Tölvumál - 01.04.1992, Page 5
Aprfl 1992
Frá formanni
Halldór Kristjánsson, formaður SÍ
Nýtt útlit á
Tölvumálum
Eins og félagsmenn hafa orðið
áþreifanlega varir hafa Tölvumál
tekið miklum stakkaskiptum frá
ogmeð 1. tölublaðiþessaárs. Er
þetta lokaáfangi á löngum ferli
sem stjórn, ritnefnd og
framkvæmdastjórihafaunnið að.
Fjölmargir hafa nefnt ánægju sína
með hið nýja form sem er á
blaðinu og er það mikil hvatning
fyrir okkur sem að því stöndum.
Sérstaklega er það ánægjulegt að
auglýsingar standa nú undir
prentkostnaði.
Þeim sem hafa lagt hönd á plóginn
til þess að gera þetta að veruleika
ber að þakka sérstaklega.
Kjartan hættir
Kjartan Ólafsson gaf ekki kost á
sér til áframhaldandi setu í stjórn
á því starfsári sem nú er nýbyrjað.
Kjartan sat þrjú ár í stjóm félagsins
og sinnti samskiptum við
Norðurlöndin auk gjaldkera-
starfsins.
Norðurlandasamstarfið hefur átt
erfitt uppdráttar og tekið miklum
stakkaskiptum á þeim tíma sem
Kjartan hefur setið í stjórn. Hefur
því mikið reynt á Kjartan við að
móta þá mynd sem það er nú að
taka.
En fyrst og fremst minnast
stjórnarmenn Kjartans sem góðs
félaga og ötuls baráttumanns fyrir
hagsmunum félagsins. Eg vona
að við eigum eftir að njóta krafta
hans áfram fyrir félagið þó hann
hverfi nú úr stjórn um sinn.
Douglas boðinn
velkominn
Douglas A. Brotchie, forstöðu-
maður Reiknistofnunar Há-
skólans var kjörinn varamaður á
síðasta aðalfundi félagsins. Vil
ég bjóða hann velkominn til
stjórnarstarfa.
Samhliða kjöri Douglas urðu
nokkrar breytingar á stjórn en
Guðbjörg Sigurðardóttir var
kosin gjaldkeri og Vilhjálmur
meðstjórnandi. Guðbjörg var
áður meðstjórnandi og
Vilhjálmur varamaður.
Ráðstefnur og fundir
Fimmtudaginn 26. mars síðast-
liðinn var haldinn hádegis-
verðarfundur um skjalaskipti
milli tölva, fyrir tölvufólk.
Tæplega 90 manns sóttu fundinn
sem var fróðlegur. Framundan er
ráðstefna um breytingar á
tölvuumhverfl þar sem fjallað
verður um rök með og á móti
breytingum. Sérstaklega verður
fjallað um breytingu úr stór- eða
miðtölvuumhverfi í netkerfi og
einmenningstölvuumhverfi.
Horft verður á málið frá öllum
hliðum en margir telja að
hagkvæmni slíkrabreytinga liggi
ekki alltaf ljós fyrir. Ráðstefnan
verður haldin fimmtudaginn 9.
aprfl n.k. í Arsal Hótels Sögu. I
maí verður svo ráðstefna um
hugbúnaðarmál að vanda og er
ætlunin að dagskrá verði
fjölbreytt og vönduð. Þá verða
haldnir félagsfundir ef tilefni
gefast en þar ríður á að
félagsmenn komi hugmyndum á
framfæri við framkvæmdastjóra
eða stjórnarmenn.
NordDATA ’92
NordDATA ’92 verður að þessu
sinni haldið í T ampere í Finnlandi
og hafa allir félagar SI fengið
sendan skemmtilegan bækling til
kynningar á dagskrá og fyrir-
komulagi öðru.
Það er von okkar í stjórn að sem
flestir sjái sér fært að fara til
Tampere en dagskrá er óvenju
áhugaverð og glæsilega að öllu
staðið. Þessmágetaaðífinnsku
skýrslutæknifélögunum eru meira
en 20.000 félagar þannig að það
er öflug hreyfing sem að baki er
að þessu sinni!
Ástæða til bjartsýni
Nokkur umræða hefur verið
innan stjórnar urn starfið fram-
undan ekki síst í ljósi þeirrar
svartsýnisumræðu sem á sér stað
hérálandi. Er ákveðið að halda
áfram jafnöflugu starfi og verið
hefur en gæta fyllst aðhalds í
kostnaði án þess að það bitni á
gæðum þess sem gert er.
Þátttökugjöld á ráðstefnum verða
þau sömu og þau hafa verið frá
1990.
Þetta er gert í trausti þess að
félagar SÍ muni áfram styðja við
bakið á starfsemi félagsins og
leggja sitt af mörkum með
þátttöku í ráðstefnum og fundum
á þess vegum og skilvísum
greiðslum félagsgjalda.
Síðustu vikur hafa sannfært okkur
um að það er ástæða til bjartsýni
um þetta nær aldarfjórðungs-
gamla félag okkar!
5
Tölvumál