Tölvumál - 01.04.1992, Page 25
Apríl 1992
hafði verið möguleg, þar sem
allar heimsóknir höfðu áður
verið skráðar í um 10 bækur allt
eftir eðli heimsóknarinnar.
Fljótlega sýndi sig að ekki var
nægjanlegt að geta bókað eina
og eina heimsókn í einu heldur
þurfti að vera hægt að skilgreina
heila meðferð og bóka hana í
heild, t.d. ef sjúklingur á að koma
daglega næstu 25 daga í geisla-
meðferð á línuhraðli. Farin var
sú leið að skilgreina meðferðar-
skemu sem lýstu heilum með-
ferðum og bóka allt skemað í
einu. Allt árið 1988 var unnið
að þessu og því að gera kerfið
sveigjanlegra og opnara með því
að hafa það töfludrifið.
Hinn 1. mars 1989 opnaði hin
nýja K-bygging Landspítalans, en
hún hýsir Geislameðferðar-
einingu Krabbameinslækninga-
deildarinnar, og um leið var ný
útgáfa af kerfinu tekin í notkun.
Þessi útgáfa var hin fyrsta sem
segja má að staðið hafi undir
þeim væntingum sem gerðar voru
4 árum áður þegar verkefnið
hófst.
Tölvuþekking hf. og
útflutningur
í júlí 1988 var Tölvuþekkingu
breytt í hlutafélag og stærstir
hlutahafa urðu, ásamt Oddi
Benediktssyni, Ríkisspítalar og
Tækniþróun h.f. Um sama leyti
var farið að huga að sölu
kerfisins erlendis. Helst voru
bundnar vonir við að selj a kerfið
til dönsku Ríkisspítalannaen þær
vonirbrugðust. Þávarmérásamt
Gunnari Ingimundarsyni, for-
Conference invitafion
t
Félagsmenn munu hafa fengið
sendan bækling um
NordDATA'92, ráðstefnu
norrænu skýrslutæknifélaganna,
sem að þessu sinni verður haldin
í Tampere í Finnlandi, 15. - 18.
júnín.k. Ibæklingnummásjáað
dagskrá verður mjög fjölbreytt
og fyrirlesarar koma víða að
(m.a. frá Islandi).
Að beiðni Skýrslutæknifélags
íslands hefur ferðaskrifstofan
ALÍS í Hafnarfirðir tekið að sér
að útvega hagkvæmustu
fargjöldin og annast aðra
fyrirgreiðslu fyrir feiagsmenn.
Þeir sem hafa hug á að sækja
ráðstefnuna er því bent á að snú
sér til ferðaskrifstofunnar ALÍS.
ÆÍC
Jr mwmmmr
FERÐASKRIFSTOFA
25
Tölvumál