Vísir - 25.10.1962, Side 10
Miiljóna sparnaður —
Framhald af bls. 6.
hversu erfitt er og kostnaðarsamt,
að fá varahluti í þennan gamla,
sundurleÞa og úrelta flota. Fyrir
viðgerðir og varahluti voru á s. 1.
ári greiddar 9,4 millj. og rekstr-
arkostnaður alls hjá þessum stofn
unum á bifreiðum og vélum varð
um 10 milljónir kr. í till., sem
liggja fyrir um þetta efni, segir
m. a.: „Ef tegundum yrði fækkað
niður í 5- o jafnframt endurnýj-
un tækjanna. Sést hver reginmun
ur yrði á fjárfestingu vegna vara-
hluta, þar sem vitað er að notkun
þeirra er hverfandi lítil ef b.freið-
arnar eru endurnýjaðar á 3 — 5
ára fresti“. Gert hefur verið yfir-
lit yfir eneurnýjun á 35 jeppum,
sem ríkisstofnanir þær, sem hér
voru taldar, hafa. Og það er gert
ráð fyrir því, að ef þeir yrðu
endurnýjaðir, þá mun við það eiga
að sparazt um 1 millj. kr. á ári
í reksturskostnaði, þó að í útgjöld
um sé gert ráð fyrir afskriftum
og vöxtum af útlögðu stofnfé,
sem þessi endurnýjun krefst. Og
ef hið sama ætti að gera um aðr-
ar bifreiðaeignir þessara stofnana
má því gera sér I hugarlund, að
þar yrði sparnaður, sem næmi
mjög mörgum millj. kr.
Húsnæðismál
ríkisins.
Þetta mál hefur fengið rækilega
athugu.í, og verða á næstunni tO-
búnar till. til framkvæmda í því
efni. Á þvi er enginn vafi, að rétt
er og hagkvæmt að ráðast í þessa
miklu aðgerð, .5 endurnýja hinn
gamla og úrelta flota eins og tök
eru á, en að sjálfsögðu kostar
það töluvert stofnfé meðan verið
er að koma því í framkvæmd, en
það mun skila sér fljótt.
I húsnæðismálum ríkisstofnana
hefur það m. a. gerzt, að keypt
var húseignin Borgartín 7 í
Reykjavík, þar sem margar ríkis-
stofnanir hafa lengi verið til húsai
í leiguhúsnæði. Nú er verið að
ljúka undirbúningi undir það, að
aðrar ríkisstofnanir, sem hafa
verið í leiguhúsnæði, flytji þang-
að, en eftir athugun á þessu máli
kom það í ljós, að það væri mjög
hagkvæmt fyrir ríkissjóð að festa
kaup á þessu húsi, sem margar
ríkisstofnanir, eins og ég gat um,
voru í leiguhúsnæði, og er ætlun-
in að stækka þetta hús,
byggja ofan á hluta þess, en slfk
bygging yrði töluvert ódýrari
heldur en nýbygging, þar sem all-
ar undirstöður eru fyrir hendi.
í fjárlagafrv. er komið inn á þetta
mál, bæði það sem leitað er heim
ildar í 22. gr. og auk þess kemur
þetta fram í vaxtagreiðslu og af-
borgana í frv. Til skýringar má
geta þess, að í þessu húsi eru
nú m. a. Áfengis og tóbaksverzl-
un ríkisins, embætti fræðslumála-
stjóra, Húsameistari ríkisins,
Skipulagsstjóri ríkisins, Bifreiða-
eftirlit, en gert er ráð fyrir að
fleiri ríkisstofnanir og skrifstofur
geti þangað flutt. Á s. I. ári námu
greiðslur ríkis- og ríkisstofnana
fyrir leiguhúnæði 9,4 millj. kr.
Með öflun eigin húsnæðis á veg-
um ríkisins má spara þarna stór-
ar fúlgur.
Ríkissjóður á fjölda húseigna,
sem dreifðar eru um allt land.
Það eru húseignir á ríkisjörðum,
prestseturshús, aðra embættisbú-
staði, og ýmis önnur hús, sem
notuð eru í öðru skyni. Það er
eins með þessar eignir og bif-
reiðar og vinnuvélar ríkisins, sem
áðan var á minnzt, að mikið fé
kann að fara í súginn, ef viðhald
er ekki framkvæmt í tæka tíð
eða alls ekki. Nú er í athugun
skipulagning á eftirliti á húseign
um þessum og jafnframt á
þeim fjölda skólahúsa, sem einn-
ig eru dreifð um land allt, að
vísu ekki að nafninu til f eigu
ríkissjóðs, nema sum, en þó jafn
mikið í mun að haldið sé eðli-
lega við, að því að ríkissjóður
greiðir stóran hluta af stofn- og
rekstrarkostnaði skóla. Hér leik-
ur á mjög miklum fjárhæðum, og
er gleggst að sjá það á þvf, hve
mikið fé er áætlað í fjárlagafrv.
til skólahúsanna einna saman. En
á þvl er enginn vafi, að miklu fé
þarf að verja á næstu árum, til
viðgerðar og viðhalds á mörgum
þessum húsum ríkisins, sem því
miður hafa lent í alltof mikilli
niðurníðslu.
