Tölvumál - 01.05.1991, Blaðsíða 23
Maí 1991
Kostnaður við PC tölvu-/netvæðingu
Sveinbjörn Högnason, viðskiptafræðingur
Hvað myndir þú gera við
starfsmann hjá þér sem kæmi til
þín og segði "mig vantar 600.000
krónur á borðið hjá mér".
Ég myndi fyrst þefa af kaffínu
hans og síðan vilja fá nokkuð
nákvæma skýrslu um tilgang og
áætlaða notkun þessara peninga
og einnig rökstuðning fyrir arð-
semi þessarar íjárfestingar.
Staðreyndin er sú að áætlanagerð
hjá íslenskum fyrirtækjum virðist
vera mjög ábótavant. Áætlanir
um stofnkostnað og væntanlegan
rekstrarkostnað vegna milljóna
fjárfestingar eru til hjá grátlega
fáum íslenskum stjórnendum.
Hér á eftir er gerð grein fyrir
niðurstöðum könnunar á kostnaði
við PC tölvu-/netvæðingu.
Kannað var hvernig áætlanagerð
og undirbúningi var háttað og
hvort tölvuvæðingin hafi skilað
sérQárhagslega. Þáerusýndtvö
dæmi um stofnkostnað PC
netkerfa. Þessi dæmi miða við
verðlag þegar könnunin var gerð.
í könnuninni var m.a. spurt:
Var gerð stofnkostnaðaráœtlun
Jyrir netvœðinguna?
Ríkis- Einka-
fyrirt. fyrirt.
já 22% 32%
nei 50%> 36%>
tilboða leitað 28%> 32%>
Einungis tvö fyrirtæki gerðu
stofnkostnaðaráætlun fyrir hug-
búnað, en eins og allir vita þá er
hugbúnaðurinn sem er á PC
tölvunni dýrari í innkaupum en
tölvan sjálf. Greinilegt er því að
margir í könnuninni vanmeta
stórlega væntanlegan kostnað og
stór hluti hefur ekki minnstu
hugmynd um hvað verið er að
fara út í.
Enginn í könnuninni gerði
rekstrarkostnaðaráætlun íyrir
netkerfið.
Til að fá hugmynd um hvað
tölvu- og netvæðing kostar þá er
á næstu síðu hér á eftir sett upp
tölvunetkerfi fyrir fyrirtæki sem
er ekki með tölvur í dag og
miðað er við meðalstærð
ríkisfýrirtækis, þ.e. 14 tölvur á
neti og meðalstærð einka-
fyrirtækis þ.e. 7 tölvur á neti.
Hefur netvœðingin skilað sér
peningalega?
Ríkis- Einka-
fyrirt. fyrirt.
Fullkomlega 44%, 36%
Að mestu 22% 18%
Að nokkru 17% 23%
Alls ekki 6% 23%
Ekki svar 11%
Tvö ríkisfyrirtæki sögðu að þau
væru ekki rekin til að skila hagnaði
og þar af leiðandi væri ekki hægt
að svara þessari spurningu.
Skýring þess hve mörg
einkafýrirtæki segja að net-
væðingin hafi ekki skilað sér
peningalega er sú að þau tóku á
sig ýmislegt í leiðinni sem ekki
hafði áður verið innan fyrir-
tækisins þ.e. bókhald og
starfsmanntilaðsinnaþví. Þetta
var vegna virðisaukaskatts-
kerfisins.
Niðurstöður könnunar minnar
gefa til kynna að íslensk fyrirtæki
séu með frekar ófullkomna
áætlanagerð og leita lítið til
ráðgjafa með vandamál sín. Ég
tel fulla ástæðu til fyrir
stjórnendur fyrirtækja að leita til
ráðgjafa með sín mál, því þá
ræður þú sérfræðing til að leysa
þín mál í stað þess að þurfa að
mennta þig sjálfan upp í það að
vera sérfræðingur um þessi mál.
Tíminn er dýrmætur, notaðu þinn
tíma þar sem hann nýtist best,
þ.e. við að reka fyrirtæki þitt.
23 - Tölvumál