Vísir - 15.09.1962, Síða 3
^augardagur 15. sept. 1962.
VISIR
YNDSJ
> ,..í -
ÍiliÉlfl
mm
■ . •■:;■ .; ,
■
■ ‘is* <•:
Naesta mynd sýnir fjóra af
öryggisvörðum Ben-Gurions
ræða saman í Hótcl Valhöll.
Þetta eru ákveðnir menn og
harðsnúnir útiits og vlkja varla
fótmál frá forsætisráðherra sin-
um. Þeir kváðust þó elga náð-
uga daga hér á íslandi og vera
ánægðir með ferðina. Er blaða-
maður Visis spurði þá, hvað
þeir óttuðust helzt, svöruðu
þeir, að það væru Arabar eða
nazistar, sem kynnu að sitja um
lif Ben-Gurions.
Myndsjáin f dag blrtir svip-
myndir úr Þingvallaferð forsæt-
isráðherranna i gær. Eins og
greint cr frá á öðrum stað i blað
inu, tókst ferðin með afbrigðum
vel. Voru hinir ísraelsku blaða-
menn á einu máli um það, að
Ben- Gurion hefði hvergi verið
eins vel teklð og hér. 1 ferðlnnl
ríkti gleði og kátina, ekki ein-
ungis meðal fréttamannanna,
heldur engu sfður meðal hinna
tignu gesta, sem léku á als oddi
og skemmtu sér með afbrigðum
Neðsta myndln er tekin f
Reykjadal fyrir ofan Hvera-
gerði,, og sýnir hún Ben-Gurion
virða fyrir sér gufuafiið, sem
þeytist út úr borholu, sem opn-
■" var til að sýna honum mátt
landsins. Ben-Gurion var mjög
snortinn af þessari ó.skaplegu
orku og bað Ólaf Thors að gefa
r ■ borholuna, eins og' vikið e>
að annars staðar í blaðin->
Efsta myndin sýnir Óiaf
Thors, forsætisráðherra á tali
við rltara Bcn-Gurions, og vlrð-
ist fara vel á með þeim. Þá eru
forsætisráðherrafrúmar ekki sfð
ur ánægðar á svip. Þær ræddu
saman fjörlcga, og bar margt á
góma f samtali þelrra, og það
kom greinilega fram, að
þær kunnu engu siður að meta
gamanyrði en eiginmenn þelrra.