Tölvumál - 01.05.1991, Blaðsíða 26
Maí 1991
svæði sem ÍL nær yfir, reiknar út
stöðu og stefnu flugvéla, ákvarðar
hvaða vélar um er að ræða og sér
um viðbrögð.
Sá hugbúnaður sem sér um
skjáframsetningu, krefst graf-
fskrar forritunar. Gögnum loft-
varnarkerfisins er varpað við-
stöðulaust á myndrænan hátt á
stóra grafíska skjái fyrir það fólk
sem stjórnar kerfinu.
Samskiptahugbúnaðurinn er
mikill að umfangi, enda þarf ÍL
að hafa samskipti við óvenjulega
margvíslegan búnað.
Gagnapökkun er nauðsynleg því
kerfinu berst verulegt magn af
gögnum. Gögnin þarf að geyma
ef nauðsynlegt reynist að
"endurspila" það sem gerst hefúr.
Hermilíkön eru notuð meðan á
prófúnum stendur. Hugbúnaður-
inn líkir eftir raunverulegum
aðstæðum, þannig að reyna megi
nýja hugbúnaðarhluta sem best
áður en þeir verða innlimaðir í
heildarkerfið. Þegar 4 kerfið er
komið í rekstur eru hermilíkönin
jafnffamt hjálpartæki við prófanir
á nýjungum og breytingum á
hugbúnaðinum.
Villuleitarforritin hjálpa við
bilanagreiningu í samskipta-
búnaði og graffskum vinnu-
stöðvum.
Eins og sjá má spannar
hugbúnaður ÍL vftt svið hug-
búnaðarfræða. Kögun hefúr enda
þurft á hugbúnaðarfólki að halda
með ólíka menntun og reynslu.
Hönnunarferill ÍL
Hugbúnaður ÍL er gerður
samkvæmt bandaríska her-
staðlinum MIL-STD-2167A.
Staðallinn setur ákveðnar reglur
við gerð kerfisins. Hann deilir
smíðaferli kerfisins niður f
ákveðnar einingar, eða kafla.
Þegar tiltekinni einingu er lokið
fara kaupandi og seljandi saman
yfir stöðu mála. Þessir fúndir
standa yfirleitt í nokkra daga og
lýkur með því að kaupandi og
seljandi samþykkja að ákveðnum
verkhluta sé náð.
Fyrsti fundurinn gengur út á að
kaupandi og seljandi samþykkja
kröfúlýsingu. Á þessum fúndi
eru útkljáð vafamál varðandi
kröfulýsinguna og skrifað upp á
að báðir aðilar hafi sama skilning
á kröfum til kerfisins. Það er
ekki alveg sjálfgefið að svo sé
því gera má ráð fyrir 13 til 18
þúsund kröfum fyrir ÍL þegar
kröfulýsingin hefur verið krufin
til mergjar.
Eftir að kröfulýsingin hefúr verið
afgreidd koma fundir með
nokkurra mánaða millibili, þar
til nákvæm hönnun kerfisins er
samþykkt af báðum aðilum. Eftir
það hefst hin eiginlega forritun
sem tekur nokkra mánuði.
Nýtískulegum aðferðum í
hugbúnaðarfræðum verður beitt
við hönnun kerfisins. Hlutbundin
hönnun vegur þar þungt og
ríkulega verður notast við ýmsan
hjálparhugbúnað.
Smám saman verður hvert
undirkerfi tilbúið til prófúnar.
Byrjunarprófanir eru gerðar ytra
og er reynt af fremsta megni að
líkja eftir aðstæðum hér á Fróni.
Þegar þessum prófunum lýkur
fer fram uppsetning á kerfinu hér
heima og umfangsmeiri prófanir
við raunverulegar aðstæður taka
við. Þegar seljandi hefur fram-
kvæmt sínar prófanir á kerfinu,
tekur kaupandi við og prófar
kerfið í nokkra mánuði áður en
hann tekur formlega við því.
Niðurlag
Þegar eru 15 starfsmenn Kögunar
farnir til starfa erlendis hjá
aðalverktakanumHughes. Búast
má við að fyrstu íslendingarnir
komi til landsins síðla árs 1993
vegnauppsetningar kerfisins. Ef
það stendur mun loftvamarkerfið
verða afhent bandaríska flug-
hernum til rekstrar árið 1995 ef
að líkum lætur. Fljótlega þar á
eftir mun Kögun taka við rekstri
og viðhaldi á hugbúnaði
kerfisins.
26 - Tölvumál