Vísir - 25.10.1962, Blaðsíða 3
V í S IR . Fimmtudagur 25. október 19G2.
3
:
NÝIR BÍLAR
Nýju modelin af amerísku
bílunum eru nú komin á mark-
aðinn í Bandaríkjunum. Hafa
sumir bílarnir breytzt mjög
mikið og flestir til batnaðar.
Eru línurnar í þeim yfirleitt
mun mýkri og hreinlegri en áð-
ur. Aldrei munu bandarískir
kaupendur hafa haft jafnmörg-
um gerðum úr að velja. Stafar
það af aukningunni á fram-
leiðslu minni bílanna, sem náð
hafa miklum vinsældum þar.
Mikið er um nýjungar á sviði
tækni og eru þær ekki síður
hjá þeim, sem lítið hafa breytt
útlitinu. Á Rambler er nú hægt
að fá sjálfvirka kúplingu, sem
ekki hefur fyrr verið hægt í
amerískum bílum. Pá eru þeir
einnig með nýja gírskiptingu.
Eru á henni fjórir gírar áfram
og auk þess „overdrive“, sem
raunverulega þýðir að gírarnir
eru fimm. Eru tvær stengur hlið
við hlið, önnur fyrir hina venju-
legu gíra og hin fyrir „over-
drive“.
Eitt af því, sem er sérlega
athyglisvert við amerísku bíi-
ana og byrjaði raunverulega i
fyrra, er það að mjög sjaldan
þarf að smyrja þá. Eru sumir
þeirra þannig að ekki þarf að
smyrja S nema á 50 þúsund
kílómetra fresti og þá aðeins
fáa staði. Marga hluta þeirra
þarf aldrei að smyrja. Þá er
yfirleitt óþarfi að „tilkeyra“ þá
nokkuð og mun sjaldnar þarf
að skipta um olíu en áður.
Þá eru flestir þeirra núna
seldir með lakki, sem aldrei
þarf að bóna. Nægir að skola
af því skítinn. AUt gerir þetta
bílana miklu ódýrari og þægi-
legri í rekstri.
Myndirnar:
Efst til hægri sést inn í
Rambler-bíl með tvær gírsteng-
ur.
Efst til vinstri er Valiant,
smábill Chryslerverksmiðjanna.
sem hefur fengið algerlega nýtt
útlit. Er hann miklu einfaldari
en fyrr.
Til vinstri sjást þrír bílar,
sem American Motors framleið-
ir. Efstur þeirra er Rambler
Classic, sem er mest selda gerð
in og hafa kornið allmargir slík-
ir til íslands. Hefur hann nú
fengið nýtt útlit. Er hann bæði
lægri og rennilegri, þó að ekki
sé hann neitt stærri. Næst kem
ur Rambler American, sem er
minnsti bíll, sem framleiddur
er í Bandaríkjunum. Hann hef-
ur verið framleiddur bæði
tveggja og fjögurra dyra. Sést
hér á myndinni fyrsti tveggja
dyra „hardtop“, sem komið hef
ur af þessari tegund. Neðst er
svo Rambler Ambassador, dýr-
asta gerðin. Hann er nú jafn
stór Classic og er eini munur-
inn sá, að meira er borið f all-
an frágang og vél höfð stærri.
Á neðstu myndinni er svo
Plymouth, mest selda gerð
Chryslerverksmiðjanna. Hefur
honum veriö breytt mjög miklð
frá sfðasta ári og er mjög falleg
ur og stflhreinn.