í sambandi við þessa starf-
semi á sviði hagsýslu, hag-
ræðingar og sparnaðar, vildi ég
enn nefna árangurinn, sem þeg-
ar er sýnilegur af lögunum um
íkisábyrgðir og stofnun ríkisá-
byrgðsasjóðs. Ég skal ekki rekja
það mál að öðru Ieyti en þvf, að
flestum ætla ég, að hafi verið
ljóst orðið, að hér var stefnt í
óefni með ríkisábyrgðirnar, enda
fann Alþingi sig tilknúið til þess
fyrir fáum árum að samþykkja
þál. um það að æskja gagngerðr-
ar endurskoðunar og lagasetning-
ar um þessi mál. Það er einkum
ein breyting, sem gerð var með
hinum nýju Iögum um ríkisá-
byrgðir, sem þegar er farin að
sýna áhrif sín f sparnaðarátt. Áð-
ur fyrr var það aðalreglan, að
þegar rfkið gekk í ábyrgð, var
það sjálfskuldarábyrgð, sem þýð-
ir, að ef skuldgri greiddi ekki á
réttum gjalddaga, þá gat lánveit-
andinn snúið sér beint til| ríkis'-
sjóðs, án þess að reyna inn-
heimtu hjá skuldaranum. Með
Tire$tone
SNJÓBARÐAR
ATHUGIÐ HIN LAGU VERÐ.
700/760 - 15 6 striga. Kr. 1.584.00
710x15 6
650/670 X 15 4
600/640 x 15 4
550/590 x 15 4
560 x 15 4
750 x 14 4
700 x 14 4
640 x 14 4
500/520 x 14 4
700/640 x 13 4
590 x 13 4
725/670 x 13 4
520 x 12 4
145 x 380/15 4
600 x 16 4
550 x 16 4
500/525 x 16 4
— Kr. 1.312.00
— Kr. 1.028.00
— Kr. 993.00
— Kr. 917.00
— Kr. 856.00
— Kr. 1.182.00
— Kr. 1.157.00
— Kr. 995.00
— Kr. 744.00
— Kr. 880.00
— Kr. 750.00
— Kr. 954.00
— Kr. 658.00
— Kr. 685.00
— Kr. 1.007.00
— Kr. 970.00
— Kr. 824.00
Gúmmív’nnusto^an hf.
Skipholti 35 Reykjavík
hinum nýju lögum var hér breytt
til gagngert þannig, að hér eftir
skyldi meginreglan vera einföld
ábyrgð, en það þýðir, að þegar
ríkið hefur gengið í ábyrgð fyr-
ir einhvern aðila og ekki er greitt
á réttum gjalddaga, þá verður
lánveitandinn fyrst að reyna inn-
heimtu hjá sjálfum skuldaranum
og kanna til þrautar, hvort hann
er borgunarmaður fyrir, áður en
hann snýr sér að ríkissjóði.
Ríkisábyrgðirnar.
Frá marzlokum 1961, er lögin
voru afgreidd frá Alþingi, hefur
þessari reglu verið fylgt að veita
einfaldar ábyrgðir. Nú er að sjálf
sögðu nauðsynlegt’ og óhjákvæmi
legt að halda áfram veitingu rík-
isábyrgða f mjög mörgum tilfell-
um, til þess að greiða fyrir marg
víselgum framkvæmdum sveitafé-
laga og annarra aðilja. Síðan lögin
öðluðust gildi, hafa verið veitt lán
með einfaldri ábyrgð að upphæð
145,6 millj. kr. Nú er komið hálft
annað ár síðan, og að sjálfsögðu
hefur nokkuð af vöxtum og af-
borgunum fallið í gjalddaga hjá
þessu tímabili, en ríkissjóður hef-
ur ekki þurft að greiða ennþá
einn einasta eyri af þessum á-
byrgðalánum.
Mikið af eldri sjálfsskuldará-
byrgðum er f gildi og heldur gildi
um margra ára skeið, og þess
vegna er viðbúið, að töluverðar
greiðslur falli á ríkið eða
ríkisábyrgðarsjóð á næstu árum.
En sú stutta reynsla, sem þegar er
fengin af breytingunni í einfalda
ábyrgð, hún boðar vissulega gott
og sýnir, að hér var farið inn á
rétta braut.
Að lokum vil ég segja það, að
auk hins beina sparnaðarárang-
urs, sem leitt hefur af hagsýslu-
aðgerðum síðustu ára, er þegar
farið að bera á því, að forstöðu-
menn ríkisstofnana og aðrir
starfsmenn þeirra séu farnir að,
fá og sýna meiri áhuga fyrir
skipulagsbreytingum og hagræð-
ingu í sparnaðarátt en áður var.
Og hraðvaxandi skilningi virðist
vera að mæta í þessum efnum.
