Tölvumál - 01.04.1992, Blaðsíða 30
Apríl 1992
Semja við dreifingaraðila erlend-
is um að fjölfalda og dreifa hug-
Að öllu
öðru óbreyttu
er erfiðara
að selja forrit
eftir því sem þau
höfða til fleiri
búnaðinum. Höfundurfæreinnig
í sinn hlut hér ákveðna prósentu,
en munurinn er sá að hann heldur
eignarrétti að hugbúnaðinum og
er ekki laus allra mála.
Dreifa hugbúnaðinum beint frá
Islandi og losna þannig við
milliliði.
Láta hugbúnaðinn dreifa sér
sjálfum - þ.e.a.s. forritinu er dreift
sem deilihugbúnaði
("shareware").
Allar þessar aðferðir hafa sína
kosti og galla.
Afsal réttinda
Það er upp og ofan hvort forritarar
og hugbúnaðarfyrirtæki hafa
áhuga á að afsala sér öllum
réttindum að hugbúnaði sínum á
þennan hátt. Ein af ástæðunum
er sú að venjulega hljóða svona
samningar upp á lága upphafs-
greiðslu og síðan prósentu af
sölu. Vandamálið er það að
ekki er unnt að ábyrgjast ein-
hverja lágmarkssölu, þannig að
leggi fyrirtækið ekki mikla
áherslu á forritið getur forritarinn
setið eftir með sárt ennið og
búinn að glata öllum sínum rétt-
indum. Gangi salan vel er þetta
tvímælalaust þægilegasta að-
ferðin. Höfundur þarf ekki að
gera neitt annað en að taka við
greiðslunum, en erlendi aðilinn
sér um alla áframhaldandi þróun
forritsins. Að sjálfsögðu er nauð-
synlegt að hafa lögfræðilegu
hliðina á hreinu. Alla samninga
þarf að bera undir lögfræðinga
áður en skrifað er undir, þannig
að maður semji ekki af sér.
Samningar við
dreifingaraðila
Sé farin sú leið að semja við
erlenda aðila um dreifingu á hug-
búnaðinum, þarf fyrst og fremst
Nú getur þú sent póst milli tölva með nýrri þjónustu
Pósts og síma sem kallast GAGNAHÓLF.
, •. • (.. j Þú vinnur bréfið þitt í tölvunni, stílar það
á nafn og heimilisfang og síðan sér
tölvan, með hjálp síma- eða
gagnaflutningsnetsins, um að koma því í
gagnahólf viðtakanda hratt og örugglega.
ijá um póstinn
Ef móttakandi hefur ekki gagnahólf, þá er
auðvelt að láta bréfið berast til telex- eða
gaghaflutnIngs- telefaxtækja beint
úr tölvunni þinni.
Þetta er aðeins byrjunin. Kynntu póSTUR OG SÍMI
þér þessa nýju þjónustu hjá Gagna- siM1 636000
flutningsdeild Pósts og síma. Viö spörum þér sporin