Tölvumál - 01.10.1997, Síða 5
TÖLVUMÁL
Frá formanni
Efl Hauk Oddsson
Enn um menntamál
Eins og opinberlega hefur kom-
ið fram stefnir í að útflutningur
hugbúnaðar verði nálægt 1700
milljónum á árinu. Ekki þarf að
rekja það fyrir lesendum Tölvu-
mála að vöxturinn hefur verið mik-
ill og búist er við enn frekari vexti
á næstu árum. Til þess að setja
þessar tölur í samhengi má geta
þess að sala loðnumjöls af meðal
loðnuvertíð skilar íslendingum
5000 milljónum kr. útflutnings-
tekjum. Verði vöxtur hugbúnaðar-
útflutnings eins og búist er við má
gera ráð fyrir, án verulegrar bjart-
sýni, að tekjur af hugbúnaðargerð
nái loðnuveiðum innan nokkurra
ára. Sé kostnaðarmyndun grein-
anna hinsvegar skoðuð má fljótt
sjá mikla þjóðhagslega yfirburði
hugbúnaðargerðarinnar.
Þó það sé fátt sem loðnuveiðar
og hugbúnaðargerð eigi sameigin-
legt má með góðum vilja segja að
hvorutveggja byggi á fríu hráefni
eða m.ö.o. á hinni takmkörkuðu
„fríu“ auðlind sem fiskurinn í
sjónum er og á hinni sem er nánast
ótakmörkuð þ.e. hugsunarhest-
öflum landans. Til þess að þau
nýtist við hugbúnaðargerð þarf að
vísu að leggja lítillega í mennta-
mál.
Nú berast okkur þau ótrúlegu
tíðindi frá Háskóla Islands að ekki
fáist lengur kennarar til starfa við
tölvunarfræðiskor skólans og
ástæðan er að sögn óviðunandi
kjör. Er nema von að maður detti
nær af stólnum við að heyra svona-
lagað og þvíumlíkt. Hvað eru
margir fastir kennarar við tölvun-
arfræðiskor? Svar: Þrír prófess-
orar og tveir dósentar. Segjum að
það þurfi að bæta kjör þeirra all
verulega, eða um nokkuð marga
tugi þúsunda á mánuði, þá næmi
kostnaðarauki við skorina ein-
hverjum milljónum á ári. Það sjá
allir að það eru smáaurar.
Ljósið í myrkrinu er að sjálf-
sögðu myndarlegt framtak og
þróun á vegum Tölvuháskóla
Verslunarskólaíslands. Þarhefur
verið staðið vel að málum. Getur
verið að TVÍ geti tekið við hlut-
verki HÍ á sviði upplýsingatækni-
menntunar? Getur verið að það sé
búið að ákveða að einkavæða
tölvunarfræðiskor og það hafi
gleymst að segja okkur frá því og
að launasvelti kennara við tölv-
unarfræðiskor sé leikflétta?
Skýrlsutæknifélagið
gengur í CEPIS
Eins og fram kom í pistli
mínum í maí s.l. þá hefur staðið
fyrir dyrum að SI gangi í samtök
skýrslutæknifélaga í Evrópu,
CEPIS. Nú hefur sjórn félagains
ákveðið að sækja um aðild og gera
má ráð fyrir að á næsta stjórn-
arfundi CEPIS, í janúar næstkom-
andi, verðir aðild SÍ samþykkt.
Tilgangur aðildarinnar er, fyrir
utan að auka tengsl og læra af
systurfélögum okkar, að komast
inn í verkefni á vegum Evrópusam-
bandsins bæði fyrir félagið sem
slíkt og ekki síður fyrir einstaka
félagsmenn.
Útgáfa tölvuorðasafns
Um þessar mundir er unnið að
lokaundirbúningi 3. útgáfu Tölvu-
orðasafns orðanefndar SÍ. Stefnt
er að því að útgáfu í nóvember .
Nánar verður vikið að orðasafninu
í næsta blaði.
Haukur Oddsson erforstöðu-
maður tölvu- og upplýsinga-
deildar íslandsbanka.
Punktar...
Bandaríska tímaritið Busi-
nessWeek fjallaði á dögunum
um þau vandamál sem eru að
skapast vegna skorts á fólki til
starfa á sviði upplýsingatækni
og þá aðallega forriturum.
Tímaritið lýsir þessu sem
alþjóðlegu vandamáli og tekur
svo stórt upp í sig að segja að
það sé í dag stærsta ógnunin
við áframhaldandi hagvexti.
Einnig gerir blaðið grein fyrir
því hvernig ýmsai' ríkisstjórnir
séu að bregðast við þessum
vanda. Á íslandi eru menn ró-
legir yfir þessum málum og
láta fátt raska ró sinni.
OKTÓBER 1997 - 5