Tölvumál - 01.12.1995, Qupperneq 21
Desember 1995
1. hluti: Netheimar
Fyrst er fjallað um gildi þess
að geta notað tölvusamskipti
þannig að þau gagnist í leik og
starfi. Bent er á innlend og erlend
dæmi um notkun sem komið hef-
ur að gagni sem og rætt við fólk á
netinu sem hefur séð sér hag í að
nota netið. Sagt er frá Anne-
Tove, konu Odd, hún er með
mjög alvarlegan nýrnasjúkdóm
sem erfitt hefur verið fyrir lækna
að fást við. Þau hjónin hafa feng-
ið lækna til að lesa gögn sem
finnast á netinu og þau hafa kom-
ið að góðum notum. Nú í nóvem-
bermánuði gaf Odd síðan Anne-
Tove annað nýrað og virðist hún
ætla að ná sér. Einnig er talað við
Viðar Gíslason sem fatlaðist af
völdum heilablóðfalls nítján ára
gamall og er nú bundinn hjólastól
með einungis eina hreyfingu.
Netið gerir honum kleift að hafa
samskipti við aðra á eigin for-
sendum.
í fyrsta hlutanum er einnig
fjallað um uppbyggingu og inn-
tak netheima, um BBSa, póst-
lista, ráðstefnukerfi, gagnasöfn á
netinu, gagnaflutningsnet og
tövusamskiptanet eins og t.d.
FidoNet, I-Com, Infonet, Internet
og önnur. Þá er fjallað um notk-
un vahnynda, hvernig sérfræð-
ingar fara að og ýmsar leiðir til
að sníða tölvusamskiptin að þörf-
um og áhugasviðum sínum í stað
þess að fara hefðbundnar leiðir.
Hér gæti lesandinn fengið hug-
myndir um hvernig hann geti
sjálfur hagað tölvusamskiptum á
skilvirkari hátt.
2. hluti: Hagnýting
An efa er annar hluti bókar-
innar sá sem er hvað fjölbreytt-
astur og býður upp á mest af
sniðugum hlutum á netinu. Þar er
meðal annars fjallað um tóm-
stundaiðju, leiki og skemmtun,
hvar hægt sé að finna leikjahug-
búnað, og einnig er fjallað um
hættuna á tölvuveirum. Bent er á
staði sem eru áhugaverðir fyrir
þá sem ætla í ferðalag, stunda frí-
merkja- og myntsöfnun eða hafa
áhuga á ættfræði, tónlist og
mörgu fleiru. Einnig er bent á
staði þar sem fjallað er um heim-
ilið, menntun og atvinnu, hvernig
hægt sé að stunda atvinnuleit í
gegnum mótald og hvernig megi
stunda atvinnu heima. Heilbrigð-
ismálum eru gerð skil og bent á
staði þar sem fá má upplýsingar
um sjúkdóma og heilbrigðismál.
Þar er einnig bent á staði þar sem
sjúklingar haldnir ákveðnum
sjúkdómum geta hitt aðra sem er
eins ástatt um og spjallað.
Daglegar fréttir á tölvutæku
formi geta verið mjög áhuga-
verðar og oft má lesa fréttir fyrr
þar en í fjölmiðlum hér heima.
Vísað er á fjölmargar fréttaþjón-
ustur en benda má á að Ásgeir
Eggertsson, dagskrái'gerðarmað-
ur hjá Ríkisútvarpinu, hefur tekið
saman vefsíður sem vísa í fjöl-
miðla um allan heim. Á netið er
komið heilmikið af innlendum
Tölvumál - 21