Tölvumál - 01.04.1992, Qupperneq 3
TOLVUMAL
TÍMARIT SKÝRSLUTÆKNiFÉLAGS ÍSLANDS
2. tbl. 17. árg. Apríl 1992
Frá ritstjóra
Nokkrir lesenda Tölvumála hafa látið í ljós
álit sitt á hinu nýja útliti blaðsins og líkar
flestum það mjög vel. En ekki er nóg að
hafa skrautlega forsíðu, aðalatriðið er
innihald og efni blaðsins sem ritnefndin
velur og safnar saman. Nú er laust sæti í
ritnefnd og því einstakt tækifæri fyrir þá
félagsmenn SÍ, sem vilja taka þátt í að móta
efnisval Tölvumála. Þeir sem hafa áhuga
ættu að segja til sín sem fyrst.
Aðalefni þessa blaðs er útflutningur
hugbúnaðar. Við þökkum öllum sem sendu
efni eða aðstoðuðu á annan veg. Ef
einhverjir vilja bæta um betur þá tökum við
fúslega við fleiri greinum um efnið. I
næsta tölublaði verður aðallega fjallað
um öryggismál, í mjög víðum skilningi.
Þeim sem vilja leggja orð í belg er bent á að
hafa samband við okkur í ritnefndinni eða
skrifstofu félagsins sem fyrst.
Efnisyfiriit FJármálaráöuneytið
Bókasafn
Frá formanni Halldór Kristjánsson .........5
Fjarskipti og samskipti í sameinaðri Evrópu
Ólafur Tómasson ....................6
Um útflutning á hugbúnaði Ágúst Úlfar Sigurðsson 9
Hugbúnaður á Evrópumarkaði
Vilhjálmur Þorsteinsson ........................10
Utflutningur er langtímaverkefni
Ársæll Harðarson ...............................15
Útflutningur á íslenskum róbótum til álvera
Jón Hjaltalín Magnússon.........................18
Hugbúnaður sem útflutningsgrein Ásgrímur
Skarphéðinsson og Dröfn Hreiðarsdóttir .........20
Útflutningur á íslensku tjáskiptaforriti fyrir fatlaða
Jón Hjaltalín Magnússon ........................22
Ritnefnd 2. tölubiaðs 1992
Ágúst Úlfar Sigurðsson, tæknifræðingur,
ritstjóriiog ábm.
Daði Jónsson, reiknifræðingur,
ritstjóri
Björn Þór Jónsson, tölvunarfræðingur
Sigrún Harpa Hafsteinsdóttir,
viðskiptafræðingur
Krabbameinskerfið Björgvin Gunnlaugsson ......24
Að markaðssetja hugvit erlendis
Pétur Guðjónsson ..........................27
Útflutningur á almenningshugbúnaði
Friðrik Skúlason ..........................29
Útflutningur hugbúnaðar Þórarinn Stefánsson ..32
Forsíðumyndir eru af íslenskum
útflutningsafurðum og markaðssvæðum.
Frá orðanefnd Sigrún Helgadóttir .............34
Samþykktir SÍ...................................36
Punktar.........................................38
3 - Tölvumál