Vísir - 21.09.1962, Blaðsíða 8
I8
---
y
Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR.
Ritstjórar. Hersteinn Pálcson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ö. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjaid er 45 króuur á mánuði.
í lausasölu 3 kr. eint. — Simi 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vísls. — Edda h.f.
vi____________________________ J
Er nafnbreyting í aðsigi?
Þrálátur orðrómur hefur gengið um það undan-
farið, að kommúnistaflokkurinn á ísladi ætli nú einu
sinni enn að fara að skipta um nafn. Síðustu árin hefur
flokkurinn verið eins konar þríhöfðaður þurs, þ. e.
Sameiningarflokkur Alþýðu - Sósialistaflokkurinn,
Alþýðubandalagið og Frjálsþýðið. Þetta hefur ekki
gefizt vel. Fylgi kommúnista hefur farið minnkandi
með þjóðinni, þrátt fyrir allar þessar blekkingartil-
raunir, og nú telja sumir foringjarnir að eitthvað þurfi
að gera til þess að stöðva fylgishrunið.
En skoðanir eru þó að vissu leyti skiptar. Hinir
harðsoðnu Moskvu-kommúnistar, sem raunverulega
ráða öllu í flokknum, þegar þeir vilja telja það ekki
skipta megin máli, hve fjölmennur hann sé. Hitt er
aðalatriðið að harðsnúinn kjarni hreinræktaðra komm-
únista sé alltaf til í landinu, því að þeir vita sem er,
að þeir ná hér aldrei völdum með lýðræðislegum hætti.
Aðstoð utan frá verður óhjákvæmilega að koma þar
til. Hana eiga þeir vísa, ef veilur skapast í varnarsam-
tökum vestrænna lýðræðisþjóða.
Hins vegar eru þeir margir í flokknum, og meðal
þeirra ýmsir, sem láta þar nokkuð að sér kveða, sem
halda að takmarkið sé að ná meirihluta með lýðræðis-
legum aðferðum. Þeir trúa í barnaskap sínum, að þetta
geti tekizt, þótt það hafi hvergi skeð í heiminum enn,
að kommúnistar hafi náð völdum eftir lýðræðislegum
reglum. Og foringjar Moskvuarmsins verða að sjálf-
sögðu að taka eitthvað tillit til skoðana þessara manna
meðan máluni er svo háttað sem nú er. Svo er hinum
vestrænu varnarsamtökum fyrir að þakka, að valda-
taka kommúnista með byltingu er hér óframkvæman-
leg. Og meðan svo er, verða þeir auðvitað að reyna að
halda utan um fylgi sakleysingjanna, því að hin fá-
menna Moskvuklíka getur litlu komið til leiðar án
tilstyrks þeirra.
Yfirstjórnin á sínum stað
Reynslan hefur sýnt það í þeim löndum, sem hafa |
orðið kommúnismanum að bráð, að erindrekar;
Moskvuvaldsins eru fljótir að losa sig við hina, sem
ganga með einhverja lýðræðisþanka. Það eru engin
not fyrir þá lengur, eftir að völdunum er náð. Svo
mundi einnig fara hér á íslandi, því að yfirstjómin
yrði eins og áður á sínum stað, og hennar boði verða
allir að lúta. Foringjum, sem hafa leyft sér að rísa
gegn vilja hennar, hefur orðið hált á því tiltæki. Venju-
lega missa þeir fyrir það bæði foringjatignina og höf-
uðið.
Aðstaða Moskvuklíkunnar til sakleysingjanna er
ssi. að hún vill gjarnan nota atkvæði þeirra og aðstoð
og beita þeim fyrir sig til ýmissa verka, en hún kærir
sig ekkert um að þeir gangi í flokkinn eða séu að hnýs-
ast í hin raunverulegu áform foringjanna.
VISIR
-Föstudagur 21. september 1962.
//
j Þar halda
l sjálf uppi reglu
;■ f gærdag komst blaða-
■: maður Vísis á snoðir
:■ um að í einum barna-
■: skóla borgarinnar hefði
:■ skólastjórinn gefið út
■: reglugjörð til handa
I; börnunum og foreldrum
;! þeirra. Nú er okkur ekki
kunnugt um, hvort slíkt
í tíðkast í öðrum skólum,
en þar sem framtak
;■ þetta er í alla staði hið
í; lofsverðasta, náðum við
í í skólastjórann, Magnús
■: Sigurðsson í Hlíða-
;• skóla, og inntum hann
■: eftir hver árangurinn
:■ væri af þessari ráð-
■; stöfun.
■J „Mér er óhætt að segja að
Ij foreidrar barnanna , taki mjög
J. vel þeim reglum, sem við setj-
■; um hér í skólanum. Að vísu
;■ kemur það fyrir, að einstaka
í manni finnst við taka of strangt
Ij á hlutum, sem ekki virðast í
;« fljótu bragði skipta miklu máli.
í Mitt álit er hins vegar, að það
;■ sé til Htils að setja reglur ef
|. ekki er farið eftir þeim og
■; reynslan er sú, að börnin taka
Íj fullkomlega tillit til reglnanna
j! og reglu-ag hirðusemin er mun
■| meiri fyrir vikið.
;■ Þetta er mest fyrirmæli um
■; umgengni, og með því að senda
ÍJJ foreldrum orðsendingar heim
J. gefum við þeim kost á því að
«; búa börnin út á þann hátt, sem
;■ við æskjum".
