Vísir - 15.09.1962, Blaðsíða 6

Vísir - 15.09.1962, Blaðsíða 6
i 6 VÍSIR Laugardagur 15. sept. 1962 Skrifstofuhúsnæði Skrifstofuhúsnæði, helzt 2 herb., óskast í miðbænum eða nágrenni. Uppl. í síma 16881. RÖSKUR sendisveinn óskast. Vinnutími 8,30 til 12 f. h. Upplýsingar í prentsmiðjunni Laugaveg 178. Dagbioiið Vísir Frá Gagnfræðaskólum Reykjavíkur Nemendur mæti í skólunum Mánudaginn 17. þ. m., kl. 4—7 síðdegis, til skráningar (1. og 2. bekkur) og til staðferftingar á umsóknum sínum (3. og 4. bekkur). l. og II. BEKKUR: Skólahverfin verða óbreytt frá s.l. vetri, að því und- anskildu, að nem. 1. bekkjar búsettir í Blesugróf og við Breiðholtsveg sækja nú gagnfræðadeild Miðbæj- arskóla. Þann skóla sækja einnig nemendur búsettir í Hvassaleitishverfi (vestan Háaleitisbrautar). Nemendur 1. bekkjar hafi með sér barnaprófsskírteini. III. bekkur LANDSPRÓFSDEILDIR: Þeir, sem luku unglingaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Haga- skóla og Vogaskóla, mæti hver í sínum skóla, aðrir, er sótt hafa um landsprófsdeild, komi í Gagnfræða- skólann við Vonarstræti. III. bekkur ALMENNAR DEILDIR: Nemendur, er luku unglingaprófi frá Hagaskóla og Vogaskóla mæti hver i sínum skóla. Nemendur frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og Miðbæjarskóla mæti í Gagnfræðaskóla Vesturbæjár. Aðrir, er sótt hafa um almennar deildir, komi í Gagnfræðaskóla Austur- bæjar. III. bekkur VERZLUNARDEILDIR: Umsækjendur mæti þar, sem þeir hafa fengið loforð um skólavist. m. bekkur VERKNÁMSDEILDIR: Hússtjómardeild: Umsækjendur komi í Gagnfræða- skólann við Lindargötu. ' Sauma- og vefnauardeild: í Gagnfræðaskólann við Lindargötu komi umsækjendur, er unglingaprófi luku frá þeim skóla og frá Miðbæjarskóla. í Gagnfræða- skóla Vesturbæjar komi umsækjendur með unglinga - próf frá þeim skóla og Hagaskóla. Aðrir umsækj- endur, um sauma- og vefnaðardeild, komi í Gagn- fræðaskóla verknáms, Braytarholti 18. Trésmíðadeild: í Gagnfræðaskóla verknáms komi um- sækjendur, er luku unglingaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar, Laugarnesskóla, Réttarholtsskóla og Vogaskóla. Aðrir umsækjendur um trésmíðadeild komi í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Hringbraut 121. Jámsmíða- og vélvirkjadeild: Umsækjendúr mæti í Gagnfræðaskóla verknáms. Sjóvinnudeild: Umsækjendur komi í Gagnfræðaskól- ann við Lindargötu. Umsækjendur 3. bekkjar hafi með sér prófskírteini. IV. BEKKUR: Umsækjendur mæti þar, sem þeir hafa sótt um skóla- vist. Nauðsynlegt er, að nemendur mæti eða einhver fyrir þeirra hönd, annars eiga þeir á hættu að missa af skólavist. Fræðslustjórinn í Reykjavík. Miklar framkvæmdir vii nýja Keflavíkurveginn — en ástnnd gamla vegarins bágborið 1 allt surnar hefur verið unnið stanzlaust að framkvæmdum við Keflavíkurveginn. 