Vísir - 22.09.1962, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. september 1962
VÍSIR
SAS ætti fremur að læra af
Loftieiðum en veitast að þeim
Vinsamleg forastugrein i dönsku bluði
Að uudanförnu hafa dönsk blöð
verið að birta fréttir um að skand-
inaviska flugfélagið SAS hyggi á
einhverjar aðgerðir til að stöðva
samkeppnina frá Loftleiðum. En
ekki eru allir í Danmörku hrifnir
af því að þessi volduga flugsam-
steypa, sem hefur að vissu Ieyti
einokunaraðstöðu beiti afli til að
útiloka litla keppinauta. Þetta kem
ur t. d. greinilega fram í forustu-
grein, sem blaðið Jyllandsposten
SæsSisnga —
Framhald af bls. 1.
lesta veiðiskip, sem fyllir sig af
síld og hefir að auki nylon- eða
gúmmislöngu í togi til lands
fyllta með síld, e. t. v. allt að
50000 málum. Það þarf ekki að
fjölyrða um það hvílíkan sparn-
að flutningaskipa og björgun
verðmæta slíkt hefði 1 för með
sér þegar mikil veiði er. Síldin
er eðlisléttari en salttur sjórinn
og þarf engin flotholt til þess
að halda slöngunum á floti þótt
þær séu fullar af síld.
Síldartpnnur óþarfar?
Þá komum við að saltsíldinni
og í sambandi við hana höfum
við ennþá byltingakenndari
hugmyndir. Við ætlum ekki að
eins að gera tilraunir með að
flytja saltsfld milli landa með
sama lagi og fersksíld af mið-
unum og þeim sparnaði á fragt,
sem slíkt hefði í för með sér,
heldur beinlínis að hafa þessar
slöngui söltunarstöð og salta
beint í þær og yrðu síldartunn-
ur í núverandi mynd óþarfar,
ef sú tilraun tækist að svo
miklu leyti sem farið væri út á
þessa braut. Við hugsum okkur
þá að síldin væri hausskorin og
slógdregin eins og venjulega og
síðan færi hún í „hítina", það
er að segja stóru slönguna og
væri pækluð þar nákvæmlega
eftir sömu forskrift og hún er
pækluð f tunnu. Slangan lægi
auðvitað við bryggju og
geymslupláss sparaðist í landi.
Þarna yrði síldin síðan geymd
unz hún yrði flutt út. I útland-
inu yrði slöngunum síðan lagt
við bryggju, eða festar, og þar
myndi einnig sparast mikið f é,
vegna minni geymslu- og, lager-
kostnaðar.
Viðurkenndar af Lloyds.
Vigfúa sagði að unnið væri
að því að finna sem hagkvæm-
asta lausn á ýmsum tæknileg-
um atriðum, sem kæmu til
greina þegar farið væri að
hugsa til síldarflutninga með
þessum nýju flutningaslöngum,
sem Lloyd tryggingastofnunin í
London hefir þegar viðurkennt
sem flutningatæki. M. a. er
unnið að því að gera opið á
slöngunun: sem aðgengilegast
til að renna síld í það og finna
hagkvæmustu aðferðir til tæm-
ingar. Þá þarf og að tryggja
með einhverjum hætti að síldin
slái sig ekki þegar hún er flutt
í sjó langa ieið milli landa.
Þeir Vigfús og Gísli hugsa
sér að festa kaup á belgjum
þeim eða slbngum, sem um er
ræða, og leigja sfðan út ýmsum
aðilum til síldarflutninga ef til-
raunir þeim ganga að óskum
Væri óskandi að vel tækist því
að hér er sýnilega á ferðinni
mikið hagsmunamál fyrir alla.
birtir, en það er eitt áhrifamesta
blað f Danmörku utan höfuðborg-
arinnar.
í forustugrein þessari er fyrst
vikið að hinum sífelldu breytingum
og óróa, sem hefur verið í SAS.
