Tölvumál - 01.03.1990, Blaðsíða 10
Tölvumál Mars 1990
IFIP
Anna Kristjánsdóttir er fulltrúi
okkar gagnvart Intemational
Federation for Information
Processing, en SÍ er aukaaðili að
samtökunum.
Á starfsárinu bar hæst IFIP
ráðstefnu sem hér var haldin og bar
heitið “Educational Software at
secondary level”. Hafði Anna
forystu í undirbúningsnefnd á
íslandi.
Var það samdóma álit þeirra sem
þátt tóku að ráðstefnan hefði verið
með eindæmum vel heppnuð svo og
undirbúningur allur til fyrirmyndar.
í þakklætisskyni var Önnu boðin
seta í dagskrárnefnd World
Conference on Computers in
Education sem verður í Sidney árið
1990 svo og var henni boðin seta í
menntamálanefnd IFIP án atkvæðis-
réttar.
Er þetta mikill heiður fyrir Önnu og
okkur, en að sögn kunnugra er Anna
sett þama á bekk með alþjóða-
stofnunum eins og SÞ!
Unnið hefur verið að því að vekja
áhuga íslenskra tölvumanna á
nefndum IFIP og hefur nokkur
árangur náðst.
Mikið er á því að græða að taka þátt
í IFIP og verður frekari þátttaka SÍ
til umfjöllunar á næsta starfsári.
Horft fram á við
Ég horfi björtum augum til
framtíðar Skýrslutæknifélagsins.
Þetta 21 árs gamla félag á ekki síður
hljómgrunn nú en þegar það var
stofnað.
Aukin samvinna við sambærileg
félög hér á landi sem erlendis er af
hinu góða og verður unnið að því að
auka hana.
Á liðnu ári hefur félögum fjölgað,
reksturinn skilað hagnaði og hver
atburðurinn á fætur öðrum verið
betur sóttur.
Ætlunin er að halda hér alþjóðlega
ráðstefnu í haust og áframhald
verður á hefðbundinni starfsemi
félagsins.
Ég sé fyrir mér að Skýrslutækni-
félagið verði virkara í umræðu og
ákvarðanatöku um tölvumál.
Mikið verk er óunnið að því er
varðar lagasetningar sem snerta
vernd höfundarréttar og lagabálka
sem koma inn á atriði sem eru
sérstæð fyrir tölvur. Þar getur SÍ
lagt sitt af mörkum.
Lokaorð
Það dylst engum sem þátt tekur í
starfi Skýrslutæknifélagsins
mikilvægi þess fyrir framþróun
upplýsingatækni á íslandi. Með
þátttöku í félaginu stuðlum við að
öflugu félagi sem tekið er mark á
við ákvarðanatöku í þjóðfélaginu í
mikilsverðum upplýsingatækni-
málum.
Ekkert félag er betra eða verra en
þeir sem eru félagsmenn í því. Með
virkri þátttöku sem flestra verður
starfið áfram blómlegt.
Stjóm félagsins er ávallt tilbúin að
hlusta á holl ráð og ábendingar og er
fyrst og fremst kjörin til þess að
vinna að góðum málum í nafni
félagsins og félaganna.
Ég vil þakka stjórnarmönnum og
félagsmönnum öllum mjög
ánægjulegt samstarf á liðnu starfsári
og ég hlakka til samstarfsins á nýju
ári.
Lifið heil!
10