Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Page 29

Tölvumál - 01.04.1992, Page 29
Apríl 1992 Utflutningur á almenningshugbúnaði Friðrik Skúlason Höfundur þessarar greinar hefur síðastliðin fimm ár staðið í því að pranga PC-hugbúnaði inn á íslendinga með þokkalegum árangri - þrjú forritanna hafa selst í 500-1000 eintökum, en það eru ritvilluleitunarforritið Púki, ætt- Hvað skal gera ef menn telja sig vera með í höndunum forrit sem unnt er að selja í umtalsverðu magni erlendis? fræðiforritið Espólín og veiru- varnarforritið Lykla-Pétur. Það var ljóst frá upphafi að ekki yrði um verulegan útflutning á Púka og Espólín að ræða - enda bæði forritin hönnuð sérstaklega fyriríslenskarþarfir. Aðvísuvar eitt eintak af Púka selt til færey ska háskólans (Fróðskaparseturs F0r0ya), en útflutningur af þeiiTÍ stærðargráðu er varla í frásögur færandi. Veiruvarnarforritið varhins vegar talið eiga erindi á hinn alþjóðlega markað og hafa tilraunir til að selja það erlendis nú staðið yfir í rúmt ár. Sumt af þeirri reynslu sem fengist hefur af þessum til- raunum á við urn allan hugbún- aðarútflutning, en annað er tak- markað við þátegund hugbúnað- ar sem ég nefni "almennings- hugbúnað". Hér er um að ræða ódýr forrit sem höfða til flestra tölvunotanda, en ekki forrit sem seld eru fyrir tugi eða hundruð þúsunda eða hafa eingöngu mjög þröngan markhóp. Það kann að virðast þversagnar- kennt, en að öllu öðru óbreyttu er erfiðara að selja forrit eftir því sem þau höfða til fleiri. Sé ein- göngu unnt að selja forritið ör- fáum aðilum í heiminum, er auðvelt að hafa samband við alla þessa hugsanlegu kaupendur, en slíkt verður erfiðara eftir því sem markhópurinn stækkar. Erfiðasti markaðurinn er almenn- ingshugbúnaðarmarkaðurinn, bæði vegna stærðar og vegna samkeppni. Þróun hugbúnaðar sem höfðartil stórs hluta notanda er mjög fýsilegur valkostur fyrir stór erlend hugbúnaðarfyrirtæki - fyrirtæki sem láta sig ekki muna um auglýsingakostnað upp á nokkra tugi milljóna. Þar sem íslensk hugbúnaðarfyrirtæki eru Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að hafa lögfræðilegu hliðina á hreinu - alla samninga þarf að bera undir lögfræðinga áður en skrifað er undir flest mjög lítil á alþjóðlegan mælikvarða og hafa hreinlega ekki bolmagn til að keppa við hugbúnaðarrisana er sennilega ráðlegra að reyna ekki að remb- ast við útflutning á almennings- hugbúnaði, en einbeita sér þess í stað að sérhæfðari hugbúnaði, þar sem við Islendingar stöndum jafn vel að vígi og erlendir samkeppnisaðilar. En ef menn vilja endilega reyna að markaðssetja almennings- hugbúnað, hvað er þá til ráða? Hvað skal gera ef menn telja sig vera með í höndunum forrit sem unnt er að selja í umtalsverðu magni erlendis? Hér á eftir fylgja nokkrar ráð- leggingar sem eru miðaðar við smærri hugbúnaðarfyrirtæki, jafnvel á íslenskan mælikvarða. I fyrsta lagi þurfa menn að hafa söluhæfa vöru. Hafi hugbúnaður- inn ekki selst vel á íslandi er borin von að hann nái milljónasölu erlendis. Þótt íslenski hugbún- aðarmarkaðurinn sé hvorki stór né þróaður er hann ágætur til prófunar að þessu leyti. Það er því miður allt of algengt að rnenn æði af stað með hálfkláraða hug- mynd og ætli sér að verða ríkir á svipstundu. Þá gæti farið svo að tíma og fyrirhöfn sé eytt í dýrar kynningar- og sölutilraunir, en með næsta litlum árangri. I öðru lagi verður að ákveða hvað á að gera við hugbúnaðinn - hvernig ætlunin er að hala inn pening, en segja má að um fjórar leiðir sé að ræða: Selja hugbúnaðinn með öllum réttindum lil einhvers erlends aðila sem myndi síðan sjá um alltframhaldið. Höfundurmyndi síðan fá í sinn hlut ákveðna prósentu (oftast 5-15%) af búðarverði. 29 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.