Vísir - 25.10.1962, Blaðsíða 6

Vísir - 25.10.1962, Blaðsíða 6
VÍSIR . Fimjrítudaguí 25’ oktöber I&S2? MILLJÓNIR SPARAÐAR í REKSTRI RÍKISINS '6 Síðari hluti fprlogaræðu Gunnors Thoroddsen Tekjuáætlunin. Heildartekjur ríkissjóðs eru á- aetlaðar á næsta ári 2.126,2 millj. og er hækkun um 374.2 millj. frá gildandi fjárlögum, án þess að skatt- eða tollstigar séu hækk- aðir eða nýjar álögur upp tekn- ar. Þessar ástæður valda aðallega þessari aukningu ríkistekna: I. Vaxandi innflutningur, sem skilar að óbreyttum tollstigum um 270 miiljónum hærri tekjum en fjárlögin gera ráð fyrir. Er þá miðað við innflutning, sem nemi um 3500 milljónum á næsta ári. Hinn vaxandi innflutningur stafar af aukinni framleiðslu, vaxandi kaupgetu og frjáisari innflutningi. II. .*»■ Vaxandi velta innanlands, enda er gert ráð fyrir að 3% söluskatturinn skili 247,6 millj. eða 32.6 millj. meira en í gild- ándi fjárlögum. III. Hækkandi tekjur landsmanna, bæði vegna almennra kauphæk'k ana og aukinnar framleiðslu, eink um síldverðs. Tekju- og eignar- skattur er áætlaður 155 millj., eða 60 millj. hærri en f gildandi fjárlögum. Koma hér einnig til áþrif skattalaga, sem valda rétt- ari framtölum. Þessir 3 liðir nema um 360 millj. kr. áætluðum tekjuauka Auk þess hækka nokkrir smærri Iiðir og vlsa ég til greinagerðar fjárlaga frumvarpsins um þau atriði. Ég skal þessu næst víkja í stórum dráttum að helztu gjalda- liðum fjárl.frv. I. gr. fjárlfrv. er gert ráð fyrir, áð..,vaxtagreiðslur nemi 10,6 millj. kr. Það er hækkun um 1,4 millj. frá gildandi fjárl. og stafar aðal- lega af kaupum á húseígninni Borgartúni 7, sem ég mun koma nánar að í öðru sambandi. 8. gr. er kostnaður við æðstu stjórn landsins 1,6 millj. 9. gr. er til alþingiskosnaðar og ýfirskoðunar rikisreikninga, 12,6 millj. 10. gr. til ríkisstj., en þar er innifalinn allur kostnaður við utanríkisþjónustuna, er 50,6 millj. ki. II. gr. er í þrem liðum. Það er fyrst a) dómgæzla og lögreglu stjóm, sem er áætlað, að kosti 96,1 millj., en í því er innifalinn kostnaður við landhelgisgæzluna. 11. gr. b) kostnaður við inn- heimtu tolla og skatta 32,1 millj. og c) sameiginlegur kostnaður við embættisrekstur 2,2 millj. kr. 13. gr. skiptist í nokkra undir kafla. Er þar fyrst vegamál, en til þeirra á að verja 114.2 millj. kr. Þá er samgöngur á sjó 17.6 millj., vitamál og hafnargerðir 34.1 millj., flugmál 12.2 millj. Ég vil geta þess í sambandi við flugmál- in, að þetta er aðeins rekstur flug vallanna ,en hins vegar er annar liður, sem er nokkru hærri en þetta, á 20. gr. til nýrra flugvalla. Þá er veðurþjónusta 5.2 milij. og ýms mál, þar er m. a. ferða- skrifstofa ríkisins, ferðamál, land- og sjómælingar o. fl. 6.5 millj. 14. gr. skiptist í tvo undirliði, það er a( kennslumál og er gert ráð fyrir, að þau kosti 241,4 millj. kr. b) er til opinberra safna, , bókaútgáfu og listastarf- semi 15,5 millj. 15. gr. er um kirkjumál, og er veitt til þeirra \6y2 millj. 16. gr. skiptist í fimm undir- liði. Er það fyrst landbúnaðar- mál 95,2 millj., þá sjávarútvegs- mál 36,7 millj., þá iðnaðarmál 5,8 millj., þá raforkumál 31,8 millj: og loks rannsóknir í þágu atvinnuveganna o.fl. 12,7 millj. 17. gr. fjallar um félagsmál. þar með framlög til almenna- trygginga, og nema þau i fjári- frv. fyrir næsta ár 504,4 millj kr. 18. gr. er til eftirlauna og styrktarfjár 42,3 millj. 19. gr. sem heitir: Til óvissra útgjalda o.fi. 521 millj., en þar er aðalliðurinn að sjálfsögðu 430 millj., sem ætlaður er til niður- greiðslu á vöruverði og uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir, eru hafðar í 19. gr. Á þessari 19. gr. er einnig sá liður, sem ég gat um hér áðan, til launa- uppbóta, 65 millj. kr. Þetta voru útgjöldin sam- kvæmt rekstrarreikningi fjárl. þ.e.a.s. skv. 7.—19. gr. Menntaskóla- málið. 