Þar eru stöðug mannaskipti, fram-
kvæmdastjórar koma og fara og
ríkisstjórnir hinna þriggja landa,
sem að félaginu standa þurfa við
og við að lyfta lokinu af peninga-
kassa sínum. Þrátt fyrir allar breyt
ingar og endurskipulagninu á félag
ið erfitt með að „láta endana mæt-
ast“.
Þá minnir blaðið á þær fréttir,
sem hafa verið að birtast að undan
förnu og koma frá höfuðstöðvum
SAS í Stokkhólmi um að SAS vilji
nú fara að stöðva Loftleiðir. En til
efnið er sagt það að Loftleiðir hafi
náð í farþegaflutning frá Norður-
landamarkaðnum fyrir margar
milljónir króna. En SAS telur, að nú
verði að stöðva þetta og helzt
leysa .málið á einhverjum sameigin
iegum vettvangi.
Þetta telur Jyllandsposten ekki1
hljóða skemmtilega. Hið hálfopin-
bera fyrirtæki, sem hefur einokun-
arréttindi ætli að Iáta til skarar
skríða gegn minna einkafyrirtæki,
sem leyfi sér að taka farþega frá
hinum norraena stórabróður.
Að Iokum segir Jyllandsposten:
„Nútíma flugsamgöngur eru orðnar
spil á æðri stöðum um lendingar-
leyfi o. fl. en norrænu löndin ættu
að fara gætilega og hugsa sig tvisv
ar um, áður en þau leggja SAS
lið í að ýta íslendingunum út úr
samgöngum, en með þjónustu
sinni hafa Loftleiðir eignazt marga
stuðningsmenn bæði í Danmörku,
Noregi og Svíþjój.
Það væri kannske nær fyrir SAS
að reyna að læra eitthvað af hinu
norræna bróðurfélagi, sem flýgur
e. t. v. svolítið hægar en í staðinn
ekki svo lítið ódýrara og eftir því
sem bezt er vitað gerir sömu miklu
öryggiskröfurnar.
Sfrandaði —
Fiamhaid af 16. síðu:
Ingjaldsson á flot, en þá tók ekki
betra við, því að straumur var
þá svo mikill, að skipið sveiflað-
ist yfir álinn, sem það var dreg-
ið út á, og strandaði hinum megin
við hann, þar sem Ólafur Tryggva
son gat ekki rótað því.
Þar sat það svo, þegar lóðsinn
kom á vettvang í fyrradag og gerði
hann fyrstu tilraun •& flóðinu í
fyrrakvöld, en hún bar ekki árang-
ur. Aftur var reynt á hádegi í
gær og tókst þá betur, því að lóðs-
inum tókst að ná skipinu á flot
með nokkrum rykkjum.
Pétur Ingjaldsson verður nú
dreginn til Esju, en óvíst er, hvað
verður um farminn, sem þolir vit-
anlega ekki að liggja í skipinu.
Froskmaður hefir skoðað skipið og
er hællinn brotinn eða beyglaður,
svo og eitt skrúfublaðið.
Veðurafiiuganir —
Framhald af bls. 1.
hugunarstöð í hálendinu, þó að
slík stöð væri mjög þýðingar-
mikil fyrir veðurspár.
Kvað hún helztu möguleika
á föstum veðurathugunum þar
bundna við það, að raforku-
málastjórn hefði þar menn í
sambandi við virkjanir. Hefur
raforkumálastjórn áður haft
samvinnu við veðurstofuna um
þessi mál.
iveifi
Framhald af bls. 1.
þessara bænda og er íslenzka
kornið vel samkeppnisfært við það
erlenda hyað verð snertir, þar sem
aðstæður eru góðar.
Þar sem aðstæður eru góðar,
kostar um þrjár krónur að fram-
leiða kílóið af korni,, þegar reiknað
hefur verið með afskriftum á vél-
um, vinnu bóndans og öðrum
kostnaði. Erlenda kornið kostar
hins vegar nálægt fimm krónum
kílóið.
