Tölvumál - 01.04.1992, Blaðsíða 13
Apríl 1992
hlutaður í smærri bita, þar sem
lítið er um ráðandi fyrirtæki og
markaðurinn dreifistmilli margra
lítilla fyrirtækja í hverju landi.
Sem dæmi er útbreiðsla við-
skiptahugbúnaðarins Navigator
í Danmörku aðeins fimm- til sjö-
föld á við útbreiðslu mest selda
viðskiptahugbúnaðar á Islandi,
og berast þó fréttir af útflutningi
Navigator til fleiri Evrópulanda -
rneðal annars Islands!
Af einhverjum ástæðum erþróun
einmenningstölvumarkaðarins í
Evrópu lítillega á eftir þróun ísl-
enska markaðarins og þess banda-
ríska, og á þetta bæði við um
upptöku nýjasta vélbúnaðar og
hugbúnaðar. F>að gefur íslensk-
um fyrirtækjum visst svigrúm til
að sjá fyrir breytingar og laga
vörur sínar og þjónustu að þeim.
Forskot íslendinga
Við Islendingar njótum srnæðar
okkar í því að lesa til dæmis
helstu fagtímaritin í uppruna-
Pegar gömlu
austur- og
vesturpólarnir
hverfa, koma þrír
meginpólar í staðinn
í efnahagslegum og
stjórnmálalegum
skilningi
legum bandarískum útgáfum,
meðan Evrópubúar lesa eigin
útgáfur þessara sömu tímarita
með eldri og minni fréttum af
"state of the art", svo ég leyfi mér
að sletta. Því er nefnilega ekki
að neita að framþróun einmenn-
ingstölvunnar og tækninnar sem
henni tengist á sér stað í
Bandaríkjunum og Austurlöndum
miklu fremur en í Evrópu. Þegar
rætt er um eiginleika Evrópu-
markaðarins er gaman að minna
á að álfan er geysilega þéttbýl og
fjarlægðirnar í raun litlar. Innan
400 km geisla frá Brussel má
Með virkri
þátttöku íslands
í samstarfi
Evrópuþjóða
eigum við samleið
með
nágrannaþjóðum
okkar og þeim
þjóðum sem við
berum okkur saman
við
finna London, París, Amsterdam
og Bonn, auk þess sem stutt er í
Luxemborgarflugvöll og næstu
Flugleiðavél til Reykjavíkur.
Miðað við Akureyrarferð á möl
og mjóum malbiksvegum er ekki
mikið mál að bregða sér milli
borga í Evrópu til að sinna við-
skiptavinum. NokkurEvrópulönd
hafa verulegan áhuga á því að
laða til sín fyrirtæki og atvinnu-
tækifæri, sérstaklega í hátækni-
greinum. Meðal þeirra landa sem
auglýsa ýmiskonar fyrirgreiðslu
eru Irland, Belgía, austurhluti
Þýskalands og Spánn. Sum
þessara landa buðu áður mjög
hagstæð skattafríðindi, en mega
það ekki lengur samkvæmt sam-
ræmdum skattareglum Evrópu-
bandalagsins. í staðinn kemur
margvísleg hjálp og aðstoð, til
dæmis ódýr aðstaða í tækni-
görðum, beinar niðurgreiðslur
á fjárfestingarkostnaði, tíma-
bundið eignarskattsfrelsi og
flýtifyrningar, lægri launatengd
gjöld fyrir starfsmenn í há-
tæknigreinum og unga starfs-
menn, lögfræðiaðstoð og vaxta-
lauslán. Vitaskuld þarf að mæta
ýmsum skilyrðum til að geta
fengið aðstoð á borð við þá
sem ég hef nefnt.
Atvinnumálin
Víða í Evrópu er að finna ungt
og vel menntað fólk sem vantar
atvinnu. Því má kynnast nánar á
fyrirhafnarlítinn hátt með því að
notfæra sér eitt af hinum sam-
evrópsku verkefnum, nefnilega
námsmannaskipti milli háskóla
og fyrirtækja í mismunandi
Evrópulöndum. Námsmanna-
skiptin fara þannig fram að
fyrirtæki koma óskum sínum á
framfæri við viðeigandi skrif-
stofu í eigin landi, og evrópska
samstarfsverkefnið sér um að
velja saman námsmenn og fyrir-
tæki í samráði við báða aðila.
Verkefnið útvegar síðan hús-
næði og annast hinar praktísku
Evrópska
samstarfsverkefnið
sér um að velja
saman námsmenn
og fyrirtæki
hliðar málsins. Meira að segja
greiðir það í mörgum tilvikum
hluta af launum námsmannanna
til að mæta kostnaði fyrir-
tækjanna af því að þjálfa þá.
Þessir námsmenn geta síðan
verið haukar í horni síðar ef sækja
skal á þeirra heimamarkaði. Á
íslandi má leita til COMETT-
skrifstofunnar í Tæknigarði til
að fá nánari upplýsingar um
þennanmöguleika. Þarmálíkafá
upplýsingar um það hvernig
sækja má um styrki til sam-
evrópskra rannsóknar- og þróun-
13
Tölvumál