Tölvumál - 01.04.1992, Blaðsíða 38
Apríl 1992
Punktar
Vöruskipti
Vegagerð Ríkisins hefur gert
samning við Svearoad, dóttur-
fyrirtæki sænsku vegagerðarinn-
ar, um gagnkvæm viðskipti með
vegagerðarhugbúnað. Stærsti
liður samningsins er sá að
Vegagerðin fær veghönnunar-
kerfi, sem hefur kostað sænsku
vegagerðina jafnvirði lOmann-
ára að þróa. í staðinn afhendir
VR hugbúnað fyrir jarðganga-
gerð, sem saminn var vegna
Olafsfjarðarmúlaganganna og
reyndist mjög vel í því verki.
Samvinna um sölu og dreifingu á
jarðgangahugbúnaðinum í
öðrum löndum er með í dæminu.
Hér er á ferðinni athyglisverð
nýjung, sem fleiri íslenskar
stofnanirmættu takatil athugunar.
Tölvuleikir í
jólapakkann
Einn góðkunningi Tölvumála
vildigefabömumsínumtölvuleik
íjólagjöf. Þar sem heimilistölva
hans var nokkuð komin til ára
sinna eyddi hann drjúgum tíma í
að velja leik við hæfi, sem ekki
gerði of miklar kröfur til tölv-
unnar. Þegar jólapakkinn hafði
verið opnaður og leikforritinu
var hlaðið í tölvuna heimtaði
hún í sífellu að upprunalegur
disklingur væri settur í drif.
Hvernig sem reynt var fékkst
forritið ekki með nokkru móti til
að skilja það að disklingarnir úr
jólapakkanum voru ósviknir.
Strax eftir jólin var nú farið í
búðina þar sem leikurinn hafði
verið keyptur. Þar var hann
prófaður á tölvu, sem var nýrri
og annarrar gerðar en gamla
heimilistölvan. Á þeirri vél vann
leikurinn alveg eins og hann átti
að gera. Til að bæta gráu ofan á
svart reyndist síðan hvorki unnt
að fá annað eintak af leiknum né
sambærilegan leik í staðinn því
allir bestu leikirnir voru löngu
uppseldir. Leikurinn fékkst að
vísu endurgreiddur, en börnunum
fannst sá kostur ekki mjög góður.
Næstu jól verður væntanlega
eitthvað annað sett í jólapakk-
ann.
FRISS stafataflan á
undanhaldi
Helstu IBM stórtölvunotendur á
Islandi gerðu á sínum tíma
samkomulag um viðauka við
EBCDIC stafatöfluna til að
samræma séríslensku stafatáknin,
oft nefnt FRISS taflan. Nú þykir
sú tafla vera úrelt og oft beinlínis
til trafala. SKÝRR, Reiknistofa
bankanna og Flugleiðir ráðgera
því að breyta yfir í Code Page
871 stafatöfluna um páskana.
Undirbúningsvinnaerhafin. Hún
er veruleg og skipta fyrirtækin
með sér verkum. Páskahelgin
verður væntanlega notuð til að
framkvæma breytinguna, en
breyta þarf stafatáknum í stórum
gagnasöfnum, skrám, forritum og
margs konar kerfishugbúnaði.
Myndir
Á hinni nýju forsíðu Tölvumála
er gert ráð fyrir ljósmyndum eða
öðru myndefni. Við höfum í
hyggju að koma upp safni af
myndum, sent nota mætti af eftir
þörfum. Því bjóðum við öllum
sem það vilja að senda okkur
ljósmyndir, bæklinga og hvers
konar myndefni, sem nota má á
forsíðunaánendurgjalds. Ekki
skiptir máli þótt myndirnar eða
bæklingamir hafi eitthvert aug-
lýsingagildi, allt sem tengja má
málefnum, sem Tölvumál fjalla
umeráhugavert. Ritnefndinmun
að sjálfsögðu ákveða hvaða
myndir verða notaðar hverju
sinni.
Markaðsstjóri
til leigu
Utflutningsráð íslands býður
athyglisverða þjónustu handa
fyrirtækjum, sem hafa þörf fyrir
faglega aðstoð og ráðgjöf við
skipulagningu og markaðssókn
erlendis, en vilja ekki fastráða
starfsmann til verksins. Þessi
þjónusta nefnist "Markaðsstjóri
til leigu" og skýrir sig sjálf.
Viðskiptajöfnuður
1991
Samkvæmt verslunarskýrslum
1991 virðist hafa verið fluttur
hugbúnaður til landsins fyrir 267
milljónir króna, en út fyrir 5,7.
Hlutfallið er mjög óhagstætt,
fimmtíu á móti einum. Ef sömu
töl ur fyrir vélbúnað eru skoðaðar
þá er hlutfallið milli inn- og
útflutnings enn óhagstæðara, tvö
hundruð á móti einum.
Ritnefndin hvetur alla lesendur
Tölvumála til að senda inn efni í
þennan nýja dálk. Hægt er að
taka við efni á hréfsíma 25380
38 - Tölvumál