Tölvumál - 01.03.1990, Page 9
Tölvumál Mars 1990
Árshátíð
Fyrsta árshátíð félagsins verður
haldin 26. janúar 1990. Er hún
haldin í samvinnu við Félag
tölvunarfræðinga og KERFÍS.
Stefnir í 90 manna þátttöku.
Er ánægjulegt að samstarf skuli hafa
tekist um þessa hátíð og von mín sú
að þetta sé fyrsta skrefið í nánara
samstarfi þessarra félaga.
Útgáfumál
Útgáfa Tölvumála hefur verið
þungamiðja í starfsemi SÍ um langt
skeið. Tölvumál eru nú eina
sértímaritið um tölvumál sem gefið
er út reglulega hér á landi.
í upphafi starfsárs var tekin sú
ákvörðun í stjóm SÍ að stækka brot
blaðsins og endurhanna útlit þess.
Þótti það nauðsynlegt til að svara
kalli tímans.
Þær breytingar mæddu, að öðrum
ólöstuðum, mest á Guðbjörgu
Sigurðardóttur og Þórunni
Pálsdóttur ritstjóra. Unnu þær
þrekvirki á stuttum tfma og ekki
verður annað sagt en að vel hafi til
tekist.
Blaðið er nú mun fjölbreytta að
efnisvali og skemmtilegar upp sett
en áður.
Komið hafa út 7 eintök blaðsins alls
140 síður. Efni hefur verið fjölbreytt
eins og áður sagði og hafa birst alls
58 greinar og pistlar í þessum sjö
eintökum.
Höfundum og ritnefnd skulu færðar
þakkir fyrir mikið og gott starf.
í vaxandi mæli skila fyrirlesarar á
ráðstefnum félagsins efni fyrirlestra
í greinarformi til blaðsins. Er þetta
mikilvæg heimild og þakkarvert
framtak.
Þá hafa fastir pistlar verið í
Tölvumálum s.s. frá formanni, frá
orðanefnd og fyrirtækjakynningar.
Því miður var blaðið rekið með
halla á síðasta starfsári en það stafar
fyrst og fremst af minnkuðum
auglýsingatekjum.
Er það miður því ekki gefst betri
miðill til auglýsinga en Tölvumál.
Hann nær beint til þess markhóps
sem mestu skiptir í íslenskum
tölvuheimi. Þá eru Tölvumál send
þingmönnum og dagblöðum.
NDU
SÍ er aðili að Nordisk Data Union,
samtökum norrænu skýrslutækni-
félaganna. Hefur starf okkar þar
verið vel metið og á þessu ári lauk
tveggja ára NDU formennsku Lilju
Ólafsdóttur, fyrrum gjaldkera SÍ.
Var ánægjulegt að eiga þess kost að
sitja stjómarfund NDU í júní þegar
Lilja lét af formennsku og finna
þann hlýhug sem félagar okkar á
Norðurlöndum bera til hennar.
Daninn Carl Johan Gerlach verður
formaður NDU næstu tvö árin en
síðan taka Norðmenn við
embættinu.
Starf okkar í NDU bar nokkum
keim af þeim breytingum sem orðið
hafa á stjóminni. Þegar Lilja hætti
sem formaður NDU tók Hjörtur
Hjartar við sem aðalfulltrúi okkar
og síðan Kjartan Ólafsson þegar
Hjörtur fluttist af landi brott í lok
september.
Óhætt er að segja að NDU verði í
brennidepli á næsta ári því þá
verður haldinn hér stjómarfundur
NDU og hugsanlega einnig
samnorræn ráðstefna um aukið
frelsi í síma- og fjarskiptamálum.
Verður boðið til þeirrar ráðstefnu
stjómendum og þingmönnum frá
Norðurlöndum.
NDU hefur leitað hófanna hjá SÍ um
aðstoð við að halda slíka ráðstefnu
hér á landi.
Þá er að hefjast norræn samkeppni
um efnið “Konur og upplýsinga-
tækni”. Samkeppnin er styrkt af
Norðurlandaráði og hafa frændur
okkar í Noregi umsjón með henni.
Eins og mörg ykkar þekkja, þá er
greiddur ferðakostnaður stjómar-
manna í NDU vegna stjómarfunda.
Þátttakan í NDU hefur því til þessa
verið okkur útlátalítil.
Nokkur breyting varð á þessu ári
varðandi kostnað okkar af NDU.
NDU er fjármagnað með hlutfalli af
vergum tekjum af Norddata
ráðstefnunni. Norðurlöndin, að
íslandi undanskildu, halda þessa
ráðstefnu til skiptis og leggja því sitt
af mörkum til NDU með þessum
hætti.
Við höfum ekki aðstöðu til þess að
halda slíkan atburð hér, en ÍSDATA
86 var tilraun til þess að leggja
eitthvað af mörkum til NDU. Eins
og kunnugt er varð tap af þeirri
ráðstefnu og lauk niðurgreiðslu þess
á þessu starfsári.
NDU gaf okkur eftir sinn hlut af
þátttökugjöldum vegna ÍSDATA.
Af þeim sökum höfum við ekki lagt
neitt fé af mörkum til NDU.
Stjóm SÍ bauð NDU því að greiða
kostnað sinn af verunni í NDU með
því að greiða ferðir og hóteldvöl
fyrir fulltrúa íslands. Var samþykkt
að þetta fyrirkomulag yrði viðhaft
þar til um annað semdist.
Ég tel mikilvægt að við höldum
sambandi á upplýsingatæknisviði
við grannþjóðir okkar og njótum
góðs af þeirra starfsemi alveg eins
og við miðlum þeim af okkar.
NDU er ágætur vettvangur til þess.
Norddata
í júní síðastliðnum var Norddata
ráðstefnan haldin í Kaupmannahöfn.
Þrír stjómarmenn, ásamt Lilju
Ólafsdóttur formanni NDU, sóttu
stjómarfund NDU í tengslum við
ráðstefnuna en um 20 íslendingar
tóku þált í ráðstefnunni.
Á henni fluttu Haukur Oddsson og
Þorgeir Pálsson ágæt erindi auk þess
sem tvö okkar stjómuðu ákveðnum
ráðstefnuhlutum.
Nokkur vonbrigði eru að aðsókn að
Norddata fer minnkandi. Er þar
vafalaust ýmsu um að kenna. Þykja
margir fyrirlestrar auglýsa um of
fyrirlesarann og fyrirtæki hans á
kostnað efnis fyrirlestranna.
Þá er ljóst að framboð af ráðstefnum
hefur aukist mikið á síðustu árum
og mikilvægi Norddata því
minnkað.
Norddala 90 verður að þessu sinni
haldin í Gautaborg dagana 11.-14.
júní í sumar.
Ég vil nota þetta tækifæri lil þess að
hvetja félaga SÍ til að sækja
ráðstefnuna.
9