Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Side 37

Tölvumál - 01.04.1992, Side 37
Apríl 1992 6. gr. Stjórnin skipar starfsnefndir eftir því sem hún telur ástæðu til. 7.gr. Innan félagsins skal starfa siðanefnd sem hefur það hlutverk að kveða upp úrskurði um kærur sem berast vegna meintra brota á siðareglum félagsins. Siðanefnd hefur einnig heimild til að taka upp mál viðvíkjandi meintum brotum. Siðanefnd skal skipuð þremur mönnum og skal aðalfundur kjósa þá. Komi upp sú staða að nefndarmaður í siðanefnd tengist meintu siðabroti skal hann skilyrðislaust víkja og stjórn félagsins skipa staðgengil. Kærur til siðanefndar skal taka fyrir án tafar og úrskurður kveðinn upp eins fljótt og verða má eftir könnun og gagnasöfnun. Urskurðir siðanefndar eru öllum opnir og er siðanefnd og stjórn heimilt að birta þá opinberlega, ef rík ástæða er talin til. B.gr. Stjórnin kemur fram fyrir hönd félagsins, jafnt á innlendum sem erlendum vettvangi, gagnvart stjórnarvöldum og öðrum félagssamtökum, og sker úr um þau atriði varðandi störf eða málefni félagsins, sem ekki eru ákveðin í félagssamþykkt eða með atkvæðagreiðslu á fundum. Ef atkvæði falla jöfn á stjórnarfundum ræður atkvæði formanns úrslitum. Stjórnin velur, innan sinna vébanda, þann eða þá, er hafa leyfi til að skuldbinda félagið og ávísa greiðslum úr sjóði þess. Stjórnin skal færa og gefa út félagaskrá, og annast innheimtu félagsgjalda. 9. gr. Stjórnin skal boða til funda, þegar hún telur þess þörf, eða ef 1/5 hluti félagsmanna óskar þess. Aðalfund skal halda fyrir lok janúarmánaðar ár hvert, og skal boða hann með 14 daga fyrirvara. 10. gr. Tillögur um brey tingar á félagssamþykkt skal senda stjórninni fyrir 1. nóvember, og verða þær þá lagðar fyrir næsta aðalfund. Breyting á félagssamþykkt öðlast ekki gildi, nema hún sé samþykkt með minnst 2/3 hlutum atkvæða fundarmanna, á löglega boðuðum aðalfundi. Siðareglur SÍ Góðir siðir teljast: - að koma heiðarlega fram við viðskiptavin, seljanda búnaðar, vinnuveitanda, launþega, keppinauta, samstarfsaðila, opinbera aðila eða almenning í landinu og hvorki skaða viljandi né nota vafasama starfshætti; - að dreifa ekki upplýsingum sem veittar eru í trúnaði eða misnota þær; - að virða höfundarétt, vörumerki, einkaleyfi og annan huglægan rétt; - að upphefja ekki sjálfan sig á kostnað annarra og taka tillit til annarra; - að beita ekki illkvittni eða röngum ásökunum; - að hlíta lögum og reglum um viðskiptahætti; - að taka ekki við þóknunum eða fríðindum frá þriðja aðila nema samþykki verkkaupa komi til, þegar unnið er sem verktaki eða ráðgjafi. Æskilegt er talið: - að auka færni sína sem mest á hverjum tíma; - að auka orðstír félagsins; - að miðla af faglegri reynslu sinni á vettvangi félagsins. 37 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.