Tölvumál - 01.12.1995, Page 30
Desember 1995
Tenging hafnarstöðva
Við hönnun kerfisins var lagt
út frá því að allar hafnarstöðvar
gætu sótt veðurupplýsingar frá
öðrum hafnarstöðvum. Sem
dæmi um slíka uppsetningu má
nefna hafnarkerfið í Grindavík.
Þar geta hafnsögumenn fylgst
með veðri í Þorlákshöfn, auk þess
sem upplýsingar um ölduhæð frá
öldudufli út af Garðskaga fást í
gegnum móttakara í Sandgerði. í
Þorlákshöfn eru svo aftur sótt
gögn frá Grindavík auk ölduhæð-
ar frá dufli við Vestmannaeyjar.
Ýmsir aðilar eru tengdir við
upplýsingakerfið og sækja reglu-
lega gögn þaðan.
• Stöðvadeild Veðurstofunnar
sækir nýjustu veðurgögn á
klukkutíma fresti úr flestum
stöðvunum.
• Hafnamálstofnun safnar upp-
lýsingum um ölduhæð og sjó-
lag í kringum landið.
• Sjómælingar Islands hafa
beintengingu við mælistöð í
Reykjavíkurhöfn. Flóðhæð-
armælingar í Reykjavíkur-
höfn eru grunnur að sjávar-
fallatöflu, sem Sjómælingar
gefa út árlega.
Auk þess hafa aðrir nýtt gögn
frá mælistöðvunum eins og Holl-
ustuvernd ríkisins og aðilar sem
unnið hafa að verkefnum tengd-
um umhverfismati.
Veðurstofan og Hafnamála-
stofnun eru samtengd í gegnum
Internetið og skiptast sjálfkrafa á
mæligögnum.
Langtímamælingar á
sjávarhæð
Jarðeðlisfræðideild RHÍ hef-
ur umsjón með verkefni í Iang-
tímamælingum á sjávarborði og
landrisi. Tilgangurinn með því
er að fá nákvæmt mat á meðal-
sjávarhæð, en vegna breytinga á
afstöðu tungls og jarðar er
venjulega miðað við a.m.k. 19
ára samfelldar mælingar. í
tengslum við það verkefni hefur
Hugrún hf. sett upp mælistöðvar
með sérstökum kvörðunarbún-
aði umhverfis landið, sumar
hverjar við afar erfiðar aðstæður
svo sem á Skinneyjarhöfða.
Nokkrar hafnarstöðvanna eru
einnig útbúnar með slíkum
kvörðunarbúnaði.
Mælingar á sjólagi
Að lokum má nefna verkefni í
tengslum við mælikerfið, sem er
athugun á öldugangi í höfnum. Þá
er mælt samfellt á hverri sekúndu
með þrýstinemum og upplýsingar
sendar jafnóðum til úrvinnslu frá
mælistöð til tölvu. Hægt er að
tengja nokkra þrýstinema við
hverja mælistöð. Nemamir eru
ýmist festir við bryggju eða sökkt
niður á sjávarbotn, innan eða utan
hafnar þar sem þeir geta verið í
nokkur hundruð metra fjarlægð
frá landi. í úrvinnslunni eru
merkin tíðnigreind, leiðrétt og
síuð og þannig fæst mat á öldu-
gangi og sogum í höfninnni og þar
með öryggi skipa sem bundin eru
við bryggju.
Gögn þessi eru mjög mikil-
væg fyrir ákvörðunartöku um
hafnarframkvæmdir og um þess-
ar mundir er t.d. verið að setja
upp þrjár slíkar stöðvar fyrir
Reykjavíkurhöfn, auk þess sem
mælingar eru hafnar í Straums-
víkurhöfn. Mælingar á sjólagi
eru sjálfkrafa fluttar inn í upplýs-
ingakerfið, þannig að fleiri aðilar
svo sem eftirlitsmenn olíuskipa
geta fylgst með því.
Lokaorð
Greinagóðar upplýsingar um
veður og sjólag eru afar mikil-
vægar fyrir okkur Islendinga.
Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur
er hugsað til að mæta hluta af
þeirri þörf og það hefur sýnt sig á
þeim tíma sem kerfið hefur starf-
að að áhugi manna er mikill.
Sjálfvirkar veðurstöðvar geta
í mörgum tilfellum leyst hefð-
bundnar veðurathuganir af hólmi
og greiður aðgangur að gögnum
úr þeim eykur notagildi þeirra.
Steingrímur Gunnars-
son er verkfrœðingur
hjá Hugrúnu hf.
30 - Tölvumál