Vísir - 05.10.1962, Page 16
Myndin sýnir einn slökkviliðs
manna Anton Eyvindsson vinna
við slökkvistörf á Laugavegin-
um. Var slökkvistarfið mjög
erfitt.
Börnin björguðust
naumlega úr húsinu
t gærkvöldi kviknaði í bakhús-
inu Laugavegur 34 B og björguð-
ust tvö börn 5 og 7 ára gömul
naumlega í höndum móður sinnar,
sem fór inn í mikinn reyk til að
sækja þau.
1 Hún hafði verið úti í næsta húsi
við þvott, og skrapp yfir til sín
að hyggja að börnunum. Og varð
hún þá vör við að reyk lagði
upp úr húsinu. Kviknað hafði í
milli þilja. Konan fór þegar inn í
húsið, sem var fullt af reyk og
sótti börnin. Slökkviliðið kom litlu
síðar, eða um 10-leytið og tókst
að slökkva eldinn á tiltölulega
stuttum tíma þrátt fyrir ýmsa
erfiðleika.
I húsinu bjuggu bræðurnir Ár-
sæll og Sigursteinn Guðsteinssyn-
ir. Þeir höfðu báðir brugðið sér
frá, svo að börnin voru ein í hús-
inu. Talið er að kviknað hafi í út
frá rafmagni.
Óvíst um sölu Faxa
verksmiðjunnar
— Það er langt frá þvf að nokk-
uð sé orðið endanlegt f umræðum
um kaup á Faxaverksmiðjunni,
sagði Jónas Jónsson, forstjóri Sfld-
ar- og fiskimjölsverksmiðjunnar
Klettur, þegar Vísir hringdi í hann
í morgun og. spurði hann um málið.
Eitt dagblaðanna sagði- fyrir
stu'.tu að sala á verksmiðjunni
stæði fyrir dyrum og myndi Klett-
ur h.f. ætla að kaupa.
Jónas sagði að málið væri aðeins
á umræðustigi og engin úrslit í
nánd. Verið væri að kryfja mögu-
leikana á kaupum, en það væri allt
og sumt. Það væri því alls ekki
hægt að segja að kaupin stæðu
fyrir dyrum.
Bíll rennur mannlaus
niður bratta brekku
Einkennileg bílvelta varð í gær
á Akureyri og er það mesta mildi
að ekki skyldi slys hljótast af.
Varð hún í brekkunni niður af
íþróttahúsinu og voru kringum-
stæður sem hér segir:
Maður nokkur að nafni Vilhelm
Artúrsson fór inn í íþróttahúsið
og skildi bíl sinn A-887, lítinn
Ford júníor eftir í brekkunni hjá
húsinu í fyrsta glr.
Þegar hann kom síðar út úr
Iþróttahúsinu sá hann bíl sinn
hvergi, heldur lögreglumenn, sem
tilkynntu honum að bíllinn lægi nú
mikið skemmdur á1 hvolfi á bíla-
stæði Sjafnar þar fyrir neðan. Kom
nú I ljós, að bíllinn hafði runnið
mannlaus niður alla brekkuna sem
er mjög brött og endað förina á
bílastæðinu. — Hann hafði hvergi
komið við á leiðinni, þar til hann
stöðvaðist með þessum hætti.
Skyndihappdrætti
Sjálfstæðisflokksins
Þið, sem hafið áhuga á að eignast Volkswagenbifreið af nýjustu
gerð, og getið það ef þið kaupið miða í Skyndihappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins, skulið hafa það I huga að skrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins við Austurvöll verður OPIN Á LAUGARDAG FRÁ KL.
9—19 OG SUNNUDAG frá 14—17. Þar er hægt að kaupa miða
fyrir hundrað krónur, en að sjálfsögðu er líka hægt að koma við
hjá sjálfum vinningunum, sem standa við Útvegsbankann í Austur-
stræti og gera kaupin þar. Munið, að það er dregið 26. október n.k.
Verzlun í Háaleitish verfi
um uæstu mánuBumót
Það hefur ekki verið
neitt launungarmál, að
mikill og aðkallandi skort-
ur hefur verið á matvöru-
verzlunum, sem og reynd-
ar öðrum verzlunum í hinu
nýja Háaleitishverfi. Um
næstu mánaðamót verður
leyst úr þessu vandamáli,
því þá mun vera fullbúin
ný verzlunarsamstæða þar
sem til sölu vérða kjötvör-
ur, nýlenduvörur, fiskur,
mjólk og brauð.
Verzlun þessi verður að Háa-
leitisbraut 68, og fullyrða eig-
endur hennar, Austurver h/f, að
hun verði opnuð innan þriggja
vikna eða 1. nóvember.
