Vísir - 15.09.1962, Blaðsíða 10
V/SIR
Laugardagur 15. sept. 1962.
Lyndon Johnson, vara-forseti, valdi þessa mynd, sem tekm
er af honum og Lucius Clay í Vestur-Berlín. Hann segir:
„Hún nær hinni dramatízku spennu, sem ríkti á meðan
Berlínardeilan stóð sem hæst og lýsir einbeittri stefnu okkar
í Vestur-Berlín.
Það getur verið vafasöm ánægja að
sjá sjálfan sig eins og aðrir sjá mann.
Þefta hafa þó Kennedy forseti og ráð-
herrarr hans orðið að þola í meira mæli
en flestir aðrir, síðan þeir tóku við
stjórn. Flestir sjá þá ekki í eigin per-
sónu, heldur í gegnum myndavélar
blaðaljósmyndaranna. Vafasamt má
teljast að nokkrir menn hafi verið jafn
rækilega eltir og þeir og harla fátt,
sem þeir gera, sem ekki birtist myndir
af, Voru þeir nýlega beðnir að velja
úr öllum þeim ósköpum af myndum
þá mynd, sem þeim líkaði bezt af sjálf-
um sér. Birtum við hér nokkrar þeirra.
Robert Kennedy dóms-
málaráðherra valdi mynd, þar
sem hann stendur að baki
bróður sínum, er hann undir-
ritar lög, sem ætluð eru til að
minnka skipulega glæpastarf-
semi.
Fjármálaráðherra, Douglas Dillon, valdi þessa mynd, sem
er tekin á fundi með fjármálanefnd þingsins. Segist hami
gera það vegna þess að hann eyði meiri tíma í að svara
spumingum þingmanna og blaðamanna en nokkuð annað.
Dean Rusk, utanríkisráðherra, valdi þessa mynd af sér, þar
sem hann er í knattleik er nefnist „bo\vIing“. Kvaðst hann
velja þessa mynd vegna þess að hún sýnir eitt þeirra fáu
augnablika sem hann er ekki að vinna og skemmtir sér
auk þess konunglega.
Kennedy sú bezta, af öllum þeim fjölda, sem teknar hafa verið síðan hann tók við embætti
forseta. Kennedy hefur mjög gaman af myndum af fjölskyldu sinni og hefur meðal annars
myndir af bömum sínum á skrifborðinu.