Tölvumál - 01.12.1995, Page 10
Desember 1995
Þessi verkfæri og mörg önnur
sem nú eru að koma fram, hljóta
að valda auknum kröfum um
margmiðlun á samtengdum net-
um fyrirtækja.
Netvædd margmiðlun
er staðreynd
Netvœdd margmiðlun, svo
sem fyrir tölvufundi, fjamám,
gagnvirkar netbúðir og upplýs-
ingamiðlun milli vinnuhópa get-
ur haft mikilvægt gildi í flóknu
viðskiptaumhverfi. Þrjú lykilat-
riði em forsenda þess að annast
margmiðlun milli neta:
• Breytanleg, hagkvæm band-
breidd bæði innan samtengda
netsins og til skjáviðmótsins.
• Stöðug gæði þjónustu fyrir
það gagnaflæði sem er næmt
fyrir seinkun.
• Skilvirk leiðstjóm fyrir verk-
efni sem hafa samskipti við
marga á netinu samtímis.
Bandbreidd á sam-
tengdum netum
Eigi margmiðlun að skila við-
unandi árangri þarf næg band-
breidd að vera fyrir hendi á
þremur stöðum: í víðnetinu
(WAN), netstofni vinnusvæðisins
eða vinnuhópsins og í staðamet-
unum (LAN) sem tengja borð-
stöðvar og tæki.
Bandbreidd
til skjáviðmótsins
Mörg staðarnet geta nú veitt
þá bandbreidd sem þarf fyrir ein-
falda margmiðlun. Sé band-
breiddin ekki nægileg, eru nokkr-
ir kostir fyrir hendi til að auka
hana. Þessir kostir eru misjafn-
lega dýrir og skila mismunandi
árangri.
• Leiðargreining á staðarnet-
um. Umsjónarmenn neta geta
skipt staðametum í hluta með
því að nota Ethernet leiðar-
greina.
• Gagnaviðmót með rafleiðara-
dreifingu (Copper Distributed
Data Interface - CDDI). Nú
má nota með LAN miðlurum
hraðvirka tengimöguleika svo
sem CDDI, sem vinnur á 100
Mb, til að auka þá bandbreidd
sem er fyrir hendi.
• Osamstilltur flutningsháttur
(ATM) á 25 Mh. Tillögur hafa
verið gerðar um tvær aðferðir
sem vinna á 25 Mb. Báðar
þessar aðferðir má nota til að
skila ATM til skjáviðmótsins.
• Hraðvirkt Ethernet. Tvö hrað-
virk tæki verða brátt fáanleg:
100 Mb Ethernet (þekkt sem
Fast Ethernet) og lOOBaseVG
Haft eftir
frumkvöðlunum ...
Tölvur framtíðarinnar verða vart þyngri en 1,5 tonn.
(Popular Mechanics, 1949)
Eg held að það sé markaður fyrir um það bil fimm
tölvur í heiminum. (Thomas Watson, stjómarformaður
IBM, 1943)
Ég hef ferðast vítt og breitt um landið og talað við
menn sem hafa vit á þessum hlutum og ég get fullvissað
ykkur um að tölvuvinnsla gagna verður úr sögunni í lok
ársins. (Ritstjóri bóka fyrir viðskiptamarkaðinn hjá
Prentice Hall, 1957)
Já, en hvaða gagn er að þessu?
(Ummæli af hálfu verkfræðings hjá IBM um kísil-
flöguna/örgjörvann, 1968. Sá vann hjá þróunardeild
tölvumála hjá IBM)
Það er engin ástæða til að ætla að almenningur vilji
eignast tölvur. (Ken Olsen, forstjóri, stjómarformaður
og stofnandi Digital Equipment Corp., 1977)
640K á að vera yfirdrifið nóg fyrir alla tölvunoténd-
ur. (Bill Gates, 1981)
10 - Tölvumál