1 sum- ar var unnið að því að gera upp fyllingu nýja vegarins alla Ieið suður á Hvassahraun og sýnir myndin hvar endinn á þeim vegi er nú kominn, en gamli Kefla- víkurvegurinn liggur við hlið hans. í næstu viku á svo að byrja að steypa þann hluta vegarins, sem liggur fram hjá Hafnarfirði, frá Engidal og suður á bóginn. Eru steypuvélar nú komnar á staðinn og nokkuð magn af sem enti, en þegar steypuvinnan byrj ar verður farið að flytja sement með skipi til Hafnarfjarðar. Á meðan þessar framkvæmdir standa yfir, kvarta bifreiðastjór ar á Suðurnesjum yfir því, að viðhaldi gamla Keflavíkurvegar ins sé mjög ábótavant. Sérstak- lega hafa Sérleyfisbifreiðarnar kvartað yfir þessu. Segja þeir að ástand vegarins í sumar hafi verið svo bágborið að þeir muni ekki eftir öðru eins og eru sum ir þó búnir að aka þennan veg í 20 ár. Vegna þessa sendu Sér- leyfisbifreiðastöð Keflavíkur, og Aðalstöðin bæjarstjóm Kefla víkur nýlega bréf, þar sem þess er farið á Ieit að hún vinni að þvf ásamt þingmönnum kjör- dæmisins að fá sem fyrst bætt úr þessu ófremdarástandi. Vegamálastjórnin hefur svar- að kvörtunum þeirra Suðumesja manna með því að þýðingar- laust sé að bera ofan í veginn þegar þurrkatíð sé, því að ofanf- burður rjúki þá þegar burt úr veginum. Þl verður núna með haustinu unnið að þvf að aka möl í veginn. Það sem af er árinu hefur ofaníburður fyrir hálfa milljón króna verið ekið í veginn. HELGAFELLSBÆKUR Prentun jólabókanna f ár er haf- in fyrir nokkru. Bókaútgefendur hafa fengið handritin f hendurnar og liggur nú Ijóst fyrir hvaða bæk- ur munu verða á markaðnum. Helgafellsútgáfan hefur upplýst Vfsi um að frá henni muni koma um 20 bækur af ýmsu tagi. Merkastar þeirra verða eflaust málverkabækur Ásgrfms og Blön- dals, sem tilbúnar verða í næsta mánuði. Málverkabók Ásgríms er á allan hátt miklu meiri og glæsi- legri/en hin fyrri, er var sú fyrsta sem forlagið gaf út. í henni eru meira en helmingi fleiri litmyndir og flestar mun stærri. I fyrri bók- inni voru aðallega myndir frá sfð- ustu árum málarans, en í þessari eru myndir frá öllum tímum. Þá birtist í bókinni ný gerð af endur- minningum Ásgríms, er Tómas Guðmundsson skráði rétt áður en Ásgrímur dó, bæði á fslenzku og ensku. Bók Gunnlaugs Blöndal verður með álíka mörgum litmynd um og ritgerð eftir Eggert Stefáns- son, prentuð á fjórum tungumál- um, en inngang skrifar Ríkharður Jónsson myndhöggvari. Bók þessi hefur verið tvö ár f undirbúningi og valdi Gunnlaugur allar myndir sjálfur og kápumynd, langflestar á yfirlitssýningu Menntamálaráðs. Þá gefur Helgafell út skáldsög- una Benóní eftir Hamsun í þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðar- nesi, Vísnasafn Jóhanns frá Flögu Höldum gleði hátt á loft og Stund og staðir ný ljóðabók eftir Hannes Pétursson. Var sagt frá henni hér í blaðinu í gær. Þrjár ijóðabækur gefur Helgafell út en þær eru allar fyrstu bækur höfundanna. En þeir eru Kristján rnason, Þóra Magnea, 16 ára stúlka úr Reykjavík og Guðmund- ur Sigurðsson velþekkt gaman- vísnaskáld. Þá kemur út bókin Dagleið á Fjöllum, sem ekki hefur fengizt í 30 ár. Síðast en ekki sízt kemur út leikrit Kiljans Prjónastofan Sól- in. Mun hún koma í október. Afgreiðslumaður AfgreiÖslumaður óskast í véla- og varahluta- verzlun. Umsókn ásamt uppl. um fyrri störf sendist blaðinu fyrir 20. þ. m. merkt Véla- verzlun. )

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.