Hjálpið fötluðum
ti! oð hjálpa sét sjálfum
Á morgun er fjáröflunardagur
Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra og þá er það einlæg ósk okk-
ar, að sem flestir leggi eitthvað
af mörkum, okkur til styrktar. Við
vildum að fólk gerði sér ljóst. að
með bví að hjálpa fötluðum til
sjálfsbiargar. gera beim kleift að
bjarga sér á feigin spýtur, fær þjóð
félagið nýja starfskrafta sem
skapa svo aftur meiri verðmæti
fyrir þjóðina".
Þannig fórust Theodóri Jónssym
formanni sambandsins orð, þegar
Landssamband fatlaðra k-vaddi
,fréttamenn á sinn fund. Forystu-
menn fatlaðra skýrðu fréttamönn
um frá starfsemi Siálfsbiargar
fyrirætlunum og kiaramálum Af
beim upplýsingum er Ijóst að
starfsemin er nú begar orðin rll-
mikil um land allt, og í samband-
inu eru nú 10 deildir. Teknar hafa
verið í notkun áð tilhlutun sam-
bandsins vinnustofur, bæði á Isa-
firði og Siglufirði og á næsta ári
taka til starfa vinnustofur í Reykja j
vík, Akureyri og Sauðárkróki. Þá
hefur Sjálfsbjörg forgöngu , að
flytja inn vmis hjálpartæki fyrir
fatlaða. Voru fréttamönnum sýnd
nokkur þeirra og voru tækin bæði
hentug og einföld á allan hátt
Tímarit er gefið út. Sjálfsbjörg" i
og landssambandið befur opna
skrifstofu alla daga.
Hins vegar eru mikil og stór
verkefni, sem fyrir liggja og bíða
úrlausnar. Stærst þeirra er bygg-
ing öryrkjaheimilis, en ekkert slíkt
heimili er til eins og er. Þurfa fatl-
aðir að dvelia á ellibeimilum of* |
við ,ii-:afnar «a«tæ/5ur innan um ;
fólk á aldrinum 70— 100 ára Slíkt
fer að s'álfsöpðu ekki saman.
Er nú þess að, vænta að fólk
bregðist vel og drengilega við.'þeg-
ar merki Sjálfsbjargar verða seld
á götunum á morgun. I
Hinn frægi La Salle
kvartett leikur hér
La Salle kvartettinn. I honum eru talið frá vinstn á myndmm
Walter Levin, Henry Meyer, Jack Kirstein og Peter
Kammitzer.
Eftir helgina er væntanlegur
hingað til lands á vegum Tónlistar-
félagsins og Kammermúsikklúbbs-
ins einn af þekktustu strengjakvart
ettum Bandaríkjanna, La Salle-
krartettinn. Heldur hann alls þrjá
tónleika hér, tvo fyrir styrktar-
meðlimi Tónlistarfélagsins, á
þriðjudags. og miðvikudagskvöld.
Verða þeir tónleikar haldnir í Aust
urbæjarbíói og hefjast kl. 7 e.h.
Þriðju tónleikana heldur kvartett-
inn fyrir meðlimi Kammermúsik-
klúbbsins í samkomusal Melaskól-
ans á fimmtudagskvöld og hefjast
þeir kl. 9 síðdegis.
Það má tvímælalaust telja heim-
sókn þessa fræga strengjakvartetts
til viðburðar í tónlistarlífinu hér,
því hann er í flokki með fremstu
strengjakvartettum Bandaríkjanna
og hefur fyrir Iöngu öðlazt mikið
álit á sviði kammertónlistar.
Þegar La Salle kvartettinn kem-
ur hingað til lands er hann að
ljúka einni af mörgum tónlistar-
ferðum sínum til Evrópu.
iCönnunin —
Framh at 16. síðu.
draga átti úr. Af 12059 voru
þar samtals 9250 kort og má þó
búast við að enn berist allmörg
kort til viðbótar. Árangur þessi
er mjög góður sagði Einar Páls
son og mun betri en venja er
erlendis“. Er þetta vissulega
gleðilegur vottur um afstöðu
almennings til þeirra verka nins
opinbera, sem til bóta horfa.
