Vísir - 12.09.1962, Page 4
4
Miðvikudagur 12. sept. 1962
•''StR
skömmu. Spurðum vfð hann
hvenær hann hafi fyrst farið að
hugsa um að koma til íslands.
— Það er um ár síðan ég fór
fyrst að hugsa um það fyrir
alvöru.
Ég hef nýlega gert kvikmynd
ir og bækur frá Grikklandi og
Egyptalandi. Þau eru bæði mjög
sögurík lönd og fannst mér því
eðlilegt að ísland yrði næst í
röðinni. í öðru lagi hef ég alltaf
haft mikinn áhuga fyrir nor-
rænni menningu. í þriðja lagi
vita Frakkar mjög lítið um ís-
land og íslenzkar bókmenntir
og menningu. Þessu þarf að
breyta. í fjórða lagi er þetta
hugboð. Ég hef alltaf haft á til-
finningunni að ísland væri töfr-
andi og skemmtilegt land og ég
hef haft rétt fyrir mér.
— Hvað finnst yður mest
einkennandi fyrir ísland?
— Það sem mér finnst sér-
kennandi fyrir landið er hvað
það er stórt og strjálbýlt. Lands
lagið er ákaflega stórfenglegt
og kyrrðin og auðnirnar grípa
mann. Landið er mjög vel til
P! myndatöku fallið.
— Vissuð þér mikið um ís-
land áður en þér komuð?
— Ég hef komið hingað áður,
árið 1948, þegar ég fór til Græn
lands með Poul Emile Victor,
sem kvikmyndatökumaður. Auk
þess hef ég lesið mikið um land
ið. í bæjarbókasafninu í Nica
fann ég meira að segja 18 bæk-
ur um ísland, þar á meðal sex
bækur eftir Gaimard.
— Þegar Frakki kemur til
íslands fylgir hann gamalli
tradition. Frakkar hafa komið
hér mikið, leiðarxgrar hafa farið
hingað, ferðamenn komu hér
oft fyrr á öldum og syo var hér
aíltaf mikið af frönskum sjó-
mönnum. Frakkar þekkja flestir
ísland einnig af öðrum ástæð-
Samivel til hægri ásamt Patrick Plumet, aðstoðarmanni
sínum.
Undanfarna mánuði
hefur dvalizt hér á landi
franskur kvikmynda-
tökumaður og rithöfund
ur, sem notar dulnefnið
Samivel, sem tekið er
úr ævintýrum Pickvicks
eftir Dickens. - 'Hefur
hann unnið hér að kvik-
mynd og bók um ísland.
— Hún verður það ekki í
venjulegum skilningi. Við höfð-
um tílbúið „scenario“ eða kvik-
myndahandrit, áður en við kom-
um hingað og vissum nákvæm-
lega hvað við ætluðum að
mynda. Myndin mun taka um
einn og hálfan tíma og þvi
verða mun lengri en fræðslu-
myndir eru venjulega. Við reyn
um að gera sögu landsins lif-
andi með því að sýna landslag.
— Svo tekið aæmi, fylgjum
við slóð Eiríks rauða frá Breiða
firði til Bröttuhlíðar á Græn-
landi Sagan verður þar lifandi,
án þess að þörf sé fyrir að
nota leikara. Við notum leik-
ara í örstuttum atriðum, en
ekki mörgum. Meðal annars
kemur Halldór Kiljan Laxness
fram í myndinni, en að sjálf-
sögðu ekki sem leikari.
— Notið þið eitthvað efni úr
atvinnulífi landsins á okkar
dögum?
— Það er ætlunin að gefa
heildarmynd af landinu í fortíð
og nútíð. Því höfum við talsvert
efni frá fiskveiðum og land-
búnaði, enda hefur hvort
tveggja verið mjög snar þáttur
I sögu ykkar.
— Notið þið mikið af ís-
lenzkri list?
— Við notum mikið af mynd-
um frá Þjóðmynjasafninu í
bókinni. Einnig höfum við tek-
ið nokkuð af myndum af verk-
um nútímalistamanna, þeirra
Ásmundar Sveinssonar, Bar-
böru Árnason og Kjarvals.
^ Franskir
^ kvikmynda-
^ menn feta
4 í fótspor
^ Eiríks rauða
* í Dölum,
4 Breiðafjarðar-
4 eyjum og
4 Bröttuhlíð
— Hvenær, verður myndin
frumsýnd?
— Hún verður fyrst sýnd í
eru ekki með tali, heldur flyt
ég fyrirlestra með þeim. Einnig
er í ráði að franska sjónvarpið
noti eitthvað af myndinni.
— Tilgangur minn með kvik-
myndinni og bókinni er að
vekja skilning og áhuga Frakka
á íslandi. Ég er þess fullviss að
þið fáið fleiri franska ferða-
menn en nokkru sinni fyrr,
strax næsta sumar.
Að lokum segir Samivel, með
glampa i augum: — Það sakar
Kyrrðin og
rípa mann
Samivel hefur áður j>ert bók
og kvikmynd um bæði Egypta-
land og Grikkland. Hann hóf
feril ,sinn, sem teiknari og bóka
skreytari. Fékkst hann aðallega
við að gera barnabækur, en fór
fljótlega að skrifa, bæði ævin-
týri og smásögur.
Síðar sneri hann sér að kvik-
myndagerð og hefur þegar gert
allmargar myndir og hafa þær
hlotið góðar undirtektir. Nokkr-
ar þeirra hafa einnig hlotið
verðlaun frá ýmsum aðilum.
Blaðamönnum gafst tækifæri
til að hitta Samivel áður en
hann fór af landi brott fyrir
um. Öll frönsk börn kannast
við Snæfellsjökul, úr sögu
Jules Verne og iangar öll til að
sjá hann. Þá er mönnum mjög
ofarlega í minni slysið er
Pourquoi-Pas fórst og með því
hinn kunni vísindamaður Char-
cot.
— Við höfum tekið myndir
af strandstaðnum og öllum
þeim munum sem náð hefur
verið úr flakinu.
— Verður mynd þessi
l fræðslumynd?
París í febrúar, í 2500 manna
húsi. Síðan verður hún sýnd
um frönskumælandi lönd á
vegum samtakanna Connai-
sance de Monde. Ég hef þann
hátt á að myndir sem ég geri
ekki að geta þess að þið hafið
fleira en náttúrufegurð á ís-
landi. Það eru fleiri fallegar
stúlkur í Reykjavík en í allri
París. Ég vona bara að það hafi
enginn þetta eftir mér í París.
Lesið Vísi eftir vinnudaginn