1 20. gr. fjárl., sem kölluð er: Eignahreyfingar, eru útgjöldin áætluð 128,1 millj., þar af eru stærstu liðirnir afborganir lána ríkissjóðs 20.1 millj., framlag ti! ríkisábyrgðasjóðs 38 millj., til byggingar ríkisspítalanna 7,2 millj., til flugvalla 12,7 millj., tii ýmissa skólabygginga á vegum ríkisins 8,4 millj., til byggingar lögreglustöðvar 3 millj. og skal ég ekki rekja það hér lengur. En þó vildi ég af sérstöku tilefni minnast á einn lið f 20. gr., sem er hcekkaður nú frá gildandi fjárl., og það er til byggingar menntaskólans í Reykjavík. í gildandi fjárl. voru veittar 2 millj., og sú fjárveiting er nú hækkuð upp í 3 millj. Á undan- förnum árum hefur r-fnazt sam- an nokkurt fé, sem veitt hefur verið til byggingar menntaskóla, og er nú eftir af fyrri fjárveit- ingum ónotað um 5,2 millj. kr. Húsnæðismál menntaskólans eru eitt af hinum mestu nauðsynja- málum, sem vinda þarf bráðan bug að að hrinda í framkvæmd Það er aðkallandi að ákveða, hvert stefna skuli í þeim málum, hvort það á að byggja nýtt menntaskólahús og þá væntan- lega á þeim grunni, sem grafinn var fyrir nokkrum árum í Hlíð- um suði , eða hvort á að byggja viðbótarbyggingar austanvert við núverandi menntaskóla eða gera hvort tveggja, og tel ég það æskilegast. Gamli menntaskólinn sem þar hefur starfað í yflr eitt hundrað ár á að starfa áfram, sltkar minningar eru tengdar við það hús, að því verður að halda við iýði, svo lengi sem kostur Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra er. Það er ekki aðeins vegna skólahaldsins sjálfs heldur var þar Þjóðfundurinn haldinn. Al- þingi ( mörg ár, bar sat Jón Sigurðsson öll sín þing, því að Alþingishúsið, sem við nú erum í, var ekki byggt fyrr en að hon- um látnum. Ég ætla, að það sé mjög að- kallandi að taka sem fyrst á- kvarðanir um hvert stefna skuli í byggingarmálum menntaskól- ans og afla samþykkis skipu- Iags- og byggingaryfirvalda í þeim efnum. Þegar þetta liggur fvrir, sem ég vona að verði, áður en langt um líður. á ekki að standa á fé til þessara nauðsyn- legu framkvæmda. 5,2 millj. eru sem sagt geymslufé og 3 millj. er gert ráð fyrir að veita í fjárl- frv. fyrir 1963, og um leið og hafizt verður handa að myndar- skap og röggsemi verður að hækk fjárframlögin frá ríkinu og auk þess að útvega lánsfé, eftir þvi sem nauðsyn er, því að í þessum málum má enginn dráttur lengur verða, svo mikið er í húfi fyrir ssku Reykjavtkur og æsku alls’ landsins auk þess sem hér er þjóðarmetnaður á bak við. Sparnaður og hagsýsla. í sambandi við þessa grg. fyrir einstökum tekju- og útgjalda- greinum fjárl. og þeim Uækkun- um, sem af ýmsum ástæðum hljóta að verða á tekjum og gjöld um ríkisins, þykir mér rétt að minnast hér nokkuð á sum at- riði, sem starfað hefur verið að varðandi hagsýslu, hagræðingu og sparnað t vinnubrögðum á vegum ríkisins. I síðustu fjárlagaræðu gat ég um nokkur þau atriði í þessum efnum, sem ýmist væru komin til framkvæmda eða á undirbún- ingsstigi. M. a. gat ég þess þá, að í vegaframkvæmdum hefði orðið veruleg umbót, einkum í því efni, að við skiptingu vega- fjár hefði verið farið inn á nýjar brautir. Það var öllum mönnum orðið ljóst, að með því að skipta vegafénu á mjög marga staði, þannig að aðeins lítið kom t hlut hvers, var verið að kasta pening- um á glæ, því að oft fór megin- hiuti fjárveitingar til tiltekins vegar, fyrst og fremst í það að flytj mannskap og verkfæri og vélar á staðinn og þaðan aftur. í fjárl. 