Tölvumál - 01.12.1995, Síða 18
Desember 1995
LÍSA, samtök um samræmd landfræðileg
upplýsingakerfi á íslandi
Eftir Porbjörgu Kr. Kjartansdóttur
LÍSA er samstarfsvettvangur
stofnaður með það markmið að
stuðla að samstarfi stofnana og
fyrirtækja um staðbundnar upp-
lýsingar þar sem hver stofnun
eða fyrirtæki leggur til upplýs-
ingar um gögn á sínu sérsviði.
Samræmd landfræðileg upp-
lýsingarkerfi mun auðvelda áætl-
anagerð, skipulagsvinnu og gera
ákvarðanatöku markvissari.
Samnýting gagna mun lækka
kostnað við gagnaöflun verulega
og hafa í för með sér hagkvæmni
og hagræðingu í rekstri.
í stjórn LÍSU eru sjö fulltrúar
og er formaður samtakanna
Guðni P. Kristjánsson, Vegagerð-
inni og varaformaður er Heiðar
Þ. Hallgrímsson, Borgarverk-
fræðingsembættinu. Fram-
kvæmdastjóri samtakanna er Þor-
björg Kr. Kjartansdóttir. Skrif-
stofa LÍSU er í Borgartúni 7.
Samtökin eru fjárhagslega sjálf-
stæð og reksturinn er fjármagn-
aður með aðildargjöldum, sem
voru um tvær milljónir króna síð-
asta ár.
Samtökin eru stofnuð 24.
mars 1994 á grundvelli tilrauna-
verkefnis umhverfisráðuneytis
um samstarf stofnana og fyrir-
tækja á sviði landfræðilegra upp-
lýsingakerfa.
Hvað er landfræðilegt
upplýsingakerfi?
Landfræðilegar upplýsingar
eru hlutir sem vísað er til með
staðsetningu sem er háð yfirborði
jarðar, hvort sem um er að ræða
undir, á eða fyrir ofan yfirborð
jarðar. Staðsetning getur verið
bein eða óbein. Með beinni stað-
setningu er átt við hnitakerfi sem
skilgreinir yfirborð jarðar með
stærðfræðiformúlum. Obeint
staðsetningarkerfi er kerfi sem
lýsir staðsetningu án hnita, t.d.
póstnúmer eða hreppar.
Landfræðilegt upplýsinga-
kerfi geymir staðbundnar og
hnitbundnar upplýsingar. LUK er
tölvubúnaður sérstaklega hann-
aður til að tengja og sýna land-
fræðlegar upplýsingar á kortum.
Með LUK er hægt að samræma
gögn frá ólíkum svæðum, tengja
töflur og texta við kortagrunna
og meðhöndla gögnin á ýmsan
hátt.
Starfsemi samtakanna
Starf samtakanna fer að miklu
leyti fram í vinnunefndum og í
almennu kynningar- og útgáfu-
starfi. Starfandi eru vinnunefndir
sem taka á nokkrum af helstu
verkefnum LISU:
Nefnd sem vinnur að gerð
könnunar um stafræn gögn hér
á landi. Ætlunin er að gefa út yf-
irlit um stafræn landfræðileg
gagnasöfn.
Orðanefnd LÍSU sem vinnur
að gerð lista yfir orð og hugtök
um landfræðileg upplýsingakerfi.
Nefnd um samskipta- og
staðlamál sem kannar hvernig
stofnanir og fyrirtæki skiptast á
gögnum í dag, hvaða vandamál
eru því tilheyrandi og kemur með
tillögur um leiðir til úrbóta.
Tækninefnd um landupp-
lýsingakerfi stofnuð af Fagráði í
upplýsingatækni í samráði við
LÍSU. Nefndin á að koma með
tillögur um hvernig gæta á hags-
muna íslands í alþjóðlegu sam-
hengi á þessu sviði.
Útgáfu- og kynningar-
starfsemi
Haldnir eru kynningarfundir
og ráðstefnur um málefni sem
varða þróun landfræðilegra upp-
lýsingakerfa hér á landi. A árinu
1995 voru haldnar ráðstefnumar
„Landfræðileg upplýsingakerfi;
staðlar og samstarf1 10. mars sl.
og „Landfræðileg upplýsinga-
kerfi og hafið“ þann 28. mars sl.
2.-4. nóvember sl. hélt AM/FM-
GIS, Nordic Region ásamt LÍSU
samnorrænu ráðstefnuna „LUK á
nýjum leiðum“.
Aðilar að LÍSU fá fréttabréfið
„LÍSUFRÉTTIR“ sem kemur út
að jafnaði á tveggja mánaða
fresti og fá afslátt á ráðstefnur og
fundi á vegum samtakanna.
Skrifstofa LÍSU er miðstöð
upplýsinga um þróunina hér á
landi og erlendis, þar eru m.a.
skýrslur, bækur og tímarit á sviði
landfræðilegra upplýsingakerfa.
Öflun nýrra félaga og tengsl
við erlend landssamtök. Unnið er
að kynningu á starfsemi samtak-
18 - Tölvumál