Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Síða 6

Tölvumál - 01.04.1992, Síða 6
Aprfl 1992 Frá ársfundi SÍ: Fjarskipti og samskipti í sameinaöri Evrópu Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri Góð fjarskiptaþjónusta er ein af mikilvægari forsendum bættra lífskjara. í nútímaþjóðfélagi er þjónustan hluti af samskiptum heimila, stofnana og fyrirtækja, jafnt innanlands sem við fjarlæg lönd. Aðgangur að góðri fjar- skiptaþjónustu skapar grundvöll öryggis einstaklinga, fjárhags- Einkaréttur ríkisins á sölu notendabúnaðar var afnuminn 1984 legrar þróunar og menningarlegra framfara og hefur þar stefnu- mörkun stjórnvalda mikil áhrif. Þörfin fyrir samskipti og upplýs- ingaflutning eykst stöðugt. Magnið verður æ meira og kröf- urnar háværari að flutningurinn gangi hratt og örugglega hvort heldur er um að ræða texta, tal, flutning gagna, hljóð eða sjónvarp. í dag sjáum við ákveðinn sam- runa fjarskiptaþjónustu og tölvu eðaskýrsluvinnslu (communicat- ion &computing). 820milljónir "talsímatækja" eru til í heiminum og 70 milljónir "ekki taltækja" (non-voice). Þar af eru 43 m i l lj ónir tölva. 1995eráætlaðaðfjöldinn verði orðinn 950 milljónir "taltækja" og 195 milljónir "ekki taltækja". Við sjáum fram á gífur- legan vöxt í atvinnugreinum sem tengjast þessum búnaði og nýtt umhverfi skapast í atvinnumálum, viðskipta- og félagslífi. Rekstur símafyrirtækja hefur á síðustu árum breyst úr því að byggja á fremur einfaldri tækni og einkaleyfum yfir í það að fyrirtækin eru rekin í harðri samkeppni þar sem ný tækni og nýjar þjónustugreinar eru stöðugt aðkomafram. Símareksturkrefst gífurlegs fjármagns ogtæknilegar ákvarðanir hafa mikil áhrif á reksturinn. Því er nauðsynlegt að þeir sem taka ákvarðanir um tækninýjungar og fjárfestingar hafi skilning á viðskiptahlið fyrirtækjanna ásamt þörfum markaðarins. Því er brýn þörf á því að verkfræðingum og við- skiptafræðingum og öðrum þeim sem koma nálægt rekstri fyrir- tækja sé kynnt hvernig tækni, rekstur og fjármál spila saman og að þeir fái stöðuga viðbótar- og eftirmenntun. í Danmörku veröur öllum sjálfstæðu símafyrirtækjunum steypt saman við ríkissímastofnun Efnahagsbandalagið (EB) hefur s.l. áratug mótað nýja stefnu í fjarskiptamálum, 1987 og ’88 gaf það út s.k. "græna bók", sem fjallar m.a. um sérstakar eftirlits- stofnanir, sem skulu semja reglu- gerðir og annast eftirlit óháð símafyrirtækjum. í "Grænu bók- inni” er mörkuð stefna til aukins frjálsræðis og samkeppni á vörum og þjónustu áfjarskiptasviði m.a. með því að draga úr ýmsum hömlum. Tilgangurinneraðefla evrópskan markað fyrir allskonar Símarekstur krefst gífurlegs fjármagns og tæknilegar ákvarðanir hafa mikil áhrif á reksturinn þjónustu og stuðla að tæknilegri þróun og eflingu iðnaðarins. Engu að síður er gert ráð fyrir að grunnþjónusta almenna fjar- skiptanetsins þ.e. talsímaþjón- ustan og að einhverju leyti gagna- flutningsþjónustan verði áfram rekin af símafyrirtækjum með einkaleyfum. Sama gildir um fjarskiptaskerfin sjálf almennt. Hinsvegar skal virðisaukaþjón- usta vera frjáls ásamt sölu enda- búnaðar. Þarereinnigkveðiðá um að símafélög megi og eigi að taka þátt í sölu notendabúnaðar og geti einnig tekið þátt í virðis- aukandi þjónuslu, þegar hag- kvæmt þykir. f mörgum veigamiklum atriðum er ekki um að ræða verulegan mismun á tilskipunum EB og íslenskum lögum. Einkaréttur ríkisins á sölu notendabúnaðar var t.d. afnuminn 1984 eða 4 6 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.