Tölvumál - 01.06.1995, Side 6
Júní 1995
Hvað er ISDN?
Grein þessi er byggð á erindi sem flutt var á ráðstefnu SI 21. mars 1995
Eftir Valdimar Óskarssort
Þetta hugtak eða þessi skamm-
stöfun hefur heyrst oft og verður
hún skírð hér með örfáum orðum.
Fyrir nokkrum árum var þetta
hugtak á allra vörum en enginn
vissi hvað þetta var eða til hvers
ætti að nota þetta. Það er fyrst núna
á síðustu tímun að þetta hugtak er
orðið að raunveruleika og við
getum notfært okkur þessa þjón-
ustu.
ISDN er stafrænt kerfi þar sem
hægt er að senda mismunandi upp-
lýsingar á milli notenda á stafrænu
formi. Póstur og sími kemurtil með
að bjóða þessa þjónustu síðla árs.
Kostir ISDN kerfa
Mjög stutturtengitími, ástæðan
fyrir því er að þetta er stafrænt
kerfi þar sem notandinn er sí-
tengdur en einnig verður möguleiki
á upphringisambandi en sá tengi-
tími er mun styttri en við eigum að
venjast í dag.
Þær upplýsingar sem hægt er
að senda eru allar þær sem hægt
er að breyta á stafrænt form. Þar
má nefna tal, myndir og tölvutæk
gögn.
ISDN staðallinn hefur í för með
sér möguleika framleiðenda til þess
að framleiða og selja búnað sem
býður upp á meiri hraða en nú
þekkist í venjulegum símakerfum.
A þennan hátt er hægt að gera
samskiptin íjölbreytilegri og um
leið skemmtilegri og áhugaverðari.
Hluti þess búnaðar sem hér
verður fjallað um getur tengst eða
tengist ISDN samneti.
Videotelephony -
Myndsímun
Myndsímar eru símar með
lifandi mynd af viðmælendum
ásamt hljóði.
Tvennskonar gerðir þessara
síma hafa verið á markaðinum, þ.e.
símar sem tengjast hliðrænu sím-
kerfi og símar sem tengjast staf-
rænu kerfi eins og ISDN.
Þau tæki sem tengjast stafrænu
kerfi gefa kost á miklum mynd og
hljóðgæðum ásamt því að hægt er
að senda tölvutæk gögn manna á
milli.
Héma gæti verið um að ræða
verðugan kost sem gæti sparað
tíma og peninga vegna ferðalaga
því hér má segja að um sé að ræða
samskipti augliti til auglits.
Myndsímar eru ekki nýtt fyrir-
bæri en þróunin hefur ekki verið
mikil vegna þess að það hefur vant-
að tæknina til þess að koma mynd-
unum með fullnægjandi gæðum á
milli staða.
AT&T kom með sína fyrstu
myndsíma 1964 en símalínuteng-
ingin gerði það að verkum að ein-
ungis var hægt að flyta svart/hvítar
kyrrmyndir á milli staða. Margar
gerðir myndsíma hafa komið og
farið af markaðnum síðan þetta
var. Myndsímun er nú á tímamót-
um, tækninni hefur fleygt fram,
verðið hefur lækkað, aukin sam-
hæfni og útbreiðsla á stafrænum
kerfum hefur gert það að verkum
að þessi tækni er ekki lengur í
þróun heldur tilbúin á markaðinn.
Myndsímar geta verið hluti af
tölvum, því nú eru komnar litlar
ódýrar myndavélar sem geta tengst
tölvum, jafnvel innbyggðar í skjái
ásamt því að hægt er að fá t.d.
ISDN spjöld í tölvur.
Þróun myndsíma
Myndræn samskipti hafa ekki
náð mikilli útbreiðslu vegna tak-
markaðra staðla. Gæði mynda og
hljóðs ásamt háu verði á búnað-
inum hefur einnig haft sitt að segja
um takmarkaða útbreiðslu.
Krafa um símafundi, Video-
conferencing, hefur ýtt á þróun á
myndsíma en þó er ISDN stærsta
sparkið hvað varðar þróun.
Aukin þjöppunartækni á mynd-
sendingum hefur leitt til þess að
bandbreiddin sem þarf hefur
minnkað úr 2Mb/s í 64 - 128Kb/s.
Myndgæði hafa aukist til muna
og verðið lækkað að sama skapi.
Notkunarmöguleikar
myndsíma
Stjórnun - samræður augliti til
auglits á milli stjómenda fyrir-
tækja.
Framleiðsla - stjórnendur geta
talað við framleiðsludeildir og
meðal annars skoðað teikningar.
Fjármál - hlutabréfaumræður við
aðrar skrifstofur eða önnur
fyritæki.
Lögfræði - samræður við lög-
fræðinga.
Vöktun - fylgjast heimilinu,
fyrirtækjum og mannlausum
skrifstofum. Myndsímun þarf
ekki endilega að vera samræður
á milli tveggja aðila.
6 - Tölvumál