Tölvumál - 01.04.1992, Blaðsíða 19
Apríl 1992
Róbótinn er kominn á sinn stað í skautasmiðju Sör-Norge Aluminium ogfarinn að
setja kraga utan um tinda rafskautanna. Iframtíðinni mun hann setja um 900 kraga
á 300 rafskaut á dag en hvert rafskaut hefurþrjá tinda.
aðila, heldur en að
reyna að starfa
hérlendis við
óbreyttar að-
stæður. Það þarf
hins vegar mjög
1 ítið til að
aðstæður hér á
landi batni svo að
hægt sé að stunda
alvöru vöru-
þróunarstarfsemi og
alþjóðlega mark-
aðsetningu. Við
höfum vel menntað
fólk, sem margt
hvert hefur starfað
erlendis og hefur
bæði þekkingu og
reynslu til að
stunda vöruþróun
og alþjóðlega
markaðssetningu.
síðan í ársbyrjun 1991 og voru
tækin sett upp í júní þá um
sumarið eftir að þau höfðu verið
prófuð hér heima í þrjár vikur til
að taka burtu alla hugsanlega
galla. Verðmæti útflulningsins
til Sör - Norge Aluminium AS
var um 10 milljónir króna.
Áframhald á
utflutningi
Núna eru JHM, Landssmiðjan hf
og Samey hf að hefja mark-
aðsátak um áframhaldandi sölu á
þessum tækjabúnaði erlendis og
hafa þau gert með sér
samstarfssamning um áfram-
haldandi þróun á tækja-
búnaðinum og sölu hans. Meðal
annars er unnið að þróun á svo
kallaðri kragaáfyllingarvél, til að
setja kolasalla í kragana utan um
tindana.
Nýlega tók JHM þátt í alþjóð-
legri ráðstefnu og vörusýningu
um tækjabúnað til álvera og
málmframleiðenda í San Diego.
Vakti hinn íslenski tækjabúnaður
athygli og verða tilboð send til
nokkurra álvera ánæstunni. Alver
eru almennt að hugsa um að taka
upp notkun kraga utan um tinda
rafskautanna. þau álver sem nota
kraga í daga hafa mikinn áhuga á
að nýta sér nútíma sjálfvirkni í
staða þess að hafa menn í þessum
störfum. Við erum þeir einu í
dag, sem höfum leyst þetta
vandamál ál veranna og höfum því
ákveðið forskot. Við erum í
viðræðum við fimmtán álver
allstaðar í heiminun og vonumst
til að geta selt nokkur róbótakerfi
til viðbótar á þessu ári.
Það sem háir fyrst og fremst þróun
og alþjóðlegri markaðssetningu
á íslenskum tækjabúnaði er
aðgangur íslenskra fyrirtækja að
áhættufjármagni. Það er satt að
segja skynsamlegast fyrir alvöru
uppfinningamenn að selja
hugmyndir sínar strax til erlendra
Það mundi hraða verulega allri
vöruþróun og útflutningi á
íslenskri þekkingu og verk-
menningu ef brotabroti af því
fjármagni ríkissjóðs sem varið
er til reksturs landbúnaðarins væri
varið í sjóði iðnaðarins til
áhættulána til að þróa hugbúnað
og tækjabúnað til útflutnings og
að fyrirtækjum væri gert auð-
veldara að fá áhættufjármagn á
innlendum hlutabréfamarkaði.
Einnig þarf að endurbæta
skattakerfið, svo það hvetji
fyrirtæki og einstaklinga til að
leggja fram hlutafé í áhættusöm
en um leið áhugaverð fyrirtæki.
Fjöldi íslenskra fyrirtækja er með
áhugaverðar framleiðslu-
hugmyndir, sem hafa alþjóðlegan
markað, en það tekur sinn tíma
að þróa þær, byggja frumgerð
tækisins, prófa hana, ganga frá
framleiðslugögnum og öllum
tæknilegum upplýsingum, áður
en varan er tilbúinn til
markaðssetningar.
19
Tölvumál