1959 var vegafénu skipt niður á 219 staði. I fjárl. fyrir 1960, ’61 og ’62 var fækkað þeim vinnustöðum, sem ætti að vinna að hverju sinni, en fjárveitingin alikin að sama skapi, þannig að á yfirstandandi ári hafa þeir stað- ir, sem fjárveitingarnar hafa farið í, verið 132 ,í staðinn fyrir 219 ár ið 1959. Á því er enginn vafi, að af þessari fækkun vinnustöðva og þá hækkun fjárveitingar í hvern stað, leiðir betrinýtingufjárins.og sparast þannig mikið fé, sem kem ur landsmönnum til góða í því, að þeir fá meiri vegagerð fyrir sama fé. Sameining á innheimtu þing- gjalda, útsvars, fasteignagjalda til borgarsjóðs Reykjavíkur og sjúkrasamlagsiðgjalda til Sjúkra- samlags Reykjavíkur, er nú kom- in í kring, og hóf innheimtustofn- unin nýja starfsemi sína 1. sept- ember s. 1. undir nafninu Gjald- heimtan, Þess er að vænta, að skattborgurum þyki hagkvæmara að geta greitt öll sín gjöld á ein- um stað, í stað þriggja eða fleiri áður. Nú, þegar gjaldheimtan er komin á stofn, virðist áætlunin um kostnað við hana hafa verið nærri lagi, og má vænta þess, að fyrir ríkissjóð verði af þessari endurskipulagningu sparnaður, sem nemi eigi minna en 2y2 millj, kr. á ári, en auk þess mikill sparn- aður fyrir a,ra þá aðila, sem að aiheimtustofnuninni standa. Þessi framkvæmd er einn þáttur breyttu skipulagi við álagningu og innheimtu skatta og tolla í rík- issjóð og meðan við þennan þátt var unnið, hafa aðrir þættir verið látnir btða, enda var beðið eftir breytingunni á skattalögunum, sem gerð var nú iár , áður en lengra yrði haldið. Nú er ný toll- skrá einnig í undirbúningi, og verður núihaldið áfram undirbún- ingi þess Kvors tveggja að koma á sparnaði bættum vinnubrögð um við álagningu og innheimtu skatta og tolla í ríkissjóð, en á því er enginn vafi, að eins og sparnaður verður mikill við gjald- heimtuna, sem ég nefndi, þá er einnig hægt að spara mikið fé varðandi þessi atriði. Bifreiða- kostnaður. Eins og minnzt var á í fyrra, hefur nú verið til athugunar kostn aður við bifreiðar og vinnuvélar rtkisins. Sú athugun er komin töluvert áleiðis og svo langt, að nú þegar má sjá, að mjög mikils sparnaðar er að vænta með skyn- samlegri endurnýjun á bifreiða- og vélakosti. Það er auðséð, að tugir milljóna fara árlega t súg- inn vegna þess, hve lélegar og viðgerðarfrekar flestar bifreiðar og vinnuvélar ríkisstofnananna og ríkisfélaga eru. Það er ljóst, að endurnýjun getur ekki dregizt lengur, og að verja þarf miklu fé til henr.ar á næstu árum. Sparnaður í viðgerðum á að verða mjög mikill, auk þess sem betri nýting á hverju einstöku hinna nýju tækja þýðir, að fækka má tækjum og halda þó sömu af- köstum og áður. Undanfarið hafa t. d. ríkisstofn- anir, sem hafa haft mikið af göml um bifreiðum og vinnuvélum í notkun, neyðzt til að koma sér upp miklum varahluta birgðum, til að tryggja sig gegn því, að tæki þeirra stöðvuðust hvað eftir annað, vegna varahluta skorts. Slíkar varahluta birgðir draga til sín óhemju fé, og nema vextir af því, sem liggur f samantöldum varahluta birgðum ríkisstofnana, nú nokkrum milljónum. Sem dæmi má geta þess, að varahluta birgðir Vegagerðar ríkisins einn- ar munu nú nema 22 millj. kr. Ef endurnýjun tækjanna fer mátu- lega ört fram, losnar þetta fé að miklu leyti og jafnframt verður að reyna að samræma og sameina hinar ýmsu barahluta birgðir rík- isstofnana. Sú athugun, sem fram hefur farið í þessu efni, hefur einkum snert nokkrar rfkisstofn- anir, og urðu eftirtaldar stofnan- ir fyrir valinu, vegna þess að þar er um mestan véla- og birgðakost að ræða, samkvæmt eðli málsins. Það er Vegagerð ríkisins, Póst- og símamálastjórn, Vita- og hafn- armálastjórn, VUasjóður ríkisins, Rafmagnsveitur ríkisins, Land- nám ríkisins og Flugmálastjórn. Við þá athugun, sem þegar hefur farið fram og ekki er lokið að fullj, hefur það m. a. komið í Ijós, að 25 tegundir véla og bif- reiða eru hjá þessum stofnunum og af ýmsum árgerðum og stærð- um. Bifreiðafjöldi þessara stofn- ana er 213 þegar sú skýrsla var gerð, sem ég hef hér fyrir framan mig, og meðal aldur þessara bif- reiða um 12 ár.. Þar af eru 15 sendibifreiðir 10 ára og eldri og 37 vörubifreiðir 15 ára og eldri. Mik- ill hluti bifreiðanna var keyptur hjá SGIunefnd varnarliðseigna og aldur þá oft nálægt 20 árum Varahlutir f ýmsar þessar bifreið- ir fást ekki lengur. Af þessu sést. Frh. á 10. bls

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.