Núv. ríkisstj. hefur nú haldið
um stjórnvölinn í nærfellt þrjú
ár. í tíð hennar hafa þrenn fjár-
lög verið samin og þau fjórðu
nú lögð fyrir Alþingi. Þegar litið
er yfir heildarsvip fjárlaga ríkis-
ins á þessu tímabili þá blasa við
augum m. a. þessar myndir: I
fyrsta lagi. Einn þáttur í viðreisn-
araðgerðunum f febrúar 1960 var
breyting á tekjuöflunarkerfi rík-
isins, m. a. með lögfestingu sölu-
skatts og lækkun-tekjuskatts. Síð
an hafa verið sett saman og lögð
fyrir Alþingi fjárlagafrv. fyrir ár-
in 1961, 1962 og 1963, án þess að
hækka nokkra skatta, tolla eða
aðrar álögur.
Margt hefir
áunnizt.
í öðru lagi, hallalaus fjárlög
hafa verið lögð fyri. þing og af-
greidd fyrir fjárhagsárin 1960,
1961 og 1962, og svo er einnig
um frv. fyrir 1963, sem hér ligg-
ur fyrir.
1 þriðja lagi. Bæði árin 1960
og 1961 varð einnig hallalaus rík-
isbúskapur í reynd, en ekki að-
eins í fjárlögunum. Greiðsluaf-
gangur varð bæði árin, og svo
verður einnig á því ár1 sen nú
er a„ líða.
í fjorða lagi Gagng endur-
skoður hefui arið fram og verið
lögfest á skattalögum aðótöldum
lækkunum fyrir allan almenning
og heilbrigt skattakerfi skapað
fyrir atvinnureksturinn.
í fimmta lagi. Tollar voru lækk
aðir verulega í nóvember 1961 á
ýmsum hátollsvörum, þannig að
verð lækkaði á mörgum vöruteg-
undum, að mjög hefur dregið úr
smygli, og ríkissjóður hefur feng-
ið meiri tolltekjur af þessum vör-
um en áður, eins og kemur fram
í því, að á fyrstu sex mánuðum
yfirstandandi árs urðu tolltekjur
um 1714 millj. meiri en á fyrstu
sex mánuðum ársins 1961 af þess
um sömu vörum, sem tollar voru
lækkaðir á 's.l. hausti.
í sjötta lagi. Allt tollakerfið
hefur verið endurskoðað og ný
tollskrá verður lögð fyrir þetta
þing með samræmingu tollakerf-
isins og enn nýrri Iækkun að-
flútningsgjalda 'á ýmsum vörum.
í sjöunda Iagi. Unnið er að hag-
sýslu, hagræðingu á fjölmörgum
sviðum ríkisstarfseminnar, til
þess að lagfæra skipulag og
vinnubrögð, spara ríkisfé og
bæta þjónustu. Þessi starfsemi
hefur þegar sparað rfkinu stórfé
og á eftir að skila enn meiri ár-
angri, áður en langt um líður.
í áttunda Iagi. Með nýrri Iög-
gjöf og framkvæmd varðandi
ríkisábyrgð og stofnun ríkisá-
byrgðasjóðs erum við nú á góðri
leið að losna úr því öngþveiti og
þeirri óreiðu, sem fyrirhyggju-
litlar' ríkisábyrgðir höfðu leitt út
í. Hér munar fljótlega tugum
milljóna fyrir rfkissjóð.
Og í nfunda lagi, síðast en ekki
sízt hafa almannatryggingar verið
stórauknar á þessu tímabili, svo
að tryggingar á íslandi eru nú
mörgum öðrum þjóðum til fyrir-
myndar.
Herra forseti, ég vildi hér í
lok máls míns bregða upp mynd-
um af fjármálastarfsemi rikisins
á þessu tímabili. Ég hef haldið
mig hér við fjárlögin sjálf og
fjármál ríkisins, en ekki farið út
í önnur mál, eins og efnahagsmál
þjóðarinnar almennt. Ég hef ekki
séð ástæðu til í þessari framsögu
ræðu, sem á að fjalla um fjár-
lagafrv. fyrir 1963, að hefja al-
mennar umr. um þjóðmál, enda
gera þingsköp ekki ráð fyrir því,
að 1. umr. fjárlaganna sé gerð
að eldhúsdegi.
Ef aðrir ræðumenn gefa tilefni,
verður að sjálfsögðu reynt að
svara og gefa upplýsingar um
önnur mál eftir því, sem efni gef-
ast til. Ég vil svo að lokum
leggja til, að frv. til fjárlaga fyr-
ir árið 1963 verðr vísað til hv.
fjárveitinganefndar.
SKYNDIHAPPDRÆTTI
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
ER AÐ LJÚKA. Sala hefur
verið í fullurn gangi. Meðlim-
ir Sjálfstæðisfélaganna hafa
fengið senda miða. Er nú skor
að á þá að gera skil sem ailra
fyrst því að drætti verður
ekki frestað. Tækifærið til að
eignast spánýja Volkswagen-
bifreið fyrir lítinr pening hef-
ur aidrei verið stærra KOM
IÐ ' SKRIFSTOFÚ SJÁLF
STÆD'SFLOKKSII'S OG ]
GERIÐ SKIL, HIÐ ALLRA i
FYRSTA.