Tölvumál - 01.12.1995, Blaðsíða 8
Desember 1995
Netvædd margmiðlunarstarfsemi
__________Eftir Juergen Obermann
Þýðing Jón Dalmann Þorsteinsson
Það færist í aukana að verk-
færi á tölvum innihaldi marg-
miðlunarefni í formi texta, kyrr-
mynda, hljóðs og hreyfimynda.
Þessi áhrifamiklu verkfæri verða
nú fáanleg fyrir sjálfstæðar borð-
tölvur. Notendur margmiðlunar í
viðskiptaheiminum vilja nú nýta
kosti hennar í samskiptum innan
fyrirtækjanna í heild með því að
gera margmiðlun tiltæka á sam-
tengdum netum.
Dæmi um notkun netvæddar
margmiðlunar eru m.a.:
• Skjöl í tölvu með skýringum
og athugasemdum í tali og
myndum, svo sem margmiðl-
unar-tölvupóstur og verkefni
vinnuhópa. Þar sem þessi
verkfæri geta sent mjög full-
komnar upplýsingar í hverju
skeyti, gera þau samskipti
milli starfsmanna, viðskipta-
vina, seljenda og viðskiptafé-
laga auðveldari og skilvirkari.
• Margmiðlunar-gagnagrunnar
sem geyma bæði venjulegan
texta og kyrrmyndir, hljóð og
stuttar hreyfimyndir. Með
slíkum gagnagrunnum má
gera ítarlegar upplýsingar um
vörur og aðferðir tiltækar fyrir
allar einingar í fyrirtækinu.
• Tölvufundir þar sem tveir eða
fleiri þátttakendur eru tengdir
um samtengd net. Þátttakend-
ur geta haft litlar sjónvarps-
myndavélar ofan á tölvum
sínum og séð hver annan í
gluggum á tölvuskjánum. Þar
sem koma má á netsambandi
milli þátttakenda á fjarlægum
stöðum, má með tölvufundum
minnka ferðakostnað veru-
lega og auka framleiðni fyrir-
tækja. Á tölvufundum er oft
hægt að nota sameiginleg
hjálpartæki, svo sem rafrænar
risstöflur.
• Fjamámskeið sem fara fram
með beinum útsendingum eða
sjálfvöldu sjónvarpsefni. Sé
hægt að bjóða þjálfunarnám-
skeið á hvaða tíma sem hentar
og án tillits til fjarlægðar, má
minnka kostnað fyrirtækja við
þjálfun starfsmanna og ferða-
lög.
• Sjónvarpsútsendingar um
staðarnet (LAN). Beinar út-
sendingar má senda um stað-
arnet til einstakra vinnu-
stöðva. Þetta er oft kallað
LAN-sjónvarp og notkun þess
getur verið mikilvæg fyrir
fjármálaþjónustu og aðrar
viðskiptagreinar sem eru háð-
ar því að fá fréttaskeyti beint
(á rauntíma).
• Gagnvirkar netbúðir þar sem
margmiðlun er notuð til að
sýna vörur og veita upplýs-
ingar um þær. Slíkum búðum
má koma fyrir í skrifstofum
útibúa, smásöluverslunum,
þjónustumiðstöðvum eða öðr-
um stöðum sem ætlaðir eru
fyrir viðskiptavini.
Viðfangsefni, sem nota marg-
miðlun sem miðlað er um sam-
tengd net, má skipta í flokka eftir
því hversu næm þau eru fyrir
seinkun og eftir fjölda nethnúta
sem eru tengdir samtímis. Notk-
un á gagnastreymi frá geymslu-
miðlum eru ekki næm fyrir
seinkun, en verkefni sem byggj-
ast á rauntímagagnvirkni eru
næm fyrir seinkun í netinu. Sam-
skipti geta farið fram á milli
tveggja hnúta á netinu eða sem
útsending frá einum til margra
nethnúta.
Við sjónvarpsútsendingar um
staðarnet til margra punkta á net-
inu eru dagskráratriði geymd sem
gagnastreymi. I gagnvirkum net-
búðum er hins vegar byggt á
rauntímaupplýsingum sem eru
sendar um netið til tiltekinna
hnúta.
Seljendur margmiöl-
unarbúnaðar
Hér verða taldir upp nokkrir
þessara seljenda og vörur þeiiTa:
Apple Computer: Quicktime
Conference (QTC), fyrir tölvu-
fundi
InSoft: Communique!, tölvu-
fundir.
Intel: CNN at work, sjónvarp
fyrir staðamet, og ProShare, fyrir
tölvufundi.
InVision: tölvufundir og In-
VisionTV, sjónvarp fyrir staðar-
net.
Lotus: Video for Notes, vara
til upplýsingamiðlunar og þróun-
ar verkefna fyrir vinnuhópa.
nCube: hraðvirkur hreyfi-
myndamiðlari.
Silicon Graphics: InPerson,
fyrir tölvufundi.
Starlight Networks: hrað-
virkur margmiðlunarhugbúnaður
| fyrir net.
8 - Tölvumál