Tölvumál - 01.10.1997, Síða 7
TÖLVUMÁL
Haustráðstefna
Skýrslutæknifélagsins
Eflir Þorkel Siauitauasson
Á dögunum hélt Skýrslutækni-
félag Islands sína árlegu haust-
ráðstefnu undir yfirskriftinni Ný
viðhorf og tækifæri í tölvurekstri.
Ráðstefnan var áhugaverð og vel
sótt. Þrjú af fjórum erindum á
ráðstefnunni fluttu erlendir aðilar,
þeir Gary Smith og Damon
Wheaton frá endurskoðunar- og
ráðgjafafyrirtækinu Deloitte &
Touche, Hans Erik M0rk frá
Danske Data og Carsten Joost frá
Compete Center, IBM.
Megininntak
ráðstefnunnar
Megininntak ráðstefnunnar var
um möguleika fyrirtækja sem
annast rekstur tölvukerfa og hvaða
kostir og gallar fylgja því fyrir
fyrirtækin að semja við utan-
aðkomandi aðila um rekstur sinna
eigin tölvukerfa. Erindi Carstens
frá IBM fjallaði reyndar um
nettölvur og þótt hann tæki fram
að hann væri ekki að auglýsa IBM
tölvur gat naumast dulist neinum
að sú var raunin. Þetta hefur því
ekki breyst hjá IBM þótt margt
annað sé í rétta átt. Yfirleitt er lítill
ávinningur fyrir sölumenn að
gagnrýna keppinautana eins og
Carsten gerði með skoti á Sun, og
það var einnig mín tilfinning í
samtali við nokkra ráðstefnugesti
að þetta hafi ekki fallið í góðan
jarðveg.
Friðrik Sophusson, fjármála-
ráðherra, flutti ágætis setningar-
ræðu og nafni hans Sigurðsson,
formaður Sámtaka íslenskra hug-
búnaðarfyrirtækja og fram-
kvæmdastjóri Tölvumynda, dró
upp fróðlega mynd af því hvernig
staða hugabúnaðariðnaðar er hér
á landi. Eins og vænta mátti var
ekki verið að draga úr þeim erfið-
leikum sem atvinnugreinin á við að
stríða. Mismunun ríkisvaldsins
vegna virðisskattsmála, skortur á
þekkingu til að annast rekstur
tölvukerfa og almennt óviðunandi
afkoma greinarinnar.
Den Danske Bank í
fremstu röð
Erindi Hans Eriks M0rk var
mjög áhugavert. Hann rekur fyrir-
tækið Danske Data í eigu Den
Danske Bank, sem stofnað var um
mitt ár 1996 og annast allan
tölvurekstur bankans. Starfsmenn
Danske Data eru um 800 og nemur
ársveltan um 10 milljörðum króna.
Hjá Den Danske Bank vinna hins
vegar um 12.000 manns. Einn
starfsmaður í upplýsingavinnslu er
á hverja 15 bankastarfsmenn. Að
mati Hans Eriks skiptir upplýs-
ingatækni sköpum fyrir sam-
keppnisstöðu banka og er Den
Danske Bank að hans mati tals-
vert framar en Svenske Handels-
banken sem er aðalkeppinauturinn
á Norðurlöndum.
Kostir þess að semja
við utanaðkomandi
aðila
Það voru einkum þrjár ástæður
fyrir því að Den Danske Bank vildi
draga tölvurekstur út úr fyrir-
tækinu og semja við utanaðkom-
andi aðila, sem reyndar er í þeirra
eigu, um rekstur tölvukerfa og hafa
umsjón með allri hugbúnaðargerð.
í fyrst lagi skapast samkeppni um
rekstur og hugbúnaðarþróun, sem
á þessu sviði sem öðrum leiðir oft
til lægri kostnaðar og betri þjón-
ustu. í öðru lagi er auðveldara að
semja við utanaðkomandi aðila,
því yfirleitt gera tölvudeildir ekki
formlega samninga við notendur
og það vantar yfirleitt mikið á
sameiginlegan skilning á því hvers
konar þjónustu er verið að biðja
um. í þriðja lagi vildi bankinn hafa
upplýsingar um hvað einstök kerfi
raunverulega kostuðu, en oft eru
gerðar endalausar kröfur til
tölvudeilda og þær vinna fjölmörg
verkefni án þess að kostnaðurinn
sé ljós.
Margir óttuðust að Danske
Data yrði fjarlægt bankanum og
yrði ekki í takt við það sem er að
gerast. Reynslan varð ekki sú,
enda voru skipaðir vinnuhópar um
þróun einstakra kerfa með virkri
þátttöku notenda. Slíkt samstarf
gengur jafnvel enn betur þegar
tölvurekstur og hugbúnaðargerð er
komið í sérstakt fyrirtæki. Einnig
kom í ljós hve „fókuseraðir“ eða
einbeittir starfsmenn urðu, því þeir
OKTÓBER 1997 - 7