Tölvumál - 01.12.1995, Síða 19
Desember 1995
Gagnasöfnun
anna innalands og að samstarfi
við erlend samtök, t.d. á hinum
Norðurlöndunum.
Hvers vegna aöild?
Flestar opinberar stofnanir,
sveitarfélög og mörg fyrirtæki
nota landfræðilegar upplýsingar
og fjárfesta í tölvubúnaði til
vinnslu þeirra gagna. Að stuðla
að samræmingu, samstarfi og að
betri nýtingu landfræðilegra
gagna er því eðlilegur þáttur í
þeirra starfi.
Aðilar að LÍSU koma sínum
hagsmunum á framfæri og hafa
áhrif á þróun þessara mála hér á
landi. Meðal verkefna er að koma
á vinnureglum um samskipti og
gagnaflutninga, um staðla, um
framsetningu gagna og samræma
notkun greinitalna. Skilgreina
þarf eigna- og höfundarrétt og
tryggja öryggi gagna og jafn-
framt að sjá til þess að gögn verði
aðgengileg og afnotaréttur
tryggður.
í LÍSU eru nú 30 stofnanir og
fyrirtæki með alls 88 félaga.
Stefnt er að því að fleiri bætist í
hópinn svo að samtökin komi að
sem mestu gagni.
Meðal aðila í LÍSU eru:
Ríkisstofnanir sem framleiða
gögn á landsvísu.
Sveitarfélög og fyrirtæki
þeirra, en þau eru með stað-
bundnar upplýsingar á ýmsum
sviðum sem augljóslega hefur
hagnýtt gild að samræma.
Sölu- og þjónustuaðilar land-
fræðilegra upplýsingakerfa og
búnaðar til notkunar í tengslum
við þau.
Skólar og ráðgjafar sem
kenna notkun LUK og vinna að
rannsóknum þessu á sviði.
Fyrirtæki sem þurfa fljótan og
auðveldan aðgang að landfræði-
legum gögnum t.d. verkfræði-
stofur sem sinna byggingariðnað-
inum, fyrirtæki innan samgöngu-
og flutningsgeirans og fyrirtæki
sem sinna eftirliti og öryggismál-
um.
Notkun staðbundinna gagna
með möguleikum á myndrænni
vinnslu eru kostur sem fleiri og
fleiri nýta sér. Verið að taka LUK
vinnslu í notkun innan ferðaþjón-
ustu, banka- og tryggingarstarf-
semi, í sölu- og markaðsfyrir-
tækjum og í uppbyggingu á heil-
brigðis- og félagsþjónustu.
Aðild að LÍSU
Fulla aðild hafa svo nefndir
fulltrúar.Aðildargjald fyrir fulla
aðild er kr. 50.000,- Aðildargjald
fyrir viðbótarfulltrúa frá sama
aðila er kr. 25.000.-
Hægt er að fá aukaðild að
samtökunum, en þeir félagar hafa
hvorki atkvæðisrétt né kjörgengi.
Aðildargjald er kr. 5.000,- fyrir
aukaaðild.
Þorbjörg Kr. Kjartans-
dóttir er framkvœmda-
stjóri LÍSU.
Tölvumál -19