á liðnu
starfsári, sem er hið 21. í sögu
félagsins. Starfsemin hefur verið
með miklum blóma og skilað
hagnaði. Þá hefur félögum fjölgað
nokkuð.
Stjórn
Starf stjómar hófst strax eftir
aðalfund sem haldinn var 18. janúar
1989. Nýkjörin stjóm hélt sinn
fyrsta stjómarfund 3. febrúar.
Stjórnina skipuðu í upphafi
starfsárs:
Halldór Kristjánsson.formaður
Hjörtur Hjartar, varaformaður
BjarniJúlíusson, ritari
Kjartan Olafsson, gjaldkeri
Snorri Agnarsson, skjalavörður
Guðbjörg Sigurðardóttir,
meðstjórnandi
Anna Kristjánsdóttir, varamaður og
Jón Gunnar Bergs, varamaður
Haldnir hafa verið 19 stjómarfundir
á starfsárinu auk fjölda nefndafunda
sem stjórnarmenn hafa sótt.
Hjörtur Hjartar, varaformaður,
fluttist búferlum til Þýskalands á
árinu og sagði því af sér stjómar-
störfum. Tók Anna Kristjánsdóttir
við embætti varaformanns í lok
september. Hirti þökkum við
giftudrjúg störf fyrir SÍ og óskum
honum góðs gengis á nýjum
vettvangi.
Fjölmörg mál hafa verið til
umfjöllunar á stjómarfundum.
Minnisstæð er umfjöllun og umsögn
um lagafrumvarp um skráningu og
meðferð persónuupplýsinga. Þá
óskaði menntamálaráðuneyúð
umsagnar um frumvarp til laga um
lögverndun starfsheitanna tölvunar-
fræðingur og tölvufræðingur. Var
einróma samþykkt að styðja það
mál.
Stjóm hefur unnið mikið starf að
mótun framtíðarstefnu SÍ og er þess
þegar farið að gæta. Lögð hafa verið
drög að stofnun siðanefndar SÍ sem
hægt verður að skjóta álitamálum
til. Þá hefur verið mikil umræða um
stofnun tæknihópa innan félagsins
og aukið samstarf við önnur félög
með lík markmið.
Stjórnarmenn hafa lagt á sig mikið
og óeigingjarnt starf og skal þeim
hér þakkað sérstaklega fyrir það.
Nú kveður stjómina Jón Gunnar
Bergs og Hjörtur Hjartar hætti fyrr á
árinu eins og áður er getið. Þessum
ágætu félögum þökkum við
samstarfið með þeirri ósk að við
megum eiga þá að síðar.
Skrifstofan
Skrifstofa SÍ er til húsa að
Hallveigarstíg 1 og búum við þar í
sambýli við FÍI. Hefur það samstarf
verið gott.
Nýr framkvæmdastjóri var ráðinn á
árinu, Helga Erlingsdóttir, í stað
Kolbrúnar Þórhallsdóttur sem hætti
síðastliðið vor.
Skýrslutæknifélagið hefur átt því
láni að fagna að framkvæmdastjórar
þess hafa verið traustir og
samviskusamir starfsmenn en ekki
fer hjá því að mikið af daglegu
amstri mæði á framkvæmdastjóra.
Skipt var um tölvubúnað á
skrifstofunni á árinu og keypt IBM
PS/2 í stað eldri IBM PC XT tölvu.
Þá var keyptur RÁÐ hugbúnaður frá
Víkurhugbúnaði fyrir félagatal og
fjárhagsbókhald. Vegna útgáfu
blaðsins verður nauðsynlegt að
kaupa geislaprentara á næsta
starfsári sem ræður við PostScript
svo og umbrotshugbúnað.
Fjármál
Eins og ársreikningur félagsins
sýnir var rekstur félagsins með
miklum ágætum árið 1989. Tekjur
umfram gjöld eru 571.991 og er þá
búið að greiða niður tæplega
260.000 króna skuld frá ÍSDATA
86. Heildarrekstrartekjur eru tæpar
fjórar milljónir.
Þetta er ekki síst að þakka fram-
kvæmdastjóra og gjaldkera sem
lagst hafa á eitt til að gera þetta
kleift.
Endurskoðun hf hefur endurskoðað
bókhald SÍ.