Tölvumál - 01.05.1991, Page 5
Maí 1991
Framtíðarsýn í tölvumálum
Erindi Þorkels Sigurlaugssonar, framkvæmdastjóra hjá EIMSKIP hf.,
haldið á ársfundi Skýrslutæknifélagsins 15. febrúar 1991
Það er svolítið undarlegt að flytja
erindi um framtíðarsýn í tölvu-
málum fyrir hóp manna og kvenna
sem flest vita miklu meira en ég
um tölvumál. Ég er því dæmi-
gerður notandi, stoltur af því
sem ég veit, vegna þess að ég
veit ekki hvað ég veit lítið. Eg
veit að vísu orðið hvað ROM er,
og er hættur að rugla því saman
við ágœtan drykk sem á ekkert
skylt við tölvur nema síður sé.
OfmikiðROMM dregur úrminni
mannsins en eykur minni
tölvunnar efég skil það rétt.
Við stjórnendur í nútímafyrir-
tækjum viljum jafnan hafa tiltækar
allar upplýsingar um rekstur
fyrirtækisins. Á hverjum morgni
kveikjum við á tölvunni, ýtum á
hnapp og á skerminum eiga að
birtast nákvæmar upplýsingar um
lykilatriði í rekstrinum. Hver
var hagnaður gærdagsins, hverrar
deildar eða af hverri vörutegund?
Við ýtum á annan hnapp og fáum
samanburðartölur, þróunina síð-
ustu daga og vikna á línuriti.
Við ýtum á þriðja hnappinn og
þá birtist markaðshlutdeild fyrir-
tækisins. Eftir 10 mfnútur eigum
við stjórnendur að vita flest, sem
við þurfum að vita.
Er þetta ekki einfalt, en er það
algengt? Nei! Því miður hafa
mjög fáir stjómendur þannig upp-
lýsingakerfi og ég hef það ekki
heldur. Ekki skortir okkur tölvu-
listana, skýrslurnar og annað
fleira, sem rykfellur á hillunum.
Ég er reyndar löngu hættur að fá
tölvulistana, því tölvudeildin
hafði þá ágætu aðferð að hætta til
reynslu að senda tölvulista og
hætti alveg að senda þá ef enginn
saknaði þeirra. Það er heldur
ekki lengur stöðutákn að vera
áskrifandi að tölvulistum. En af
hverju er sjaldgæft, að einfaldar
tölulega upplýsingar séu til?Af
hverju þurfum við að leita að
gömlum pappírum og láta vinna
sérstakar skýrslur til að fá
upplýsingar um ákveðin lykil-
atriði. Skýringin er sú, að enginn
hefur skilgreint, hverjar þessar
lykiltölur séu, og sagt tölvu-
deildinni, hvar og hvernig eigi
að vinna þessar upplýsingar.
Þetta minnir okkur á að það er
grundvallaratriði varðandi tækni-
þróun, og á það ekki síður við á
sviði tölvutækninnar, að þarfir
markaðarins, þarfir notendanna
knýja tækniþróunina áffam en
ekki öfugt. Tækni er notuð af
því að hún þjónar notendum, og
í þessu tilviki þörfúm stjómenda.
Dæmi um tækni, sem var mögu-
leg, en ekki notuð var myndsíminn
eða "videophone", sem þróaður
var árið 1968 en náði ekki
vinsældum. Tæknin var til en
ekki markaðurinn.
Það er gaman að leika sér að því
að draga upp ýmiss konar fram-
tíðarsýn um notkun tölvutækn-
innar við stjórnun og rekstur
fyrirtækja. Þegar þú þarft að
hringja til útlanda geturðu ímynd-
að þér að það verði eitthvað
þessu lfkt í framtíðinni.
(Sjá mynd 1.)
í stað þess að grípa til símans, þá
snertir fisksalinn á uppboðsmark-
aðnum tölvuskerminn og segir
nokkur orð eða "skipanir".
"Vinsamlegast hringdu í
Harima"....... "Klukkan er 7 að
morgni í Japan"......... segir
tölvan við þig. Eftir fáeinar
sekúndur birtist mynd á
skerminum af Harima. Hann er á
hótelherbergi í Tokyo og ennþá
í rúminu. Með því að snerta aftur
skerminn kemur sjálfvirk þýðing
á samtalinu úr japönsku yfír á
ensku og úr ensku yfir ájapönsku.
"Mér þyldr leitt að vera að hringja
í þig svona snemma ",...segir
físksalinn við Harima. "Ég sé af
gœðaskýrslu okkar, að í Ijós hafa
komið gallar ífiskinum sem við
seldum þér. Var það þess vegna
sem þú hringdir í mig fyrr í
dag ?"...... Nei við höfum ekki
tekið eftir neinum göllum. Ég
hringdi vegna þess að ég vildi
koma þér í samband við nýjan
viðskiptavin, sem vill kynna sér
nýju fiskréttina þína. ".....
Þegar þessi þriðji aðili kemur
inn f samtalið, þá snertir þú
skerminn til að fá nánari
upplýsingar um þennan hugsan-
lega nýja viðskiptavin. Þar koma
fram upplýsingar um sölu, af-
komu og viðskipti þessa fyrir-
tækis. Þú sérð þetta í einu horni
tölvuskermsins, ánþess að hann
sjái það á hinum endanum.
Þegar samtalinu lýkur má sjá að
tölvan geymir upptöku af sam-
talinu og upplýsingarnar um nýja
viðskiptavininn. Skyndilega birt-
ist á skerminum úrklippur úr 50
helstu dagblöðum heims, þar sem
fjallað er um allt sem tengist
fiski, fisksölu eða fiskveiðum.
Síðan koma skilaboð ffá ritaranum
að fundur með Jóni Jónssyni
verði kl. 9.00, og dagskrá fund-
arins fylgir að sjálfsögðu með.
5 - Tölvumál