Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Blaðsíða 15

Tölvumál - 01.04.1992, Blaðsíða 15
Apríl 1992 Utflutningur er langtímaverkefni Ársæll Harðarson, Cand. Merc. - framkvæmdastjóri Myndmáls hf. Veit íslenskt á gott? Oft er útflutningur mögulegur þrátt fyrir að varan sé íslensk. Mörg dæmi sýna þetta, einkum í sjávarútvegi og iðnaði tengdum honum. Þar á vel við slagorð Utflutningsráðs Islands, "Islenskt veit á gott". I öðrum greinum á slagorðið illa við því það er ekki sjálfgefið að t.d. íslenskt hugvit svo sem ráðgjöf eða hugbúnaður, sé útflutningshæf vara á erlendan markað. Ekki er það þó alveg útilokað í vissum tilvikum og sé ýmsum skilyrðum fullnægt má búast við að ein og ein tilraun takist næstum því og jafnvel einstaka heppnist þokka- lega um tíma. Sumir trúa því að íslenskar vörur séu rnjög eftirsóttar úti í hinum stóra heimi og það sé "bara að koma þeim á markað". Því miður er það ekki tilfellið. I sumum tilfellum er þessu reyndar alveg þveröfugt farið. Það þarf að sannfæra, fyrst einn eða fleiri kaupendur, síðan umboðsmenn um að íslenska varan sé jafngóð og erlend. Hvers vegna útflutning? Ákvörðun um útflutning þarf að taka að vel athuguðu máli, en það er auðvelt að nefna í fleng rnjög margar ástæður fyrir því hvers vegna ætti að hefja litflutning: * Hagnaðarvonin við að selja á stærri markaði er ein ástæða og þrátt fyrir lægri álagningu vegna meiri samkeppni, búast menn við því að vinna það upp í magni. * Líftími sumra vara er lengdur með því að selj a hana á nýjum erlendum markaði. * Jöfnuður í árstíðabundinni sölu næst í sumurn tilfellum. * Áhættudreifing vegna lítils heimamarkaðar. Hvaö ef Grænlendingar kæmu hingað í flokkum og reyndu að selja okkur hugvit, ráðgjöf og hugbúnað? * Þjóðhagslega hagkvænrt að flytja lit vörur og þjónustu.. * Rannsóknar- og þróunar- kostnaður dreifist á hærri veltu. * Imyndfyrirtækis verðurbetri. * Vaxtarmöguleikar aukast í þeim tilvikum sem fyrirtæki hefur nánast einkasölu- aðstöðu á heimamarkaði. * Erlend samkeppni er mæl- ikvarði á samkeppnishæfni fyrirtækis. * Vegsemd fyrirtækis og stjórn- enda þess eykst við alþjóð- lega ásýnd. Þrátt fyrir að auðvelt sé að finna góðar ástæður fyrir útflutningi er einnig nauðsynlegt að líta á þær ástæður sem ekki mæla með honum: * Gengisþróun getur takmarkað hagnað og pólitískt ójafnvægi einnig. * Aðlögun vöru getur kostað það mikið að arðsemin verði ekki sem skyldi. * Heimamarkaður sem er of lítill getur orðið útflutningi fjötur um fót. * Vöruþróunarkostnaði erbetur varið á heimamarkaði ef líftími vöru er að rninnka * Vegsemd er lítils virði ef hagnaður eykst ekki vegna útflutnings. * Þjóðhagsleg hagkvæmni er ekki endilega hagkvæm fyrir fyrirtækið, og alls ekki ef halli er á viðskiptunum. Stefnumótandi ákvarðanir Margar afdrifaríkar ákvarðanir þarf að taka áður en ákveðið er að hefja útflutning. Ef ekki er að gætt í tíma er mikil hætta á mistökum og litlurn árangri. Stefnumótandi ákvarðanir þarf að taka um val á mörkuðum til að fly tja á. Ekki er alltaf heppilegt að hefja útflutning á marga mark- aði í einu. Þá þarf að kynnast mörkuðum og rannsaka aðstæð- ur vel. Það verður nógu margt sem kemur á óvart samt. Ákveða þarf vöruval til útflutnings, eigin- leika varanna ef þeir eru frá- brugðnir þeim á heimamarkaði ogaðlögunaðmörkuðum. Velja þarf útlit, umbúðir, vörumerki, leiðbeiningar og þjónustu. Hver og einn ofangreindra liða krefst yfirvegunar og margháttaðar ákvarðanatöku. Þeir eru alls ekki á færi eins eða tveggja manna að ákveða. Hér er nauðsynlegt að kalla til dýra ráðgjafa t.d. hvað snertir vörumerki, einkaleyfi, leiðbeiningar og umbúðir. Þegar útflutningsstefnan hefur 15 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.