Tölvumál - 01.10.1997, Side 4

Tölvumál - 01.10.1997, Side 4
Á næstunni Á meðan þú sefur... Skýrslutæknifélag íslands heldur öryggisráðstefnu 30. október 1997 kl. 13 á Grand Hótel Reykjavík. Fjallað verður um stefnumörkun í öryggismálum, persónuleynd og sitthvað fleira. Reynslusögur úr atvinnuiífinu í fyrra var haldinn hádegisverðarfundur með þessari yfirskrift sem var með eindæmum vinsæll viðburður. Nú mun Skýrslutæknifélagið taka upp þráðinn aftur og hefur fengið til líðs við sig Guðna B. Guðnason til að segja frá reynslu sinni af því að flytja tölvurekstur ÍSAL yfir til sjálfstæðs fyrirtækis, Álits ehf. Ætlunin er að halda þennan fund 20. nóvember n.k. Jólaráðstefna SÍ Undanfarin ár hefur Skýrslutæknifélagið haldið ráðstefnu í byrjun desember sem kölluð hefur verið ET-dagurinn (einkatölvudagurinn). Ekki þykir lengur ástæða til að tileinka daginn einkatölvunni frekar en öðru, en að sjálfsögðu verður ráðstefnan haldin að venju. Á þessum ráðstefnum hafa gjarnan verið skoðaðar spennandi og skemmtilegar nýjungar. í ár verður jólaráðstefnan á Hótel Loftleiðum og verður haldin þann 5. desember 1997. Skýrslutæknifélag íslands Skýrslutæknifélag íslands er félag allra sem vinna við og hafa áhuga á upplýsingamálum og upplýsingatækni. Markmið félagsins er að vinna að eflingu upplýsingatækni á íslandi. Starfsemin er aðallega fólgin í að halda ráðstefnur, námstefnur og félagsfundi með fyrirlestrum og umræðum um sérhæfð efni og nýjungar í upplýsingatækni. Félagsaðild er tvennskonar; aðild gegnum fyrirtæki og einstaklingsaðild. Nemendur í tölvunarfræðum við Háskóla íslands og Tölvuháskóla Verzlunarskóla íslands eru á aukafélagaskrá. Greitt er fullt félagsgjald fyrir fyrsta mann frá fyrirtæki, hálft fyrir annan og fjórðungsgjald fyrir hvern félaga umfram tvo frá sama fyrirtæki. Einstaklingar greiða hálft gjald. Félagsgjöld 1997 eru: Fullt gjald kr. 13.500, hálft gjald kr. 6.750 og fjórðungsgjald kr. 3.375. Aðild er öllum heimil. Stjórn Skýrslutæknifélags íslands 1997: Haukur Oddsson, formaður Douglas A. Brotchie, varaformaður Hulda Guðmundsdóttir, ritari Laufey Erla Jóhannesdóttir, gjaldkeri Heimir Sigurðsson, meðstjórnandi Óskar B. Hauksson, meðstjórnandi Eggert Ólafsson, varamaður Gunnar Sigurðsson, varamaður Ritstjóri: Gísli R. Ragnarsson Siðanefnd: Erla S. Árnadóttir, formaður Gunnar Linnet Snorri Agnarsson Sigurjón Pétursson, varamaður Orðanefnd: Sigrún Helgadóttir, formaður Baldur Jónsson Þorsteinn Sæmundsson Örn Kaldalóns Tölvunefnd, fulltrúi SÍ: HaukurOddsson Guðbjörg Sigurðardóttir, til vara Fagráð f upplýsingatækni, fulltrúi SÍ: Halldór Kristjánsson Eggert Ólafsson, til vara Skrifstofa SÍ: Barónsstíg 5, 2. hæð Sími 551 8820, bréfsími 562 7767 Netfang sky@skima.is Heimasíða http://www.sky.is Framkvæmdastjóri: Svanhildur Jóhannesdóttir 4 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.