Tölvumál - 01.12.1995, Blaðsíða 22
Desember 1995
fréttamiðlum og tímaritum en
helst vakti athygli okkar frábær
framsetning Fasteignablaðsins á
efni sínu. Þar er hægt að fletta
upp eignum á söluskrá eftir stað-
setningu og verðflokkum, ásamt
því að sjá mynd af húseigninni.
Flestir sem eitthvað hafa not-
að tölvusamskipti vita hversu
erfitt getur verið að finna efni við
hæfi í þeim aragrúa upplýsinga
sem til er í netheimum. í öðrum
hlutanum er bent á leiðir til að
leita markvisst í netheimum og
finna heimildir og fjallað er um
vinnubrögð. Vönduð vinnubrögð
geta sparað mikinn tíma ásamt
því að gera tölvusamskiptin að
hagnýtara verkfæri. Fjölmargir
ráfa um netheima án þess að
finna nokkuð bitastætt né heldur
átta sig á hvernig best sé að bera
sig að. Vonandi koma þær að-
ferðir sem bent er á í bókinni eitt-
hvað að notum í þessu tilliti.
Odd notar Compuserve þjón-
ustuveituna mikið og því er heil-
mikið af gagnlegum tilvísunum
um hvernig hún nýtist og hvar
megi finna góða staði. Einnig er
kennd leit í umræðum á listserv
póstlistum, í ráðstefnuumræðum
sem og vefsíðum. Allt er þetta
gagnlegt þeim sem markvisst
vilja finna efni á netinu.
3. hluti: Betri aðferðir
í þriðja og síðasta hluta bók-
arinnar eru hagnýtar ábendingar
svo sem um höfundarrétt, óskráð
lög um framkomu á netinu, frið-
helgi, skráaflutninga, faxþjónust-
ur og fleira. Fjallað er um hug-
búnað sem nota má við tölvu-
samskipti og vísað á staði þar
sem má finna hann. Skoðað er
hvernig hægt er að byggja upp
eigið gagnasafn og vanda sig við
að henda upplýsingum sem hafa
ekki hagnýtt gildi. Val á góðum
verkfærum skiptir miklu máli
þegar tölvusamskipti eru annars
vegar og í þriðja hlutanum er
bent á nokkur forrit sem að gagni
geta komið.
Síðan er fjallað um sjálfvirk
tölvusamskipti, hvernig notand-
inn getur sett upp skipanaskrár
og þannig fengið tölvuna til að
sjá um ýmislegt sem eru leiði-
gjarnt og tímafrekt að vinna
handvirkt.
Um höfundana
í upphafi þessa greinarkorns
var fjallað dálítið um Odd de
Presno. Hann er sérfræðingur á
sviði Intemet og viðskipta. Vegna
þessarar sérþekkingar sinnar og
og vegna Kidlink-verkefnisins er
hann eftirsóttur fyrirlesari víða
um heim. I október á þessu ári
var hann með fyrirlestra í Japan. í
nóvember fór hann til Suður-
Ameríku þaðan sem hann kom til
íslands eftir stutt stopp í Noregi. í
heimalandi sínu er hann einnig
eftirsóttur ráðgjafi fyrirtækja sem
fá hann til að kenna sér hvernig
þau geti nýtt sér tölvusamskipti
markvisst í eigin þágu.
Lára Stefánsdóttir hefur starf-
að undanfarin ár hjá íslenska
menntanetinu og hefur sérhæft
sig í hagnýtri notkun Internet í
námi og skólastarfi. Hún er að-
stoðarstjórnandi Kidlink sam-
skiptaverkefnisins og vinnur því
náið með Odd frá degi til dags
við stjórn þessa stóra verkefnis.
Hún starfar nú sjálfstætt og er í
meistaranámi í KHI í kennslu-
fræði og upplýsingatækni. Hún
hefur einnig tekið nám erlendis
með hjálp tölvusamskipta. Lára
hefur setið í nokkrum norrænum
nefndum fyrir hönd Menntamála-
ráðuneytisins í tengslum við
tölvunotkun í skólastarfi og situr
nú í nefnd Menntamálaráðuneyt-
isins um stefnumótun í upplýs-
ingatækni í menntamálum.
Lars H. Andersen er borinn og
bamfæddur Dani en hefur búið á
íslandi undanfarin 23 ár. Hann
vinnur við þýðingar og túlkun.
Lars notar Internet mikið í starfi
sínu við þýðingar. Hann hefur
mikil samskipti við aðra þýðend-
ur um heim allan og leitar upp-
lýsinga hjá þeim eða í gagnasöfn-
um á netinu um skilgreiningar
hugtaka og orða þegar skýringar
liggja ekki fyrir. Einnig afgreiðir
Lars í vaxandi inæli þýðingar
sínar á tölvutæku formi til við-
skiptavina um netið. Segja má að
ómögulegt væri að reka þýðing-
arstofu á Akranesi nema fyrir til-
stilli tölvusamskipta.
Veftilvísun og netföng
Upplýsingar um bókina Net-
heimar er að finna á veffanginu:
http://www.ismennt.is/ri/netheim-
ar/ en einnig má senda fyrirspurn-
ir til Láru á netfangið lara@is-
mennt.is eða til Lars á netfangið
lars@ismennt.is
22 - Tölvumál