Tölvumál - 01.10.1997, Qupperneq 14

Tölvumál - 01.10.1997, Qupperneq 14
TÖLVUMAL 00 Tímagluggi 56 80 00 20 1900 55 00 IV55 1980 ZOUÖ ZUZÖ----------------2055 2100 eftirfarandi mundi gilda: árið 57 = 1957 árið 00 = 2000 árið 20 = 2020 Kostir: • Ekki þörf á að umbreyta sögu- skrám (eldri gögnum) eða skrifa forrit sem umbreyta dag- setningum. • Hægt að breyta forritunum smám saman án þess að allt verkefnið liggi undir í einu. • Aðeins þarf að breyta þeim forritum sem árið 2000 hefur áhrif á. Gallar: • „Einungis“ 100 ára gluggi. • Kostar væntanlega meiri ör- gjörva notkun. • Akvarða þarf tímaglugga og í sumum tilfellum nægir ekki einn. • Þar sem raðað er á dagsetn- ingar þarf að gera ákveðnar ráðstafanir. • Kostar meiri breytingar á þeim forritum sem á annað borð þarf að breyta. Staðan hjá Reikni- stofu bankanna (RB) Starfandi er sérstakur vinnu- hópur vegna ársins 2000 og er hlutverkhans að skipuleggja vinn- una varðandi breytingarnar á hugbúnaðarkerfum RB. Áhersla er lögð á að þetta sé forgangsverkefni þar sem virk þátttaka allra hlut- aðeigandi er mjög mikilvæg. Góð verkefnastjórnun, verkáætlun og samstaða er síðan lykillinn að því að þetta verkefni gangi upp á sem bestan hátt. Til upplýsingar hefur kerfissvið RB sett upp sérstaka síðu á innraneti sínu til að kynna þetta verkefni fyrir bankafólki og sínum eigin starfsmönnum. Sérstakri framkvæmdaáætlun sem við köllum RB2000 verður fylgt þegar unnið verður við breytingar á hugbúnaðarkerfum RB og mun ég fara lauslega yfir helstu verkþætti hér á eftir. Tölvukerfi RB telur um 2.000.000 forritslína og því er ljóst að það er mikið verk framundan að gera forritin aldamótahæf. Ef tilgáta Coopers & Lybrand er rétt þá þurfum við að gera um 40.000 breytingar á forritunum okkar. Þótt það séu rúm 7 ár síðan byrjað var að skilgreina allar dag- setningar í nýjum hugbúnaðar- kerfum RB sem átta stafa svæði, þá er ljóst að mörg dagsetningar- svæði eru enn 6 stafa og geyma því ekki öldina. Hafa ber ennfrem- ur í huga að þó svo dagsetningar innihaldi öldina er ekki sjálfgefið að verkefnin séu aldamótahæf. Framkvæmdaáætlunin RB2000 Framkvæmdaáætluninni er skipt niður í níu megin verkþætti og hefur hún tekið mið af kerfisþróunarlíkani RB: 1. Forvinna. 2. Þarfagreining (skoðun, skrán- ing og kortlagning). 3. Hönnun. 4. Rýni/prófun á hönnun. 5. Breytingar. 6. Samþætting. 7. Kerfispróf. 8. Viðtökupróf. 9. Yfirtaka. Farið verður yfir hvern verk- þátt fyrir sig, hann brotinn niður og skilgreindur eins vel og kostur er á. Það er ljóst að ekki er til nein galdralausn eða töfraformúla sem virkar gagnvart þessu vandamáli sem við stöndum nú frammi fyrir. Nauðsynlegt er að allir sem að verkefninu koma séu reiðubúnir að miðla upplýsingum og reynslu til annarra. Verkþátturl -forvinna Almennt er talið að 40% - 60% forrita á forritasöfnum í þróunar- umhverfi séu svokölluð „svefn- forrit“ sem ekki eru í raunverulegri notkun heldur tilkomin vegna afrit- unar, tilrauna og ýmiskonar próf- ana og hafa ekki lengur neina þýðingu. Áður en byrjað er á verk- þætti 2 er ráðlegt að taka til í forritasöfnum þróunarumhverfis til að gömul forrit sem ekki eru lengur notuð þvælist ekki fyrir í skoðun, skráningu og kortlagn- ingu. Verkþáttur 2 - þarfagreining (skoöun, skráning og kortlagning) Við þetta verk eru notuð ýmis tól og tæki sem henta hverju um- hverfi og hugbúnaðarkerfi. 2.1 Skrá niður öll verkefni sem tilheyra hverjum yfirkerfis- fræðingi/forstöðumanni. 2.2 Flokkun hugbúnaðarkerfanna/ forritanna í þrjá aðalflokka: 1. Hugbúnaðarkerfi/forrit sem 14 - OKTÓBHR 1997

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.