Eins og kunnugt er af fréttum
hefur þessu sama fyrirtæki verið
úthlutað lóð og veitt leyfi fyrir
verzlunarbyggingu I Háaleitishverf
inu. Þær byggingaframkvæmdir
eru geysiumfangsmiklar og þótt nú
sé öllum undirbúningi lokið undir
hinar verklegu framkvæmdir,
munu þær að sjálfsögðu taka nokk
urn tíma. Gripið hefur því verið
til þess ráðs að reisa bráðabirgða-
verzlun á væntanlegu bllastæði
verzlunarmiðstöðvarinnar. — Sú
bráðabirgðabygging mun hins veg-
ar ekkert draga úr framkvæmdum
hinnar raunverulegu verzlunar,
nema síður væri.
Þótt hér sé um bráðabirgðahús
að ræða, verður verzlunin útbúin
öllum hinum fullkomnustu tækjum
og þar verða á boðstólum allar
þær vörur, sem áður hafa verið
taldar.
í Háaleitishverfinu búa nokkur
hundruð manns, en næsta búð hef-
ur verið á Grensásvegi. Hefur á-
standið því verið nokkuð bagalegt
fyrir íbúana þarna.
Austurver hefur á undanförnum
vikum látið stóra fólksflutninga-
bifreið aka um hverfið 3svar í viku
Framh. á bls. 5.
Kosið / Sjómannu-
sumbandinu
Um næstu helgi fer fram full-
trúakjör til Alþýðusambandsþings
I öllum þeim félögum, 7 að tölu,
sem eiga aðild að Sjómannasam-
bandi íslands, en þau eru Sjó-
| mannafélag Reykjavíkur, Sjó-
: mannafélag Hafnarfjarðar, sjó-
| inannadeildir verkalýðsfélaganna á
i Akranesi, Keflavík og Grindavík,
j Vélstjórafélag Keflavíkur og Mat-
sveinafélag SSÍ sem er landsfélag
Franska
er
Þingrof og nýjor kosníngnr
Franska þingið samþykkti í nótt
vantraust á stjóm ’ ndsins með
280 atkvæðum, eða 39 atkvæðum
fram yfir það sem þurft hefði til
að fella stjórnina. Búizt er við að
Pompidon forsætisráðherra biðjist
lausnar fyrir ráðuneyti sitt í kvöld
og forseti Iandsins birti á morgun
tilkynningu urn þingrof og nýjar
kosningar.
Gert er ráð fyrir að þær kosn-
ingar fari fram samtímis þjóðar-
atkvæðagreiðslunni, sem áður
hafði verið ákveðið að fara skyldi
I fram 28. þessa mánaðar. Það er
1 einmitt I sambandi við þá þjóðar-
! atkvæðagreiðslu sem vantrausts-
j tillagan kom fram frá andstöðu-
i flokkum ríkisstjórnarinnar. I
þessari þjóðaratkvæðagreiðslu á að
greiða atkvæði um breytingu á
stjórnarskránni, það er að segja
tilhögun forsetakosninga, og er
breytingin I þvl fólgin að forseti
landsins skuli hér eftir kosinn af
öilum almgnningi I landinu. Þeir,
sem greiddu atkvæði með van-
traustinu, töldu það vera stjórnar-
skrárbrot að ríkisstjórn Frakk-
lands skyldi á eigið eindæmi, án
þess að bera það undir þingið, á-
kveða að láta þessa þjóðaratkvæða
greiðslu fara fram til breytinga á
stjórnarskránni.
og geta matsveinar kosið hvar sem
þeir eru starfandi. Kosningin fer
fram á laugardag og sunnudag og
stendur yfir frá kl. 10 að morgni
ti> 10 að kvöldi báða dagana.
Tveir listar hafa komið fram,
annar er borinn fram af stjórn
Sambandsins en hinn af kommún-
istunum Jóni Tímóteussyni, Sig-
urði Breiðfjörð Þorsteinssyni og
fleiri kommúnistum. Kommúnistar
hafa nú mikinn viðbúnað til að
Framhald á bls. 5.
Bridgekeppni
d Akureyri
Tvímenningskeppni í bridge hef-
ur staðið yfir undanfarið á Akur-
eyri. í gærkvöldi var staðan þessi:
Efstir voru Jóhann Helgason og
Karl Sigurðsson með 215 stig,
næstir Jóhann Sigurðsson og Óð-
inn Árnason með 207 stig ög Ár-
mann Helgason og Halldór Helga-
son með 199 stig.
-JMH. 4 4