Auk þessarar umferðarkönn-
unar fóru fram aðrar tvenns
konar talningar.
Talið var í strætisvögnum
borgarinnar í tvo daga á 24
leiðum og er enn með öllu ó-
unnið úr þeirri talningu. Þá var
og talin umferðin á fjölmörgum
gatnamótum í Reykjavík og
,,er það von okkar,“ sagði Ein-
ar Pálsson, „að af því fáist
mikill og góður árangur." .
Umferðarnefnd hefur þegar
hafizt handa að vínna úr taln-
ingum þessum, reyndar strax
og kort fóru að berast. Fer sú
vinna fram í Hagaskóla. Þar eru
rúmlega 10 manns í þeirri vinnu
og upp um alla veggi getur
ið líta Reykjavíkurkort með
íiiðurstrikuðum tölumerktum
væðum.
Er hér greinilega um mikla
vinnu og vandasama að ræða
A tónleikum Tónlistarfélagsins
leikúr La-Salle kvartettinn kvart-
etta eftir Mozart, Gunther Schull-
er (bandarískt nútímatónskáld) og
Brahms. Á efnisskrá tónleikanna
hjá Kammermúsikklúbbnum verða
verk eftir Haydn, van Webern,
Stravinsky og Ravel.
Umferðarslys -
Framh. at 16. síðu:
banaslys, en sum önnur slysin
einnig alvarlegs eðlis.
Þá gat Borgþór þess einnig að
stórkostleg aukning hafi orðið í
árekstrum bifreiða I Reykjavík og
nágrenni frá því í fyrra. Það sem
af er þessu ári til 20. sept. var á-
rekstrafjöldinn orðinn 1685 í stað
1376 árekstra á sama tíma í fyrra.
Þetta eru þó aðeins þeir árekstrar
sem bókaðir eru hjá lögreglunni,
en mikill fjöldi árekstra kemur þar
aldrei til bókunar heldur fer beint
til tryggingarfélaganna.
Vísir átti einnig í gær tal við
einn fulltrúa tryggingarfélags, en
það var Runólfur Þorbergsson hjá
Sjóvátryggingarfélagi Islands.
Hann sagði að hjá þvl eina félagi
hafi bótagreiðslur og skuldbinding-
ar vegna bótagreiðsla á bifreiðum
numið rúmlega 12 millj. þr. árið
sem leið ,og væri það um 1 millj.
k hærri fjárhæð en félagið hafi
orðið að greiða eða skuldbundið
sig til að greiða árið áður.
Um yfirstandandi ár kvaðst Run-
ólafur ekki hafa neinar heildartölur
enn sem komið væri, en ljóst væri
þó að þenslan 1 þessum efnum
væri mikil frá því sem ^erið hefði,
enda sýndi árekstra-aukningin það
hvað bezt.
Eins og að iíkum lætur er tjón
mjög misjafnt í hverju einstöku
árekstratilfelli. Stundum skiptir
það jafnvel ekki nema nokkur
handruð krónum, en í öðrum til-
fellum þúsundum og jafnvel tug-
þúsundum króna. Runólfur kvað
þess .nokkur dæmi að bifreiðatjón
hafi orðið að bæta yfir 100 þús. kr
í einstökum tilfellum og með per-
sónutryggingum hafi bótatjónið
jafnvel komizt yfir y2 millj. kr. Á
þessu ári kvaðst Runólfur þó ekki
vita til að Sjóvátryggingarfélagið
hafi greitt hærri upphæð en 80
þús. kr. í bótatjón á eina bifreið.
Ilitt er e. t. v. verra að farartækin
verða oft og einatt ekki þaij sörhu
eftir árekstur, eins og þau voru
áður.
NÝTT SJÓNVARPSi.^Ki (MOTOROLA) TIL SÖLU.
UPPL. í SÍMA 38225 MILLI IÍL. 4—6 í DAG.