Tölvumál - 01.04.1992, Blaðsíða 7
Apríl 1992
árum áður en tilskipanirEB komu
fram. Með reglugerð sem tók
gildi 1. maí 1991 var stofnuð
sérdeild fjarskiptaeftirlits undir
sameiginlegri stjórn samgöngu-
ráðuney tis og póst- og símamála-
stjóra. Þessvegnavarmynduðó
rnanna stjórn fjarskiptaeftirlits,
þar sem tveir fulltrúar eru
tilnefndir af verslunar- og iðn-
aðarmönnum. Reikna má með
að eftirlitið verði gert að sjálf-
stæðri deild eða stofnun beint
undir samgönguráðuneytinu
áður en langt urn líður, og telur
Póstur og sími slíka breytingu
eðlilega. EB telur að gjöld fyrir
fjarskiptaþjónustu skuli að rnestu
leyti miðuð viðtilkostnað. Það
er einnig alrnenn stefna Pósts og
síma að svo sé, hinsvegar er
fyrirtækinu gert að veita ýmsa
þjónustu fyrir gjöld sem standa
ekkiundirkostnaði. Þessumark-
miði verður ekki náð nenia í
áföngum m.a. vegna þess að Pósti
og síma er gert að greiða háar
fjárhæðir í ríkissjóð.
Símastofnanir verða að breyta
gjaldskrá sinni í þá átt að hver
þjónustugrein verði verðlögð í
samræmi við tilkostnað. Annar
hluti þessa vandamáls er að
verðleggja aðgang samkeppnis-
aðila að grunnkerfunum. Það
hefur reynst vera stjórnmálalegt
vandamál í sumum löndurn. Að
sjálfsögðu verður ekki auðvelt
fyrir símastofnanir að halda öllum
viðskiptavinum sínum og sam-
keppnisaðilar munu reyna að
fleyta rjómann ofan af mark-
aðnum með því að einbeita sér
að stærstu viðskiptavinunum án
þess að bjóða þjónustu á lands-
vísu. En það má að sjálfsögðu
ekki verða til þess að sírna-
stofnanirvíki sérundan skyldunni
að veita almenna þjónustu.
Einnig rná hér nefna tilskipun EB
frá 1990 um opinn aðgang að
fjarskiptakerfum. Ein af
forsendum til að auðvelda að-
gang eru réttir staðlar. Fjarskipta-
staðlastofnuninETSIvarstofnuð
Mikil áhersla
er lögð á að
fjarskiptagjöld
verði eðlilegri
en nú er og
meira í samræmi
við tilkostnað
1988 m.a. af Pósti og síma, sem
vinnur að því í samvinnu við
Staðlaráð íslands að ETSI
staðlarnir fái fulla viðurkenningu
á Islandi. Þannig verður tækni-
búnaður samhæfður í framtíð-
inni. Það mun hafa í för með sér
að tölvur frá mismunandi fyrir-
tækjum geta unnið saman án
erfiðleika.
Víða í Evrópu fer fram að-
skilnaður póstþjónustunnar og
símaþjónustu, m.a. til að hindra
fjármagnsflutning milli þeirra en
í mörgum löndum hefur verið
mikið tap á póstinum þótt í
öðrum löndum sé ágætur hagn-
aður. Hér álandi erpóstþjónustan
umþað bil að ná jafnvægi, nokkur
milligreiðsla kom áður fyrr frá
símahliðinni.
Víða erlendis er verið að gera
breytingar á póst- og síma-
stofnunum og gera þær að fyrir-
tækjum sem eru rekin sem hluta-
félög hvort heldur ríkin selja
hlutabréf í þeim á almennum
markaði eða eiga áfram 100%. í
Danmörku verður t.d. öllurn
sjálfstæðu símafyrirtækjunum
steypt saman við ríkis-
símastofnun. Þau verða rekin
7
Tölvumál