•: Þegar gengið er um ganga og
I; stofur I Hlíðaskóla, ber allt
;« glöggt vitni um það hreinlætiog
■; reglusemi, sem í hávegum er
.JJ haft I skólanum. Skólinn sjálf-
■; ur er allur hinn glæsilegasti og
;■ stofur rúmgóðar og bjartar.
■; Magnús skólastjóri hefur
.■ bryddað upp á ýmsum nýjung-
um, og einna athyglisverðust
þótti okkur sú tilhögun að gera
nemendurna sjálfa að dyravörð-
um. Skiptast þeir þannig á, að
I mesta lagi kemur einn dagur
I hlut hvers nemanda. Gætir þá
viðkomandi krakki þess að ekk-
ert óþarfa ráp sé um gangana
og vaktar sínar dyr allan dag-
eru þannig útbúnar, að fata-
hengi eru I hverri stofu. Kemur
það I veg fyrir vasahnupl og
önnur vandræði, sem hljótast af
því þegar fatnaðurinn verður að
vera á göngum úti. Skór eru
hins vegar geymdir þar frammi,
en börnin verða að ganga vel og
snyrtilega frá þeim. Ef annað
kemur I ljós, er farið með við-
komandi skó upp til skóla-
stjóra og rekur það að sjálf-
sögðu á eftir þeim að ganga
vel frá skófatnaði sínum.
Einnig segir I reglugerðinni,
að skór og ytri fatnaður skuli
merktur greinilega.
Böm eru áminnt um að mæta
stundvíslega við skóladyr. For-
eldrar eru beðnir um að sjá svo
um að skór séu þannig útbúnir,
að fljótlegt sé að komast úr
þeim og I. Þá er mælt svo fyrir,
að börnin hafi aðeins með sér
mjólk og brauð I nesti. Beðið
er um að böm komi sem minnst
á reiðhjólum I skólann. Af því
hafa oft stafað vandræði, bæði
eru strákar, sem „fikta“ I lás-
um og taka jafnvel hjólin
traustataki I drjúgan tlma. Þeir
hjóla þá um skólagarðinn og
valda ekki svo sjaldan slysum
með glannaskap.
Sælgæti er gert upptækt, svo
og teygjubyssur, baunabyssur,
hnífar og annað það, sem hætta
getur stafað af.
í heild virðist slík regla vera
— rabbnð við Magnús Sigurðsson
skólastjóra Hlíðaskóla
inn. Við þetta missir hver nem-
andi aðeins örfáar kennslu-
stundir, en þroskast af starfi
sínu af augljósum ástæðum.
Fleira markvert sýndi Magnús
okkur, sem teljast verður til
nýjunga og mætti þar nefna ó-
teljandi hluti. í skólagarðinum
hefur t. d. verið komið upp
knattspyrnumörkum og skotskíf
um. Eru þær fyrir snjóboltana,
„og þar geta strákarnir kastað
að vild sinni“.
Skólastofumar í Hlíðaskóla
á öllum hiutum i Hilðaskóla,
að ekki er hægt að ætla annað
en þar sé vel á málum haldið.
í skólanum stunda nú um 1000
böm nám á aldrinum 7 til 12
ára, 21 fastur kennari er við
skólann, auk 6 stundakennara.
Eins og er, eru stofumar þrí
setnar, en vonir standa til að
hægt verði að taka 6 nýjar stof-
ur í notkun eftir áramót í vetur.
Em þær í álmu þeirri, sem í
byggingu er nú. Alls eru 18 stof
ur I skólanum eins og er.
/.VJVWW.VAV/J
100 ára afmæli séra
Sigtryggs á Núpi
Hinn 27. þessa mánaðar eru lið-
in 100 ár frá fæðingu séra Sig-
tryggs Guðlaugssonar á Núpi I
Dýrafirði. Séra Sigtryggur var
landskunnur skólamaður á sinni
tíð, merkur kennimaður, tónskáld
og áhrifamikill persónuleiki.
Gamlir nemendur hans frá
Núpi hafa ákveðið að reisa þeim
hjónum, séra Sigtryggi og Hjalt-
línu G. Guðjónsdóttur, minnisvarða
I tilefni þessara tímamóta, og verð-
ur honum valinn staður I hinum
landsfræga skrúðgarði Skrúð að
Núpi I Dýrafirði. Sá garður er
sem kunnugt er handaverk þess-
ara merku hjóna. Ríkharður Jóns-
son er að gera vangamyndir af
þeim, sem steyptar verða I eir, og
er áformað að afhjúpa minnisvarð-
ann næsta vor. Upphaflega var
ætlunin að gera það á 100 ára af-
mælisdegi séra Sigtryggs, en af
því gat ekki orðið. Hins vegar mun
séra Sigtryggs verða minnzt með
ýmsum hætti þann dag og sérstök
minningarathöfn um hann. verður
við setningu Núpsskóla I haust.
Fjársöfnun til minnisvarðans er
að verða Iokið. Baldvin f>. Krist-
jánsson er í minnisvarðanefndinni
og veitti hann blaðinu góðfúslega
þessar upplýsingar.
Á við 50
megatonn
Landskjálftamir, sem urðu
i Suður-Grikklandi og Ítalíu
fyrir skemmstu, vom miklu
öflugri en þeir, sem lögðu
borgina Agadir í Marokko í
rústir árið 1960. Forstjóri
jarðskjálftamælingastofnun-
arinnar í Uppsölum í Svíþjóð
hefir látið vo um mælt^að
samkvæmt mælingum, sem
þar vom gerðar, hafi aflið
yerið um það bil eins og
sprengd hefði verið 50 mega-
lesta sprengja og mundi hrær
inganna hafa gætt 200 km.
inn í jarðskorpuna.